Lokasýningar á Pókók
Að undanförnu hefur Halaleikhópurinn verið að sýna Pókók eftir Jökul Jakobsson. Aðsókn hefur verið góð og sýningin fengið góða dóma. Nú er komið að lokasýningum og verða þær laugardaginn 13. maí og sunnudaginn 14. maí kl. 20.00.
Stefnumót við Pinter
Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík standa fyrir málþingi um Harold Pinter sunnudaginn 14. maí kl. 14 á Stóra sviði Þjóðleikhússins í tengslum við frumsýningu Þjóðleikhússins á leikriti Pinters, Fagnaði. Michael Billington, sem er einn þekktasti leiklistargagnrýnandi Breta og höfundur ævisögu Pinters, flytur framsöguerindi.
Leikklúbburinn Saga frumsýnir Núna
Miðvikudaginn 10. maí frumsýnir Leikklúbburinn Saga nýtt verk sem hefur hlotið nafnið Núna. Verkið er skrifað af hópnum í samvinnu við leikstjórann Guðjón Þorstein Pálmarsson og byggir á sögum úr lífi þeirra sjálfra. Sýnt er í Útihúsinu, Hafnarstræti 73.
Allt í blóði ALF
Leikfélag Kópavogs frumsýndi á dögunum gamansplatterinn ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins í Hjáleigunni í Kópavogi. Verkið er eftir Guðjón Þorstein Pálmarsson og Odd Bjarna Þorkelsson sem jafnframt er leikstjóri. Lárus Vilhjálmsson brá sér í Kópavoginn.
Ekki drepa annarra manna hesta – Litli Kláus og Stóri Kláus
Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýndi leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar. Leikritið er eftir Lisu Tetzner og byggir á sögu H.C. Andersen. Sesselja Traustadóttir brá sér á sýninguna.
Þjóðleikhúsið og Icelandair gera samstarfssamning
Þjóðleikhúsið og Icelandair undirrituðu föstudaginn 5. maí samstarfssamning. Markmið hans er að auðvelda Þjóðleikhúsinu að fara til útlanda með íslenska leiklist. Leikför með Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur til Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn markar upphaf samstarfsins. Ráðgerðar eru tvær sýningar dagana 30. og 31. maí.
Hugleikur brestur í söng í Þjóðleikhúskjallaranum
Hugleikur rifjar upp tónlistina úr leikritum sínum í síðustu Þetta mánaðarlega-dagskrá sinni í Þjóðleikhúskjallaranum þetta vorið sem verður þriðjudags- og fimmtudagskvöld, 9. og 11. maí.
Þuríður og Kambsránið í Þjóðleikhúsið
Dómnefnd Þjóðleikhússins tilkynnti val á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2005-2006 á aðalfundi BÍL sem haldinn var á Seltjarnarnesi um helgina. Sýning Leikfélags Selfoss, Þuríður og Kambsránið, varð fyrir valinu og verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins 11. júní nk. Frekari upplýsingar um sýninguna er að finna á vef Þjóðleikhússins.
Leikfélag Hólmavíkur sýnir í Mosfellsbæ
Sunnudaginn 7. maí sýnir Leikfélag Hólmavíkur uppsetningu sína á Fiskum á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Kolbrúnar Ernu Pétursdóttur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Sýningin hefst hún klukkan 19:00. Miðapantanir og uppl. eru í síma 865-3838 eftir kl. 16:00 sunnudaginn 7. maí.
Enn af Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu
Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúning Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalagins í Borgarleikhúsinu. Hér er smá uppfærsla á upplýsingum um hátíðina…
Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður! frumsýnt
Fimmtudagskvöldið 4. maí verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps.
Stuttverkahátíðin Margt smátt í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 5. maí kl. 19:00 verður stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, haldin á Litla sviði Borgaleikhússins. Þar sýna átta aðildarfélög Bandalagsins 13 stuttverk sem vel flest eru samin af leikskáldum innan raða þess.
Aukasýningar á Hungri
Aukasýningar verða á Hungri eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem leikhópurinn Fimbulvetur sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið. Tvær stúlkur með anorexíu ákveða að fara í hættulegan leik, og offitusjúklingur með brotna sjálfsmynd finnur sér loks maka sem dýrkar hvern einasta blett á henni.Hungur er sálfræðitryllir um stjórnun, ást, kynlíf, fegurð og leit að fullkomnun.
