Á morgun, þriðjudaginn 20. janúar kl. 10, verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á nýju verki eftir Birgi Sigurðsson. Er ekki nóg að elska? er raunsæ og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem má ekki koma upp á yfirborðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir þar úrvalsliði leikara en Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk og tónlist er í höndum Björns Jörundar.
Opnir samlestrar eru liður í að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Allir velkomnir og kaffi á könnunni.Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.
SUM SVIK ERU SVO STÓR AÐ ÞAU VERÐA EKKI GRAFIN
Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í erfðaskránni.
Birgir Sigurðsson er eitt fremsta núlifandi leikskáld okkar. Fyrsta leikrit hans, Pétur og Rúna, var sett á svið árið 1973. Leikritið vann til fyrstu verðlauna, ásamt Kertalogi Jökuls Jakobssonar, í leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur í tilefni af 75 ára afmæli félagsins árið 1972.
Dagur vonar var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1987 og 2007 og naut gífurlegra vinsælda í bæði skiptin. Leikritið var einnig tekið upp fyrir sjónvarp og tilnefnt til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1989.
Aðstandendur Höfundur: Birgir Sigurðsson | leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason |Tónlist: Björn Jörundur Friðbjörnsson | Leikmynd: Vytautas Narbutas | búningar: Stefanía Adolfsdóttir | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson | Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Guðjón Davíð Karlsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson.