Virkjunin eftir Elfriede Jelinek í Þjóðleikhúsinu

Frumsýning á Virkjuninni eftir Nóbelsverðlaunahafann Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjánsdóttur verður á Stóra sviði Þjóðleikhússins þann 3. mars nk. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.

Blessað barnalán í Biskupstungum

Föstudaginn 24. febrúar frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna leikritið  Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í Aratungu. Frumsýningin hefst klukkan 21:00. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.

Sakamál á svið!

Borgarleikhúsið efnir til samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit. Opinn umræðufundur, um íslensk sakamál og íslenska dægurmenningu, verður haldin í tengslum við Samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit sem Borgarleikhúsið stendur fyrir um þessar mundir. Fundurinn verður haldinn Þriðjudagskvöld 28.febrúar kl.20 í forsal Borgarleikhússins og er opinn öllum. Af hverju eru sakamál svona vinsæl á íslandi í dag? Eru […]

Kjallarakvöld með Kurt Weill

Á sunnudagskvöldið, lokakvöldi Vetrarhátíðar í Reykjavík, verður boðið upp á dagskrá í Leikhúskjallaranum þar sem tónlist Kurt Weill verður í fyrirrúmi. Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir Túskildingsóperuna eftir þá Bertolt Brecht og Kurt Weill. Tónlistin í verkinu er leikshúsgestum og tónlistarunnendum að góðu kunn. Í Túskildingsóperunni birtast öll helstu höfundareinkenni Kurts Weills. Þótt sterkra áhrifa gæti […]

Kardemommubærinn frumsýndur í Freyvangi

Þann 25. febrúar næstkomandi verður frumsýnt í Freyvangi leikverkið Kardemommubærinn. Þetta þekkta leikrit kannast flestir ef ekki allir við og persónurnar, er Torbjörn Egner skapaði af sinni alkunnu snilld, eru góðkunningjar barna jafnt sem fullorðinna um heim allan.

10 aukasýningar á Forðist okkur

Hin umtalaða leiksýning Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson verður tekin til sýningar að nýju á Litla sviði Borgarleikhússins í mars. Sýningin fékk afar góðar viðtökur í haust jafnt hjá gagnrýnendum sem og almenningi og komust færri að en vildu.  Forðist okkur er samstarfsverkefni CommonNonsense og Nemendaleikhússins.  

Fimbulvetur frumsýnir Hungur

Leikritið Hungur eftir Þórdísi Elvu Þovaldsdóttur Bachmann verður frumsýnt þann 18. febrúar í Borgarleikhúsinu. Átraskanir eru vágestur sem vert er að beina kastljósum að. Rop, prump, garnagaul og önnur búkhljóð í aukahlutverki.

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í beinni

Föstudaginn 17. febrúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu og hefst sýningin klukkan 20:00. Verkið heitir Í beinni og er eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni.

Papar í útvarpsleikhúsinu

Þau ykkar sem eru ekki enn sofnuð eða hafið fleygt ykkur í sófann til að horfa á  Desperate Housewives, hafa kannski áhuga á að vita að í útvarpinu á  Rás 1, fimmt. 16 febrúar  kl.22.20, verður flutt áhugavert leikrit eftir írska leikskáldið Brian FitzGibbon, sem búsettur er hér á landi.  Verkið, sem heitir PAPAR, er […]

Leiklistarhátíð NEATA í Færeyjum

Dagana 3. til 8. ágúst 2006 heldur Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið sína fjórðu leiklistarhátíð, og nú í Þórshöfn í Færeyjum. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum. Umsóknarfrestur er til 15. mars.