Áhugaleiksýning ársins
Nú nálgast óðum eitt dramatískasta augnablik leikársins hjá áhugaleikfélögunum. Um næstu helgi verður tilkynnt um val Þjóðleikhússins á áhugaleiksýningu ársins. Að venju verður þetta gert á hátíðarkvöldverði Bandalagsþings, sem að þessu sinni verður í Félagsheimili Seltjarnarness laugardagskvöldið 6. maí nk.
Fjórar frumsýningar á einum degi í Borgarleikhúsinu
Sunnudaginn 30. apríl, verða frumsýndar hvorki fleiri né færri en fjórar sýningar í Borgarleikhúsinu. Þessar sýningar hafa reyndar allar verið sýndar við miklar vinsældir á öðrum vettvangi en þetta eru Fullkomið brúðkaup, Mike Attack, Tenórinn og Typpatal. Sýningar þessar eru hluti af Hláturhátíðinni sem standa mun yfir allan maí og mun Borgarleikhúsið verða iðandi af […]
Aðalfundur 6. og 7. maí 2006
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006.
Með vífið í lúkunum á Sauðárkróki
Sunnudaginn 30. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann hefur áður leikstýrt þremur leikritum fyrir Leikfélag Sauðárkróks, Bláa hnettinum, Ertu hálf-dán? og Síldin kemur og síldin fer.
Síðustu sýningar á Glæpur gegn diskóinu
Aðeins eru tvær sýningar eftir Glæpur gegn diskóinu eftir Gary Owen sem Steypibaðsfélagið Stútur hefur að undanförnu sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sú fyrri er föstudaginn 28. apríl en sú seinni föstudaginn 5. maí.
Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006
Norræna leikhúsráðið (Nordisk Teaterunion) ákvað á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 23. apríl að Kari Hotakainen frá Finnlandi hlyti norrænu leikskáldaverðlaunin fyrir leikritið Punahukka (Border Crossings/Arvelige Faktorer).
Litli Kláus og Stóri Kláus á Seltjarnarnesi
Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl kl. 14:00. Þetta er fjörugt fjölskydustykki fyrir unga jafnt sem aldna, eftir Lisu Tetzner byggt á sögu H.C.Andersen. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson.
Systur sýna dramatísk tilþrif – Systur
Hugleikur frumsýndi nýskeð í Möguleikhúsinu leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar. Lárus Vilhjálmsson brá sér á sýningu og greinir frá upplifun sinni.
Leikskáldið Edward Bond kemur til Íslands
Breska leikskáldið Edward Bond er gestur Félags leikskálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (Masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 29. apríl kl. 10-16. Allir áhugamenn um leikhús og leikritun eru velkomnir á þennan einstaka viðburð. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og vinna með leikurum í atriðum úr tveimur leikrita […]
Síðasta sýning á Rítu í Iðnó
Laugardaginn 29. apríl verður síðasta sýning leikhópsins Kláusar á Rítu eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó sem sýnt hefur verið undanfarin rúman mánuð við ágætar undirtektir áhorfenda. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson. Um hönnun og leikmynd verksins […]
Leikfélag Kópavogs frumsýnir ALF
Fimmtudaginn 27. apríl frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikverkið ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi.
Leikfélag Mosfellssveitar á Hvammstanga
Laugardaginn 29. apríl klukkan 17:00 mun Leikfélag Mosfellssveitar sýna á Hvammstanga leikritið Í beinni eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur. Samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni. Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó […]
Þetta mánaðarlega Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum
Fimmtudaginn 27. og sunnudaginn 30. apríl verður Hugleikur með sitt mánaðarlega prógramm í Þjóðleikhúskjallararnum. Í þetta skiptið er aðeins eitt verk á dagskrá en það er leikrit í tveimur þáttum er nefnist Lán í óláni og er eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjórar eru Sigurður H. Pálsson og Rúnar Lund.
Sérkjör fyrir systur á Systur
Leikfélagið Hugleikur sýnir þessa dagana leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu við Hlemm. Verkið fjallar um dramatíska endurfundi þriggja systra sem eiga skrautlega fortíð sem setur sterkan svip á samskipti þeirra og lífshætti. Verkið hefur fengið sterkar og góðar viðtökur, ekki síst hjá systrum, sem margar þykjast kannast við ýmislegt í samskiptum persónanna úr […]
Söngleikjanámskeið í Færeyjum
Ertu 18-25 ára og hefur áhuga á söngleikjum? Ef svarið er já, þá býður Vest-norræna ungmennaráðið til söngleikjanámskeiðs í Færeyjum í sumar.
