Stoppleikhópurinn sýnir nk. mánudag 18. maí í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum.
Þrír leikarar segja söguna og leika allar persónur; Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna, fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarnmikið níð en Hjálmar.
Höfundar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.
Miðapantanir í síma: 898-7205.
Miðaverð: 1000 kr. Sýningartími: 50 mínútur. www.stoppleikhopurinn.com
