Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Blessað barnalán

Föstudaginn 7. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri uppfærslunnar er Akureyringurinn Sunna Borg. Sunnu þekkja flestir fyrir störf sín hjá LA, en í gegnum tíðina hefur hún leikið þar hjá félaginu fjölda eftirminnilegra hlutverka, haldið námskeið og leikstýrt. Þetta er í fyrsta sinn er Sunna leikstýrir hjá Leikfélagi Dalvíkur.

Aukasýningar á Hungri

Ákveðnar hafa verið þrjár aukasýningar á Hungri sem Fimbulvetur ehf setti upp fyrr í vetur. Verkið hefur hlotið mikið umtal og lof og afar vel hefur selst á þær tíu sýningar sem búnar eru og um 1700 manns hafa þegar séð verkið.  Fimbulvetur ehf og Borgarleikhúsið hafa nú ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á […]

Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Anímanína

Miðvikudaginn 5. apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Anímanína. Verkið er samið af meðlimum Stúdentaleikhússins og Víkingi Kristjánsssyni, sem jafnframt leikstýrir. Verkið er allt það sem leikhús hefur upp á að bjóða. Söngur og dans, dramatík og furðulegheit. Sýnt er í Loftkastalanum og hefjast sýningar kl 20:00

Hvað kemur þetta okkur við?

– Um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál – Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir umræðufundi í Leikhúskjallaranum laugardaginn 1. apríl kl. 15:00.   Leiklistarsamband Íslands hefur undanfarin ár efnt til umræðufunda um leiklist og leikhússtarfsemi. Í þetta sinn eru umræðufundirnir haldnir í samstarfi við fræðsludeild Þjóðleikhússins. Yfirskrift fundanna er ,,Hvað kemur þetta okkur við?” og efni þeirra […]

Tveir tvöfaldir frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur

Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00.

Frumsýning á Átta konum í Þjóðleikhúsinu

Þann 31. mars verður gamanleikurinn Átta konur eftir Robert Thomas, í þýðingu og aðlögun Sævars Sigurgeirssonar, frumsýndur  á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en um tónlistarstjórn sér Samúel J. Samúelsson.

Leikfélag Selfoss með heiðurssýningu

Þann 2. apríl nk. verður sérstök heiðurssýning á Þuríði og Kambsráninu hjá Leikfélagi Selfoss til að heiðra minningu Ólafar Österby (fædd 1. apríl 1906, lést 19. janúar 1995). Ólöf var í fyrstu stjórn leikfélagsins árið 1958 og ári seinna var hún kosinn sem formaður og gegndi því starfi í eitt ár. Hún kom margoft fram […]

Leynist kvikmyndastjarna í þér!

Sunnudaginn 2. apríl stendur Kvikmyndafélag Íslands fyrir opinni áheyrnarprufu fyrir ævintýragrínmyndina ASTRÓPÍA Í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar, sem tekin verður upp í sumar.   Leikarar jafnt sem áhugafólk er hvatt til að mæta í áheyrnarprufur sem standa yfir frá 10:00 til 17:00 í NEXUS hverfisgötu 103.   Athugið við leitum af fólki frá 17 ára […]

Þráinn Karlsson fagnar 50 ára leikafmæli

Þráinn Karlsson  hefur starfað hjá LA í fimm áratugi og var meðal þeirra leikara sem fyrst fengu fastráðningu þegar LA varð atvinnuleikhús árið 1973. Síðan þá hefur hann farið með mörg hlutverk fyrir félagið, stór og smá. Þar má meðal annarra nefna Sganarelle í Don Juan, Skrifta-Hanns í Ævintýri á gönguför, Þórð í Stalín er […]

Memento mori til Færeyja

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur valið sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur til að vera fulltrúi Íslands á 4. NEATA-leiklistarhátíðinni sem fram fer í Færeyjum dagana 2.-8. ágúst nk. Sýningin er eins og kunnugt er samvinnuverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.

Örleikritasamkeppni framhaldsskólanema

Mánudagskvöldið 27. mars, á alþjóðlega leikhúsdaginn, verða úrslit í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna kynnt. Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir samkeppninni. Alls bárust á þriðja tug handrita hvaðanæva að af landinu. Fimm leikrit voru valin til flutnings í Kassanum, nýju leiksviði Þjóðleikhússins. Flytjendur eru nemendur í þriðja bekk leiklistardeildar LHÍ en leikstjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. […]

Ávarp á alþjóða leikhúsdaginn 27. mars 2006

Segjum svo að manneskja standi upp í fjölmenni og heimti athygli viðstaddra þá er það ekki endilega leiklistarviðburður. En ef manneskjan fer upp á kassa er það í áttina, gæti þó verið framboðsræða eða predikun, jafnvel kynning á nýrri tannkremstegund. Ef manneskjan talar mjög hátt og tilgerðarlega, syngur og dansar eða hreyfir sig óvenjulega, klæðist […]

Gauragangur á Höfn

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagana, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er sérlega uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og tónlistarstjórn annast Jóhann Morávek en hljómsveitin Ný dönsk samdi […]

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Hodja frá Pjort

Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort sem byggt er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en leikgerðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Ingvar Bjarnason.

