Bransadagur sviðslistanna 2026 fer fram miðvikudaginn 20. maí frá 9:30 – 16:00 í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er helsti samkomustaður greinarinnar — dagur til að hittast, ræða og hugsa saman um sviðslistir á Íslandi.
Þema dagsins er „Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”. Hvaða sviðslistir viljum við skapa á þessum tímum og fyrir hvern eru þær? Hvernig stöndum við saman á óvissutímum? Boðið verður upp á dagskrá sem er uppfull af hugvekjandi erindum og áhugaverðum umræðum.

Sem dæmi má nefna nokkra dagskráliði:
„Opnunarávarp ráðherra”: Logi Einarsson menningar- , nýsköpunar- og háskólaráðherra opnar viðburðinn.
„Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar”: Gréta Kristín Ómarsdóttur á samtal við Benedict Andrews leikstjóra um stöðu og hlutverk sviðslista.
„Sviðslistir á landsvísu”: Bergur Þór Ingólfsson (Leikfélag Akureyrar), Greta Clough (Handbendi, Hvammstanga) og Finnur Bjarnason (óperustjóri Þjóðleikhússins) ræða um
áskoranir og tækifæri sviðslista á landsvísu.
„Hvað vitum við í raun um stöðu sviðslista á Íslandi?” Erla Rún Guðmundsdóttir (frá Rannsóknarsetri skapandi greina) fjallar um skort á gögnum og hvernig við getum betur
barist fyrir sviðslistabransanum með skýrum gögnum og rannsóknum.
„Staða nýútskrifaðra í bransanum”: Hvað tekur við að loknu námi í sviðslistum?.
„Í upphafi skal endinn skoða”: Sigríður Rósa Bjarnadóttir segir frá sjálfbærni verkefna í sviðslistum.
Fleiri dagskráliðir verða svo kynntir þegar nær dregur.
Dagurinn er tækifæri til að hlusta á fræðandi erindi, taka þátt í opnum umræðum og spyrja krefjandi spurninga. Við hvetjum alla sem starfa við sviðslistir til að koma og taka þátt!
Skráning er hafin á svidslistamidstod.is. Aðgangur er ókeypis, en hægt verður að kaupa hádegismat (súpu og meðlæti) á 1.500 kr.
Skráðu þig og vertu með okkur í Þjóðleikhúskjallaranum 20. maí!