Sýnt í Tjarnarbíói 24. og 25. mars nk.

Haustið 2016 kallaði finnska leikdúóið Blaue Frau eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum fyrir sýninguna þeirra “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR”. Þeir sem sóttu um fengu það verkefni að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast í starfi þeirra sem leikkona. Blaue Frau hlaut alls 139 umsóknir frá Norrænum leikkonum sem allar virtust eiga í svipuðum vanda. Í kjölfar opna kallsins eftir samstarfi, voru fimm leikkonur valdar til þess að taka þátt í, og skapa þessa gagnvirku þátttöku leiksýningu.

Í nútíma samfélagi er það ekki einungis leikarinn sem stendur frammi fyrir stöðugum vangaveltum um eigin sjálfsmynd, heldur eru flest allir einstaklingar í stöðugri endurskoðun um hver þeir eru og hvernig þeir birtast öðrum. Þetta er bein afleiðing af daglegri notkun mismunandi samfélagsmiðla.

Internetið líkist leikhúsinu þar sem við erum öll að leika og fylgjast með hvor öðru. Í sýningunni “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR” er leikhúsið uppfullt af gagnvirkum stöðvum sem eru hannaðar til þess að leiðbeina áhorfendum í að þróa og setja fram internet persónu sína á netinu. Áhorfandinn fær einnig ráð um hvernig eigi að nýta mismunandi samfélagsleg gildi og viðmið sem fyrirfinnast á netinu.

Markmið sýningarinnar er að leiðbeina áhorfendum í að taka upp meira rými í hinum stafræna heimi. Ein kenning vinnuhópsins er að við getum smeygt okkur inn í internetið og mótað það í feminíska útópíu, þ.e. stelpu rými þar sem samstaða getur átt sér stað. “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR” er listræn tilraun sem leitast við að skapa annan valmöguleika á móti kynbundinni menningu sem hefur orðið meira áberandi í kjölfar herferða á borð við #metoo.

Sýningin var frumsýnd í Lilla Teatern í Helsinki í febrúar 2018. Sýningin fer fram á ensku og ferðast til Norðurlandanna 2018-2019. Næstu staðfestu sýningarstaðir árið 2018 eru í Svíþjóð í Stockholm (Moment:teater, moment.org.se) og Malmö (Inkonst, inkonst.se).

Vinnuhópurinn – leikkonur:

Sonja Ahlfors (Blaue Frau/FIN), Lidia Bäck (FIN), Bergdís Júlía Jóhannsdóttir (IS),

Sepideh Khodarahmi (SE), Nina Matthis (SE), Klara Wenner Tångring (SE), Joanna Wingren

(Blaue Frau/FIN), Stefan Åkesson (Poste Restante/SE).

Ljósahönnun: Meri Ekola (FIN), Búningahönnun, förðun og hár: Malin Nyqvist (FIN), Sviðsmyndahönnun: Kristina Sedlerova (FIN), Hljóðhönnun: Stefan Johansson (SE), Framleiðandi: Elina Tervonen (FIN)

Gesta leikkona í Tjarnarbíói er Kristbjörg Keld.

Blaue Frau er finnskt feminískt leikdúó sem leggur áherslu á að gagnrýna staðlaðar samfélagslegar kröfur og hugmyndir. Blaue Frau er skipað Sonja Ahlfors og Joanna Wingren. Dúóið var stofnað árið 2005 eftir að Sonja og Joanna höfðu verið hluti af drag leikhópnum Sub Frau (subfrau.net). Blaue Frau hefur ferðast víða um Norðurlöndin og um Evrópu með ólík leikverk og vinnustofur. Á síðasta ári gáfu þær út bókina “Någon hatar oss igen” (Einhver hatar okkur aftur) ásamt grafíska hönnuðinum Johan Isaksson. Lestu meira á www.blauefrau.com

Poste Restante er sænskur leikhópur sem sérhæfir sig í gagnvirku þátttöku leikhúsi. Síðan árið 2007 hefur hópurinn sýnt þónokkur stór-verk víðsvegar um heiminn og sýnt meðal annars á hátíðum á borð við Baltic Circle (FIN), Santiago A Mil (CL) og Salzburger Festspiele (AT). Lestu meira á www.poste-restante.se.

Sýningin er styrkt af:

LOGOS