Kómedíuleikhúsið hefur gefið út nýja vestfirska leiksögubók, Leiklist og list á Þingeyri. Höfundur bókarinnar er Elfar Logi Hannesson, leikari, en hann ritaði einmitt Leiklist á Bíldudal sem leikhúsið gaf út árið 2015. Bókin fæst nú á sérstöku hátíðarverði hjá útgefanda á 2.900.- krónur. Pantanir berist á netfangið komedia@komedia.is
Í þessari nýju leiklistar og listabók rekur Ellfar Logi Hannesson á fróðlegan og ferskan hátt hina einstöku leiklistar- og listasögu Þingeyrar. Fer reyndar víðar því allur Dýrafjörðurinn er undir enda falla vötn öll þangað hvort heldur það er í listinni eða lífinu. Leiklistarsagan er sögð allt frá landnámi Dýrafjarðar til nútímans. Víða er leitað fanga í listasögu svæðisins enda stendur listin á gömlum merg á öllum sviðum listanna.
Elfar Logi hefur áður ritað leiklistarsögu Bíldudals enda hefur hann að markmiði að skrá leiklistarsögu allra þorpa og bæja á Vestfjörðum. Í þessu riti bætir hann um betur með því að rekja einnig listasögu Þingeyrar. Leiklist og list á Þingeyri er önnur bókin í þessari vestfirsku leiklistarbókaröð Kómedíuleikhússins.
Í lokin er svo gaman að segja frá því að Elfar Logi, sem hefur nú frekar rólegt að gera þessi misserin sem leikari einsog allir hans kollegar, er þegar byrjaður á næstu leiksögubók. Að þessu sinni er sögusviðið Bolungarvík. Nú er bara spurning hvort önnur fimm ár líði á milli leiksögubóka eða kannski hinn kómíski tími stytti það met.