Nýjasta uppfærsla Leikfélagsins Hugleiks verður frumsýnd í Hugleikhúsinu, Langholtsvegi 109-111, fimmtudaginn 19. mars.
Fjöllin vakna heitir sýningin og er samsköpunarsýning upp úr þeim mikla fjársjóði sem íslenskar þjóðsögur eru, en Hugleikur hefur löngum fengist við að endurvinna efni úr íslenskri menningu, oft með nokkuð frjálslegum og galgopalegum hætti, og svo er einnig að þessu sinni.
Leikstjórn er í höndum Maríu Bjartar Ármannsdóttur, en þetta er fyrsta stóra sýningin sem hún leiðir, en María hefur ásamt Birgittu Björk Bergsdóttur haft umsjón með því að stýra hópvinnunni í átt að handriti. Tónlist leikur eins og oft áður stórt hlutverk, en hana hafa unnið þeir Ármann Guðmundsson, Loftur S. Loftsson og Þorgeir Tryggvason.
Flestar sögurnar sem unnið er með eru vel þekktar og kunnuglegar persónur birtast ljóslifandi á sviðinu: Djákninn á Myrká, hinn þjófótti Kiðhús og konan í selshamnum, svo nokkrar séu nefndar, auk fjölda af ónefndum tröllum og kúm.
Áhugafólk um leikhús ætti alls ekki að láta þessa veislu gleði, tónlistar og sköpunar fram hjá sér fara. Sýningin er rúmur klukkutími að lengd, sýningartíminn er skammur, og sætin í salnum fá, svo það er um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst. Miðasalan er á midix.is.


