Skólanefndarfundur: 31.03.2026 
Staður: Kleppsmýrarvegur 8

Fundarmenn:

Hrefna Friðriksdóttir, Hörður Sigurðarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, F.Elli Hafliðason, Guðfinna Gunnarsdóttir

Fundargerð:

Skólanefndarfundur 31.03.2026

Mættir: Guðfinna, Hrefna, Elli, Jónheiður og Hörður

  1. 71 sóttu um 54 pláss á fjórum námskeiðum.
  2. Farið var yfir öll námskeið og var tími umsókna látinn ráða hvar fólk lenti í röðinni sama hvort um var að ræða aðal eða varaval.
  3. Skráð var niður í hvaða röð fólk var tekið inn á hvaða námskeið og hverjir eru á biðlista á hvaða námskeiði. Sumir eru á biðlista á bæði aðal- og varanámskeiði.
  4. Hörður mun senda út pósta á morgun til þeirra sem eru komnir með pláss á námskeiði og þeirra sem eru á biðlista.
  5. Rætt um kennarafund í lok maí. Hörður mun hafa samband og senda kennurum nemendalista og kanna tíma á fundi.
  6. Hörður talar um að fá Ástu á fund í haust og kanna möguleika á lengra námskeiði. Guðfinna talar um að Ásta sé að fara að vinna erlendis.
  7. Rætt aðeins um næsta ár
  8. Ellir talar um að kannski væri gott að skólinn ætti fataslár og munu Elli og Jónheiður skoða það.
  9. Aðeins minnst á 30 ára afmæli á næsta ári en ræðum það betur seinna.

   Fundargerð ritaði Jónheiður