Þess má ennfremur geta að rúmur áratugur er síðan Kristinn Sigmundsson kom síðast fram í óperuhlutverki hér á landi, en hann er einn þekktasti tónlistarmaður Íslands á erlendum vettvangi og kemur reglulega fram á fjölum virtustu óperuhúsum heims. Aðrir söngvarar í sýningunni í smærri hlutverkum eru Viðar Gunnarsson, Guðjón Óskarsson, Erla Björg Káradóttir, Örvar Már Kristinsson og Hallveig Rúnarsdóttir, auk Kórs Íslensku óperunnar.
Leikstjóri sýningarinnar er Þórhildur Þorleifsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur er Þórunn S. Þorgrímsdóttir og lýsingu hannar Páll Ragnarsson, en hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Óperan Don Carlo hefur aldrei áður verið sviðssett hér á landi, en hún er meðal þekktustu verka ítalska óperutónskáldsins Giuseppe Verdi. Óperan er byggð á samnefndu leikriti þýska leikskáldsins Friedrich Schiller og er sagan sjálf skálduð en persónur hennar voru uppi á sínum tíma. Óperan er með stærstu verkum Verdi og koma hátt í 200 manns að uppfærslu Íslensku óperunnar nú. Alls verða fjórar sýningar á Don Carlo – frumsýning verður næstkomandi laugardag 18. október, og síðan verða sýningar laugardaginn 25. október, laugardaginn 1. nóvember og laugardaginn 8. nóvember.