Leikhópurinn Talking Timber sýnir verkið „Answering Answering Machine í Rýminu laugardaginn 10. maí kl. 17:00. Hópurinn samanstendur af Josephine Kylén Collins (SÞ), Mikkel Rasmussen Hofplass (NO), Piet Gitz-Johansen (DK) og Hanna Reidmar (SÞ). Tónlistarmennirnir Jonny Collins Wartel og Georgia Wartel Collins sýna með þeim í þessu verki. Sýningin er flutt á ensku.
Talking Timber dvelur í vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar næstu fjórar vikurnar, sýning þeirra á sínu fyrsta verki Answering Answering Machine er upphafið af dvölinni en í Rýminu munu þau einnig vinna að nýju verki sem frumsýnt verður í Black Box leikhúsinu í Osló vorið 2015.
Bakgrunnur hópsins liggur í mismunandi listgreinum: innsetningum, sjónrænu leikhúsi, ljósmyndun og dansi. Að loknu námi í The Norwegian Theatre Academy í Fredrikstad í Noregi ákváðu þau að setja saman krafta sína og vinna að sérhæfðu tungumáli innan sviðslistanna. Talking Timber leitar stöðugt eftir nýjum leiðum í vinnu sinni bæði í innihaldi og byggingu. Þessa dagana eru þau að vinna að stefnumóti milli líkamlegrar tjáningar og rýmis þannig að úr verður sjónrænt tungumál þar sem hið kómíska og tragíska helst í hendur.
Sýningin fer fram á ensku, er 75 mínútur og án hlés. Miða á sýninguna er hægt að nálgast hjá Leikfélagi Akureyrar, sími 4 600 200 og á leikfelag.is