Leikfélag Sauðárkróks æfir Vífið

Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen, er annað verkefni Leikfélags Sauðárkróks á leikárinu og verður frumsýnt í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl nk. Verkið var m.a. sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku leikhúsgrúppunni við fantagóðar undirtektir árið 2001 og fjallar um John nokkurn Smith sem er ósköp venjulegur maður […]

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum eina ferðina enn

Leikfélagið Hugleikur hefur staðið fyrir mánaðarlegum skemmtidagskrám í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur undir yfirskriftinni Þetta mánaðarlega. Dagskrá marsmánaðar verður fimmtudag og sunnudag næstkomandi og hefst kl. 21, en húsið opnar kl. 20.30.

Dimmalimm sýnt í Möguleikhúsinu

Einleikurinn Dimmalimm verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis á sunnudag kl. 14. og 16. og verða þetta einu almennu sýningarnar í Reykjavík. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur Dimmalimm á svið og hafa sýningar verið síðustu vikur í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu við góðar undirtektir. Leikurinn er byggður […]

Dagrenning æfir Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni

Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði er um þessar mundir að setja upp verkið Sveyk í seinni heimstyrjöld eftir Bertold Brecht. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson og er ætlunin að frumsýna þann 31. mars nk. Sýnt verður í félagsheimilinu Brautartungu. 19 leikarar taka þátt í sýningunni en 25 manns koma að sýningunni í heild. Í helstu […]

LA frumsýnir Litlu hryllingsbúðina

Föstudaginn 24. Mars frumsýnir LA stórsýningu vetrarins, söngleikinn ástsæla, Litla hryllingsbúðin. Verkið sló í gegn snemma á níunda áratugnum þegar það var frumsýnt og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Andrea Gylfadóttir. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson.

Leikfélag Hveragerðis æfir Þrek og tár

Æfingar standa nú yfir á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson hjá leikfélagi Hveragerðis.  Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir verkinu og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa.  Margir leikarar eru í sýningunni eða 10 karlar og 7 konur og tók nokkurn tíma fyrir leikfélagið að lokka til sín karlleikara. […]

Viltu finna milljón?

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu.   Nú eru að hefjast æfingar í Borgarleikhúsinu á óborganlegum farsa sem hefur fengið nafnið Viltu finna milljón? Gamanleikurinn verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í maí. Landslið grínara situr nú og les sjóðheitt, nýútprentað handritið í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikarar eru: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur […]

Nunnulíf í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir laugardaginn 18. mars leikritið Nunnulíf sem byggt er á kvikmyndinni Sister Act. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir, kórstjóri er Helga Jónsdóttir. Sýnt er í Bæjarleikhúsinu.

Frumsýning í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur í samvinnu við Vox Arena, leikfélag fjölbrautaskóla Suðurnesja, vinna nú saman að nýju verkefni.  Verkefnið, sem hlotið hefur nafnið: "KEFLAVÍK, ÍSLAND, ALHEIMURINN eða MAMMA ÞÍN" verður frumsýnt í Frumleikhúsinu föstudaginn 17. mars, kl 20:00. 

Kláus frumsýnir Rítu í Iðnó

Sunnudaginn 19. mars mun leikhópurinn Kláus frumsýna gamanleikinn Ríta eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson.

Kardemommubærinn fyllir Freyvangsleikhúsið

Freyvangsleikhúsið frumsýndi Kardimommubæinn í Freyvangi þann 25 febrúar sl. fyrir fullu húsi og Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta; svona eins og til að vera með í tímalausu, sólríku umhverfi Kardimommubæjarins. Sesselja Traustadóttir var á staðnum.

Leiklistarskóli Bandalagsins 2006

Boðið er upp á námskeið fyrir leikstjóra og leikara að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 10.-18. júní og fyrir förðunarfólk að Laugavegi 96 helgarnar 13.-15. og 27.-29. október. Kennarar verða Sigrún Valbergsdóttir, Ágústa Skúladóttir, Steinunn Knútsdóttir og Gréta Boða. Skráning í skólann hefst þann 15. mars.  Umsóknum er hægt að skila á netfangið info@leiklist.is og leggja […]

Umsóknarfrestur á NEATA-hátíðina að renna út

Þann 15. mars rennur út frestur til að sækja um að komast á Leiklistarhátíð Norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins sem í þetta sinn verður haldið í Þórshöfn í Færeyjum dagana 3. til 8. ágúst. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum.