Leikdeild UMF Biskups- tungna æfir Blessað barnalán

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Blessað Barnalán eftir Kjartan Ragnarsson hjá Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna.  Leikstjórn er í höndum Gunnar Björns Guðmundssonar en hann leikstýrði einnig síðasta verki leikdeildarinnar, Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvasson, sem fékk mjög góða dóma og mikla aðsókn.   Blessað barnalán segir frá Þorgerði, eldri konu […]

Maríubjallan frumsýnd hjá LA

Fimmtudaginn 16. febrúar verður leikritið Maríubjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar. Maríubjallan er kraftmikið og magnað nútímaverk eftir Vassily Sigarev. Leikritið er sýnt í Rýminu sem er nýtt leikhús Leikfélags Akureyrar sem kemur til viðbótar við starfsemi leikhússins í Samkomuhúsinu.  Rýmið, sem er til húsa að Hafnarstræti 73, er svartur kassi og þar […]

Glæpir og góðverk

Nú eru að hefjast sýningar hjá leikfélaginu Snúður og Snælda á leikritinu „Glæpir og Góðverk” sem er gamansamur krimmi. Leikritið er byggt á verki Anton Delmer, Don´t utter a note, þýtt og staðfært af Sigrúnu Valbergsdóttur. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. Frumsýnt verður sunnudaginn 12. feb. kl. 14.00.  Sýningar verða alla sunnudaga og miðvikudaga kl. 14.00 […]

Stuttverkahátíðin Margt smátt – Opið fyrir umsóknir

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu 5. maí 2006 í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Hátíðin er opin öllum aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfélaga. Umsóknareyðublöð eru nú tiltæk hér vefnum.

Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Leikritið um Ronju Ræningjadóttur verður frumsýnt á Stóra sviði  Borgarleikhússins næstkomandi sunnudag, 12. febrúar.  Sagan um Ronju er eftir Astrid Lindgren og segir frá ræningjadótturinni sem býr með foreldrum sínum og ræningjahópi í Matthíasarskógi. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir, sem fór með hlutverk Ronju þegar leikritið var síðast sýnt í Borgarleikhúsinu, fyrir tólf árum síðan.

Æfingar hafnar á Átta konum

Í Þjóðleikhúsinu hófust æfingar nú í vikunni á leikritinu Átta konur eftir Robert Thomas. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en verkið verður frumsýnt á Stóra sviðinu í lok mars. Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. […]

Þetta mánaðarlega í Þjóðleikhúskjallaranum

Hugleikur verður með febrúarútgáfu sína af Þessu mánaðarlega í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudagskvöldið, 8. febrúar. Í þetta skiptið er dagskráin að mestu á þjóðlegum nótum, í tilefni þorrans, en þjóðararfurinn hefur reyndar lengi verið mikilvægt viðfangsefni félagsins, og skilgreiningin á því bísna víð.

Harold Pinter á Stóra sviði Þjóðleikhússins í vor

Af óviðráðanlegum orsökum getur ekki orðið af sýningu leikstjórans og myndlistarmannsins Christophs Schlingensiefs, Ragnarökum 2010, í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í vor. Því hefur verið ákveðið að taka til sýningar nýjasta verk Harolds Pinters, Celebration. Undirbúningur fyrir Ragnarök 2010 hefur staðið í um hálft ár, en í síðustu viku tilkynnti Schlingensief leikhúsinu að af samvinnu gæti […]

Tíu þúsundasti gesturinn

Leiksýningin Fullkomið brúðkaup hefur notið fádæma vinsælda frá því hún var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í lok október. Troðfullt hefur verið á allar sýningar og til að mæta eftirspurn hefur fjölda aukasýninga verið bætt við sem allar hafa selst upp jafn óðum. Nú á laugardag mun tíu þúsundasti gesturinn sjá sýninguna sem er orðin sú […]

Margt smátt í Borgarleikhúsinu

Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, verður haldin í Borgarleikhúsinu föstudaginn 5. maí nk. kl. 20:00 í tengslum við aðalfund Bandalagsins sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí.

Öskubuska frumsýnd 5. febrúar

Íslenska Óperan frumsýnir sunnudaginn 5. febrúar Öskubusku eftir ítalska tónskáldið Gioacchino Rossini við texta  eftir Jacopo Ferretti. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Leikstjóri er Paul Suter og hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky.

