Nú eru einungis tvær sýningar eftir hjá Sólheimaleikhúsinu á leikritinu, Þar sem að sólin á heima! eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Þaulreyndir leikarar Sólheimaleikhússins takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs H. Péturssonar sem hann samdi fyrir leikritið.  Heiðursgestur sýningarinnar er hin ástsæla Diddú. Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu.

Síðustu sýningar í Sólheimaleikhúsinu verða 1. og 2. maí kl. 15:00. Miðasala í síma: 847-5323. Nánari upplýsingar á www.solheimar.is

Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu kl. 20:00. Miðasala í síma: 551-1200. Nánari upplýsingar á www.midi.is

{mos_fb_discuss:2}