Hugleikur
Einkamál.is
Leikstjórar: Hulda Hákonardottir og Þorgeir Tryggvason
Árni hefur skapað verk sem er bæði tímalaust og tekst á við samtíðarmál eins og staðgöngumæður og firringu nútímafjölskyldunnar. Það er þó ekki stigið þungum skrefum, fyndnin er allsráðandi og á frumsýningunni var mikið hlegið. Gott verk hjá Árna.
Leikstjórn verksins er fumlaus hjá þeim Huldu Hákonardóttur og Þorgeiri Tryggvasyni. Þau þjóna vel innihaldi verksins og stjórna leikurum af röggsemi. Nýting á rými í leikhúsi þeirra Hugleiksmanna er alveg frábær og þjónar verkinu mjög vel. Leikmyndin er einkar vel hugsuð og skipting á milli rúms og tíma er vel útfærð.
Leikhópurinn í sýningunni er afar góður og má þar fremstan telja Rúnar Lund sem á sannkallaðan stjörnuleik í burðarhlutverki verksins þar sem honum tekst á frábæran hátt að sýna manni persónu sem er bæði harmræn um leið og hún er fyndin. Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Einar Þór Einarsson og Júlía Hannam voru líka mjög góð sem nútíma fjölskyldan. Aðrir leikar stóðu sig vel og var gaman að sjá aftur á sviði Hrund Ólafsdóttur sem gerði garðinn frægan fyrir nokkrum árum og hún gerði Gleymérei góð skil.
Það er vert að óska Hugleik til hamingju með uppsetninguna á þessu verki Árna Hjartarsonar og ég hika ekki við að gefa þeim 4 stjörnur fyrir afar ánægjulega leikhúsferð á Grandann.
Lárus Vilhjálmsson