Blóðpúður er litlaust duft sem borið er á húð og þegar það er bleytt kemur blóðeffektinn fram. Púðrið er þvínæst ósýnilegt áður en það blotnar. Hentar vel þar sem þörf er á að búa til blæðandi sár fyrir framan áhorfendur, hvort sem er á sviði eða í kvikmynd. Blóðpúðrið fæst í tveimur stærðum, 10 gr. dós á 652.- og 100 gr. dós á 3.211.-.

Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is

Gott er að bera púðrið á t.d. með púðurbursta, sjá mynd. Áhaldið eða vopnið sem nota á til að „særa/skera“ leikarann þarf að vera blautt, t.d. þakið geli eða glyseríni blandað vatni. Þegar vopnið snertir blóðbúðrið sprettur „blóðið“ fram.

Mjög erfitt eða jafnvel ómögulegt er að ná blóðlitnum út fataefni. Gott er að bera vel af farða á húð áður en duftið er borið á svo betra sé að ná því af.

Nánari upplýsingar go innihaldslýsing: https://uk.kryolan.com/product/blood-powder-100-g#dark

 

 

 

blodpudur2blodpudur3blodpudur4blodpudur5