Freyvangsleikhúsið frumsýnir Land míns föður föstudaginn 28. febrúar. Verkið er leikrit með söngvum um stríðsárin í Reykjavík, hernámið og það sem því fylgdi. Kjartan Ragnarsson skifaði verkið sem er með tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson.
Hvaða áhrif hafði hernámið á íslendinga, einstaklinga og þjóðlífið í heild? Athyglin beinist að unga parinu Báru og Sæla og fólkinu í kringum þau. Þau eru að hefja búskap þegar stríðið skellur á. Sæli kýs að fara frekar á sjóinn en í bretavinnuna, en Bára og móðir hennar opna þvottahús sem þjónar hernum. Bára kynnist breskum liðsforingja og í fjarveru Sæla fella þau hugi saman. Ýmislegt gengur á áður en yfir lýkur í þessu ferðalagi aftur í tímann til Íslands stríðsáranna.

Land míns föður er í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðsson og er tónlistin í höndum fagmanna undir stjórn Stefáns Boga Aðalsteinssonar. Miðasala er á Tix.is.