Skólanefndarfundur: 30.05.2026 
Staður: Kleppsmýrarvegi 8 & Zoom

Fundarmenn:

Hrefna Friðriksdóttir, Gísli Björn Heimisson, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir

Fundargerð:

Skólanefndarfundur með kennurum – 30.5.2026

Mættir: Jónheiður, Elli, Gísli, Guðfinna, Hrefna, Ágústa, Karl Ágúst, Gríma, Þórhildur, Hörður

  1. Elli og Þórhildur spjalla um Reyki. Kennarar verða í íbúðinni. Rætt almennt um aðstæður á Reykjum. Hörður spyr hvort það sé eitthvað sem kennarar þurfa. Ágústa talar um soundbox og það eiga að vera tvö. Þórhildur talar um soundbox og skjávarpa og Kalli talar um að hafa aðstöðu þar sem hann getur talað einslega við nemendur. Ef það eru einhverjar sérstakar þarfir
    Ágústa minnir á að við þurfum að senda póst til allra og minna nemendur á að taka með sér hlý föt og að taka með búninga í sameiginlega púlju fyrir lokadag og annað sem er að gerast á kvöldin.
  1. Elli minnist á að kennarar gætu íhugað samstarf og Kalli minnist á að gaman væri að finna flöt á því að leyfa leikritunarnemendum að fá leikarar í leiksmiðjur og taka hinir kennararnir vel í það. 
  1. Jónheiður fór yfir týpískan dag og vikuplanið. Og Þórhildur spurði hvort nemendur fengju senda dagskrá dagsins og það er hægt að verða við því og einnig ætlar Hörður að senda á hana. 
  1. Kalli kemur með spurningu og hugmyndir varðandi lokadaginn og það var aðeins rætt. Hugmynd um að vinna út frá forsendum frekar en að vera með handrit. Kennarahópurinn veltir þessu fyrir sér.
  1. Talað að hafa morgunsamveru sem virkar sem upphitun beint inn í námskeiðin, raddupphitun, spunaleiki og að hver kennari komi með sínar áherslur. Ágústa minnist á að þau ætla að vera með trommur og afró.
  1. Rætt um fataslár – okkur langar að fjárfesta í fataslám fyrir skólann sem hægt er að taka í sundur Elli og Jónheiður skoða það aftur. Leikfélag Kópavogs ætlar að koma með tvær fataslár og herðatré.  
  1. Rætt um að hvort við getum mögulega sett inn texta um áskoranir í leiklistarstarfi í póst til nemenda eða bæklinginn eða setningarræðunni.
  1. Rætt um að við þurfum að finna nýjan DJ. Gísli stingur upp á að tala við Ingveldi Láru. Jónheiður og Elli finna einhvern.
  1. Rætt aðeins um afmælishátíð á næsta ári og hvaða flöt við getum tekið.  Spurning hvort við höldum hátíð óháða skólanum eða gera eitthvað innan skólans. Þurfum samt að passa upp á búbluna á lokadaginn og lokakvöldið. Mögulega hægt að bjóða fyrrverandi skólastjórnendum og skólanefndarfólki. Gætum líka boðið fleirum en það gæti haft mikil áhrif inn í hópinn. Væri hægt að gera eitthvað á lokakvöldinu. Rifja upp sögu skólans og gera eitthvað úr því – hafa myndasýningu, leikþátt eða söguskoðun. Afmælióvissu ratleikur. Nemendur sem hafa farið lengra. Eiga einhvern pakka um þá sem hafa farið í meira nám eftir að hafa verið í skólanum.
    Það væri einnig hægt að hafa sér „afmælislokadag“ þar sem fólk myndi mæta og taka þátt í leiklistarhátíð og svo yrði partý og matur um kvöldið. Þetta gæti verið í sambandi við aðalfund eða óháð því.
  1. Rætt um umræður um skólan á Bandalagsþingi. Miklar stækkunar pælingar í hópnum og því beint til stjórnar að halda málþing um skólan, tengja það mögulega 30 ára afmælinu.  
  1. Elli talar um að mögulega væri hægt að samnýta rými fyrir tækni og búninga eða förðunar námskeið ef það er áhugi að halda svoleiðis að hausti eða vetri.

Fundi slitið kl 12:55 

Fundargerð ritaði Jónheiður Ísleifsdóttir