Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00.
Tveir tvöfaldir segir frá stjórnmálamanni nokkrum og aðstoðarmanni hans. Þeir skrá sig inn á hótel þar sem stjórnmálamaðurinn hyggst eiga huggulega nótt með viðhaldi sínu en þegar eiginkona hans mætir á svæðið lendir það á aðstoðarmanninum að bjarga málunum. Ray Cooney er einn þekktasti farsahöfundur samtímans, skrifaði m.a. hið geysivinæla verk Með vífið í lúkunum og nú standa yfir í Borgarleikhúsinu æfingar á farsa eftir hann sem hlotið hefur nafnið Viltu finna milljón?
Þetta er í fimmta skipti sem María Sigurðardóttir leikstýrir hjá leikfélaginu, áður hefur hún leikstýrt Ofurefli (86-87), Gaukshreiðrinu (91-92), Tobacco Road (94-95) og Þjóni í súpunni (03-04). Með helstu hlutverk í Tveimur tvöföldum fara Hjálmar Bogi Hafliðason, Guðný Þorgeirsdóttir og Þorkell Björnsson. Leikmynd hönnuðu Sveinbjörn Magnússon og Sigurður Sigurðsson í samvinnu við leikstjóra og um lýsingu sáu Jón Arnkelsson og Ingvar Erlingsson.
Þar sem ekki reynist unnt að sýna nema í apríl verður verkið sýnt óvenju þétt og ekki eftir neinu að bíða með að drífa sig í gamla Samkomuhúsið á Húsavík!