18 sýningar í febrúar

Eldhús eftir máli, leikgerð Völu Þórsdóttur á sex smásögum Svövu Jakobsdóttur, hefur heldur betur  fengið góðar viðtökur hjá áhorfendum. Nú hefur verið ákveðið að framlengja sýningartímabil verksins út febrúar og hafa nú hvorki fleiri né færri en 18 sýningar verið settar í sölu en uppselt er nú þegar á margar þeirra. Að öllum líkindum er […]

Nýr söngleikur í Versló

Nemendamótssöngleikur Verslunarskóla Íslands, Á tjá og tundri verður frumsýndur þann 2. febrúar n.k.. Á undanförnum árum hafa þessir söngleikir skapað sér varanlegan sess í leikhúslífi borgarinnar og hvað eftir annað slegið í gegn. Nú hafa Verslókrakkarnir fengið aftur til liðs við sig Gunnar Helgason en hann gerði þrjár af vinsælustu Verslósýningunum fyrir nokkrum árum; Thriller, […]

Nemendaóperan sýnir Töfraflautuna

Í tilefni af því að 250 ár eru liðin frá  fæðingu Wolfgangs Amadeusar Mozart 27. jan. 2006. sýnir Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík óperu hans Töfraflautuna í Iðnó í Reykjavík. Frumsýning er 27. jan. kl. 20

Æfingar hafnar á Hodja frá Pjort

Leikfélag Hafnarfjarðar vinnur nú að uppsetningu á barnaleikritinu Hodja fra Pjort eftir danska snillinginn Ole Lund Kirkegaard. Það eru Þórunn Gréta Sigurðardóttir og Ingvar Bjarnason sem vinna leikgerðina í samvinnu við leikstjórann Ármann Guðmundsson og leikhópinn. Um búninga og gerfi sér Dýrleif Jónsdóttir. Fjórtán leikarar taka þátt í sýningunni. Frumsýnt verður um miðjan mars í […]

Dúrra fær Þorrann

Á Þorrablóti Egilstaðabúa þann 20. janúar sl. veitti Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Kristrúnu „Dúrru“ Jónsdóttur Þorrann sem er farandgripur sem ár hvert er veittur einhverjum sem unnið hefur samfélaginu ómælt gagn. Þetta er í 12. skipti sem Þorrinn er veittur. Viðurkenninguna fékk Dúrra að sjálfsögðu fyrir störf sín með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs en hún hefur […]

Aukasýning á Hinni endanlegu hamingju

Leikfélag Hafnarfjarðar gefur nú einn lokamöguleika á að sjá Hina endanlegu hamingju eftir Lárus Húnfjörð með því að hafa aukasýningu næstkomandi sunnudag, 29. janúar, kl. 20:00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Miðaverð er kr. 1000,- en miðapantanir eru í síma 848 0475.

Naglinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 21. janúar verður Naglinn, broslegur harmleikur um karlmennskuna, eftir Jón Gnarr verður frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð en leikendur eru Gunnar Sigurðsson og Jón Stefán Kristjánsson. Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins 540 gólf og Borgarleikhússins.

Æfingar hafnar á Þuríði og Kambsráninu

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á sögulegu leikriti, „Þuríður og Kambsránið“, eftir Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Leikritið segir frá hinu fræga Kambsráni í Flóa árið 1827 og hvernig Þuríður formaður Einarsdóttir átti sinn þátt í rannsókn málsins. Og eins og margir vita þá var hún Þuríður þessi mikil baráttukona í hörðum karlaheimi. Stefnt er á að […]

Æfingar hafnar á Maríubjöllunni

Hjá Leikfélagi Akureyrar eru æfingar hafnar á Maríubjöllunni eftir Vassily Sigarev. Hér er um að ræða kraftmikið og átakanlegt nútímaverk sem vakið hefur mikla athygli þar sem það hefur verið sýnt. Leiksýningin verður fyrsta uppsetningin í nýju leikrými Leikfélags Akureyrar, sem enn hefur ekki hlotið nafn. Frumsýning verður 17. febrúar.  Maríubjallan gerist á einu kvöldi. […]

LA stendur fyrir leiklistarnámskeiðum

Komdu að leika! – Þriggja vikna leiklistarnámskeið LA stendur fyrir röð leiklistarnámskeiða í lok janúar og byrjun febrúar. Farið verður í undirstöðuatriði leiklistar en námskeiðið er byggt upp á leikjum, æfingum,spuna og trúðatækni.  Námskeiðin miðast að að virkja og efla ímyndunaraflið,  læra að nýta sér leynda hæfileika , finna ný sjónarhorn á daglegu amstri og […]

