Bandalag íslenskra leikfélaga er 75 ára í ár. Af því tilefni verður haldin afmælisveisla sunnudaginn 7. desember kl. 15.00 á Netinu. Aðildarfélögin eru hvött til halda upp á daginn með því að koma saman í leikhúsinu, heimahúsi eða annarsstaðar og fylgjast með afmælisstreymi á YouTube þar sem m.a. verða afmæliskveðjur frá nokkrum aðildarfélögum auk myndasýningar frá uppfærslum félaganna undanfarin ár. Ekki væri úr vegi að skella í eina eða tvær hnallþórur í tilefni dagsins. 

Gaman væri að fá sendar myndir af samkomum félaganna á info@leiklist.is svo hægt sé að birta þær í lok streymisins. 

Streymið verður tiltækt á eftirfarandi tengli frá kl. 14.58, sunnudaginn 7. desember:
https://youtu.be/hbq_ch0Bt5E

Allt fyrir andann!