Fiskar á þurru landi á Hólmavík
Leikritið Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen sem Leikfélag Hólmavíkur hefur verið að æfa undanfarnar vikur var frumsýnt um páskana.
Óperan Mærþöll frumflutt
Nemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík frumsýna laugardaginn 22. apríl óperuna Mærþöll. Höfundur tónlistar og texta er Þórunn Guðmundsdóttir, leikstjóri er Hrefna Friðriksdóttirr og hljómsveitarstjóri Kjartan Óskarsson.
Þrek og tár í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir, síðasta vetrardag, 19 apríl leikritið Þrek og Tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Jens Sigurðsson er leikstjóri og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa. 2. sýning verður 21. apríl og rennur aðgangseyrir þeirrar sýningar til hjálparsveitar skáta í Hveragerði.
The Big Cry í Kassanum
Margmiðlunar-, söng- og leiksýningin The Big Cry verður sýnd í Kassanum miðvikudaginn 12. apríl nk. kl. 21:00. Verkið, sem er gestasýning í Þjóðleikhúsinu, verður einungis sýnt þrisvar sinnum. Höfundur og flytjandi er Margrét Sigurðardóttir.
Sirkusskóli á Seyðisfirði
Fyrirhugað er að halda 10 daga sirkusskóla með nýsirkustækni fyrir leikara og annað áhugafólk eldri en 18 ára á Seyðisfirði dagana 5. – 14. júlí, ef áhugi er fyrir hendi. Leiðbeinendurnir eru faglærðir sirkus listamenn og kennarar, útskrifuð frá skóla Cirkus Cirkör sem margir kannast við. Þau hafa tekið þátt í fjölmörgum sirkussýningum og kennt […]
Leiklistarskóli BÍL 2006 – Skráningafrestur framlengdur
Vegna páskahátíðarinnar og annarra frídaga nú um miðbik aprílmánaðar hefur frestur til að skrá sig á námskeið Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga verið framlegndur til 10. maí. Enn eru laus pláss á framhaldsnámskeið í leikstjórn (Sigrún Valbergsdóttir) og sérnámskeið fyrir leikara (Steinunn Knútsdóttir). Sjá nánar hér.
Ekkert að óttast – Anímanína
Stúdentaleikhúsið frumsýndi í síðustu viku frumsamið verk sem þau kalla Anímanínu. Leikstjóri verksins er Víkingur Kristjánsson og sýnt er í Loftkastalanum. Ármann Guðmundsson brá sér á frumsýningu.
Hugleikur frumsýnir Systur
Miðvikudaginn 12. apríl frumsýnir Hugleikur leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason og hlutverkin eru höndum nokkurra af öflugustu leikkonum félagsins, þær Hulda B. Hákonardóttir, Júlía Hannam, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir. Systur verða sýndar í Möguleikhúsinu við Hlemm.
Fjöður í hattinn – Gauragangur
Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við Framhalds- og Tónlistarskóla staðarins hefur undanfarið sýnt söngleikinn Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í lekstjórn Harðar Sigurðarsonar. Jón Garðar Bjarnason brá sér á sýningu og skrifaði um upplifun sína í fréttablaðið Eystrahorn. Skrif Jóns Bjarna eru birt hér á Leiklistarvefnum með góðfúslegu leyfi.
Þröngt leika sáttir, Hodja frá Pjort
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Verkið er byggt á sögu eftir Ole Lund Kirkergaard en leikgerðin er eftir Ingvar Bjarnason og Þórunni Grétu Sigurðardóttur. Sesselja Traustadóttir brá sér í gamla Lækjarskóla og horfði á verkið gagnrýnum augum.
Sýningar á Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu
Nú er orðið ljóst hvaða leikfélög verða með sýningar á Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldin verður í Borgarleikhúsinu 5. maí nk. Átta leikfélög verða með alls 14 sýningar, vel flest samin og leikstýrð af meðlimum félagana.
Sveyk – Skopleg stríðsádeila í Brautarholti
Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði sýnir um þessar mundir verkið Sveyk – Skopleg stríðsádeila eftir Bertold Brecht í leikgerð og leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Þýðinguna gerðu Þorsteinn Þorsteinsson og Þórarinn Eldjárn. Sýnt er í félagsheimilinu Brautartungu í Lundareykjadal og hefjast sýningar kl. 21:00.
