Leikfélagið Lauga hefur hlotið Menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar árið 2026. Í umsögn nefndarinnar segir:

Leikfélagið Lauga á mikið hrós skilið fyrir sitt ríkulega framlag til menningarmála í samfélaginu. Með metnaðarfullum, fjölbreyttum og skemmtilegum uppfærslum á leikverkum undanfarin ár hefur félagið auðgað menningarlíf í Snæfellsbæ og skapað ógleymanlegar stundir fyrir íbúa og aðra gesti.
Starf félagsins ber vitni um mikla elju, sköpunargáfu og ástríðu fyrir leiklist og er mikilvægur þáttur í að efla menningu og samfélagsanda í sveitarfélaginu.
Leikfélagið Lauga hefur sett upp fjórar leiksýningar á jafn mörgum árum og er hópurinn sannarlega vel að því komin að hljóta menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar árið 2026.

Sýningar:

  • Sex í sama rúmi (2022)
  • Bréf frá Önnu (2023)
  • Ævintýrabókin (2024)
  • Stelpuhelgi (2025)

Menningarnefnd Snæfellsbæjar veitti fulltrúum úr leikfélaginu viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Sjómannagarðinum í Ólafsvík á þjóðhátíðardegi Íslands, 17. júní.