Mindcamp í Hafnarfjarðarleikhúsinu

Leikfélagið Sokkabandið frumsýndi þann 15. janúar sl. leikritið Mindcamp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Það eru þeir Egill Heiðar Anton Pálsson og Jón Atli Jónasson sem leiða saman hesta sína í annað skipti í Hafnarfjarðarleikhúsinu með verkinu Mindcamp en Egill leikstýrði verki Jóns Atla, Rambo 7 sem sýnt var á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins sl. vor. Þessi sýning er unnin […]

Námskeið um Öskubusku og Rossini

Öskubuska og Rossini eru meginviðfangsefni næsta námskeiðs sem Vinafélag Íslensku óperunnar og Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir í sameiningu og hefst 7. febrúar nk. Skráning á námskeiðið er hafin og er skráningarfrestur til og með 20. janúar. Þrjú fyrstu kvöld námskeiðsins verður fjallað um Rossini og Öskubusku og einstakir hlutar óperunnar teknir til nánari skoðunar, […]

Glæpur gegn diskóinu frumsýnt

Steypibaðsfélagið Stútur í samstarfi við Vesturport og Borgarleikhúsið frumsýnir fimmtudaginn 12. janúar leikritið Glæpur gegn diskóinu á Nýja sviði Borgarleikhússins, að leikskáldinu viðstöddu. Höfundur verksins, Gary Owen, þykir eitt af áhugaverðustu og bestu leikskáldum Breta í dag. Leikstjóri er Agnar Jón Egilsson.

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Carmen

Laugardaginn 14. janúar verður söngleikurinn Carmen frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Söngleikurinn Carmen er samstarfsverkefni Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins, þar sem óperunni eftir Bizet er snúið í söngleik um ástir, afbrýði og hrikaleg örlög, sem ekki verða umflúin.

Æfingar hefjast hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Fyrsti samlestur á nýju barnaleikriti sem Leikfélag Hafnarfjarðar hyggst setja á fjalirnar í mars nk. verður haldinn í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar, í gamla Lækjarskóla við Skólabraut í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00. Leikstjóri verksins er Ármann Guðmundsson. Mæting er öllum opinn og vill leikfélagið hvetja alla þá sem áhuga hafa á leiklist, tónlist, búningagerð, […]

Íslenska Óperan setur upp Öskubusku

Æfingar eru hafnar á Öskubusku eftir Rossini, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni 5. febrúar nk. Með aðalhlutverkin fara þau Sesselja Kristjánsdóttir, Garðar Thór Cortes, Bergþór Pálsson, Davíð Ólafsson, Hlín Pétursdóttir, Anna Margrét Óskarsdóttir og Einar Th. Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri er Paul Suter, sviðs- og búningahönnuður er Season Chiu og lýsingu hannar […]

Leiklistarspjallið opnað

Ákveðið hefur verið að opna Leiklistarspjallið að nýju óskráðum notendum. Þegar skipt var um vefumsjónarkerfi síðastliðið haust var ákveðið að krefjast skráningar notenda. Þessi breyting hefur því miður gert það að verkum að þátttaka í spjallinu hefur stórminnkað og því hefur eins og  áður er sagt, verið ákveðið að hafa það öllum opið. Eftir sem […]

Tíu ára vampýruafmæli

Janúarverkefni Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum er gamanóperan Bíbí og blakan eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið segir frá hinni ungu og fögru Bíbí sem bíður ein eftir að ástin sæki hana heim, en mál hennar vandast þegar tvo gesti ber að garði sömu nóttina: töfrandi en dularfullan rúmenskan nýbúa og ábúðarmikinn vampýruveiðara […]

Sunnudagskvöld með Svövu

Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur, verða fimm Sunnudagskvöld með Svövu þar sem boðið verður upp á fyrirlestur, kvöldverð, leiksýningu og umræður. Þessi kvöld eru í samvinnu við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í kynjafræðum.