Krossgötur – málþing um Pétur Gaut

Í tilefni af sýningu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen standa Þjóðleikhúsið og norska sendiráðið fyrir málþingi um þetta stórvirki leikbókmenntanna laugardaginn 18. mars kl. 15:00 í Kassanum. Sýning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut, í leikgerð og leikstjórn Baltasars Kormáks, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og leikhúsgesta. Hér er á ferðinni eitt af meistarverkum Henriks […]

Stúdentaleikhúsið æfir nýtt verk

Stúdentaleikhúsið er nú að æfa nýtt leikrit sem frumsýnt verður 2. apríl í Loftkastalanum. Víkingur Kristjánsson hefur verið fenginn til að leikstýra hópnum að þessu sinni, og er verkið samið af leikhópnum í samvinnu við hann. Víkingur hefur getið sér gott orð á undanförnum árum, og þá sérstaklega í Vesturporti, þar sem hann hefur meðal […]

Klaufar og kóngsdætur kveðja

Síðasta sýning á Klaufum og kóngsdætrum í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 12. mars kl. 13:00 og er þá rétt um ár síðan verkið var frumsýnt og hafa yfir 10.000 manns séð verkið. Klaufar og kóngsdætur er leikgerð þeirra á Ármanns Guðmundssonar, Sævar Sigurgeirssonar og Þorgeirs Tryggvasonar á nokkrum af ævintýrum HC Andersen í tilfefni af 200 ára […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Pókók

Laugardaginn 11. mars mun Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra, frumsýna leikritið Pókók, fyrsta leikverk Jökuls Jakobssonar. Þegar verkið var skrifað vakti það vonir um að mikið leikskáld væri í fæðingu, sem og varð raunin. Jökull er eitt besta leikskáld sem við höfum átt. Verk hans eru stórbrotin umfjöllun um samtímann, sálarkima mannskepnunnar og á stundum […]

Þuríður og Kambsránið frumsýnt

Leikfélag Selfoss frumsýnir þann 10. mars í Leikhúsinu við Sigtún, leikritið Þuríði og Kambsránið, nýtt verk eftir formann félagsins Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Verkið fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um eitt þekktasta sakamál 19. aldarinnar, Kambsránið. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson.

Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsið

Nú hefur verið gengið frá samningum um sýningar á hinum geysivinsæla gamanleik, Fullkomnu brúðkaupi, í Reykjavík. Sýningarnar hefjast í lok apríl og verða í Borgarleikhúsinu. Miðasala hefst í miðasölu Borgarleikhússins nú á föstudag, 10. mars. Fullkomið brúðkaup hefur slegið öll met hjá LA og er aðsóknarmesta sýning í sögu leikhússins. Sýningin hætti fyrir fullu húsi […]

Ljóðs manns æði

Fræðsludeild Þjóðleikhússins og fjórir stuðningsmenn ljóðsins hafa tekið höndum saman um að halda nokkrar ljóðaskemmtanir á þriðjudagskvöldum í Leikhúskjallaranum næstu vikurnar.

Sister Act í Garðabæ

Leikfélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ kynnir söngleikinn Sister Act, eftir samnefndri kvikmynd (Sister Act II) sem naut mikilla vinsælda snemma á tíunda áratug síðustu aldar.

Nafnlaust en „ljótt“ fullorðinsverk að fæðast

í Hjáleigunni í Kópavogi svitnar þessa dagana hópur leikara ásamt leiðbeinendum sínum Oddi Bjarna Þorkelssyni leikstjóra og Margrétar Sverrisdóttur leikkonu. Unnið er að sýningu sem vonandi verður á fjöl komin í lok mars og eru efnistök blóðugt háð og óhuggulegt grín í garð taumlausrar útlitsdýrkunar. Samsæriskenningar spretta og andspyrnuhreyfingar verða til og allt kristallast það […]

Æfingar hefjast á Fiskum á þurru landi

Leikfélag Hólmavíkur hefur hafið æfingar á leikritinu Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen. Leikstjóri er Kolbrún Erna Pétursdóttir. Fjórir leikarar eru í sýningunni, tveir karlmenn og tvær konur.  Fyrsti samlestur var 1. mars sl. og frumsýning áætluð eftir sex vikur eða á Skírdag 13. apríl.  Eins og alltaf hjá leikfélaginu verða nokkrar sýningar á […]

Forsala hafin á Litlu hryllingsbúðina

Leikfélag Akureyrar hefur hafið er forsölu á söngleikinn Litla hryllingsbúðin sem frumsýndur verður 24. mars n.k. Boðið er upp á sérstakt tilboð á fyrstu 1000 miðunum sem seljast í forsölu, því þá fylgir geisladiskurinn með tónlistinni úr sýningunni með í kaupbæti.   Innan skamms kemur út geisladiskur með tónlistinni úr verkinu. Diskurinn hefur að geyma […]

Æfingar hafnar á Vælukjóa

Leikfélag Reyðarfjarðar æfir nú í samvinnu við Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað söngleikinn Vælukjói (Cry baby). Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Æfingar hófust upp úr miðjum janúar og frumsýning verður 31 mars. Þetta er samstarfsverkefni er byggt upp og í kringum Listahátíðina Sprotann sem Verkmenntaskólinn stendur fyrir í sömu viku og frumsýnt verður. Leikarar í verkinu koma […]

Pétur Gautur frumsýndur í Kassanum

Laugardaginn 4. mars verður Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen frumsýndur í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri er Baltasar Kormákur en með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur er vígslusýning Kassans, sem er nýtt svið í Þjóðleikhúsinu.