Útsynningur er frumsaminn gamanleikur eftir Hjálmar Arinbjarnarson í leikstjórn Jóhönnu S. Ingólfsdóttur sem Frevyangsleikhúsið frumsýnir þ. 9. október. Eingöngu verða sýningar í október.
Þetta er fyrsta verkið eftir Hjálmar, í fullri lengd, sem ratar á svið en Hjálmar er engu síður búin að skrifa fjöldann allan af stuttverkum sem hafa farið á hin ýmsu svið, þar á meðal í Borgarleikhúsinu. Hjálmar hefur verið viðriðinn áhugaleiklistina í rúma þrjá áratugi og tekið þátt í yfir tuttugu leikverkum hjá Freyvangsleikhúsinu.
Útsynningur er einnig fyrsta verk Jóhönnu í leikstjórn á verki í fullri lengd en hún hefur þó bæði skrifað og leikstýrt barnaverkum fyrir jólin síðustu fjögur ár hjá Freyvangsleikhúsinu.
Er útsynningur í búningsklefanum?
Verkið gerist í rauntíma og fjallar um leikhóp í áhugaleikfélagi út á landi sem er að setja upp leikritið Cloud Nine eftir Carroll Churchill. Við fáum ekki að sjá það leikrit heldur fáum við að fylgjast með leikurunum í búningsklefanum, þar sem þeir eru þegar þeir eru ekki á sviði. Verkið gerist því eingöngu í búningsklefanum og er ýmislegt sem gerist milli leikara þegar þeir eru ekki á sviði.
Mæta allir leikarar á réttum tíma til að fara á svið? Finnur sýningarstjórinn meiri klósettpappír? Hvað er málið með Geirmund húsvörð? Gleði, rifrildi, vinátta og ástir. Misgóð lykt, hávaði, drasl og misgott skipulag. Áhugaleikarar eru misjafnir eins og þeir eru margir og því fróðlegt að sjá hvað gerist þegar hópi af fólki er troðið saman í lítið rými og það neyðist til að vinna saman. Og svo það getur líka alveg riðlað dýnamikinni þegar einhver sem er ekki partur af hópnum birtist og vill fara að stjórnast í hvernig hlutunum er háttað.


