Æfingar hafnar á Svörtum ketti hjá LA
Hafnar eru æfingar á leikritinu Svartur köttur eftir Martin McDonagh. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamaðurinn, Halti Billi og Fegurðardrottningin frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Frumsýning verður 20. janúar hjá LA í Samkomuhúsinu en þá eru liðin 100 […]
Maður í mislitum sokkum
Leikdeild Umf. Íslendings er þessa dagana að sýna gaman-farsann Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman.
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir Varaðu þig á vatninu
Miðvikudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:00 verður leikritið Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og taka átta leikarar þátt í sýningunni. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem leitar skjóls í bandaríska sendiráðinu í Vúlgaríu eftir að hafa tekið þar ljósmyndir […]
Smiður jólasveinsins í Möguleikhúsinu
Möguleikhúsið er um þessar mundir að hefja að nýju sýningar á barnaleikritinu Smiður jólasveinanna, eftir Pétur Eggerz. Leikritið var fyrst sýnt fyrir jólin 1992 og hefur allar götur síðan notið mikilla vinsælda, var m.a. gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993. Í leikritinu segir frá Völundi gamla sem situr í litla kofanum sínum hátt upp […]
Hnerrinn æfður á Selfossi
Æfingar eru hafnar af fullum krafti hjá Leikfélagi Selfoss í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið sem um ræðir heitir Hnerrinn og er blanda sjö ótengdra leikþátta og leikgerðra smásagna eftir Anton Chekov. Meðal verkanna eru þekktir þættir á borð við Björninn og Bónorðið en einnig er þarna að finna leikþætti sem ekki hafa áður verið […]
Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrullaup
Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir nú sýninguna Blóðbrúðkaup eftir F.G.Lorca. Þetta er annað verkefni vetrarins og er frumsýning 24.nóvember n.k. á Litla Sviði Borgarleikhússins en sýningin stendur til 10.desember. Blóðbrúðkaup er allt í senn – blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og fávisku ætt […]
Jólaleikrit í Borgarleikhúsinu
Miðvikudaginn 22.nóvember frumsýna BORGARBÖRN jólaleikritið Réttu leiðina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Borgarbörn er nýstofnað barna og unglingaleikhús Sönglistar og Borgarleikhússins og það eru hvorki fleiri né færri en 22 börn/unglingar sem taka þátt í hverri sýningu. Þess má geta að í tengslum við sýninguna verður tekið á móti jólapökkum sem Borgarbörn munu afhenda Rauða krossinum, […]
Síðustu sýningar á Þjóðarsálinni
Nú eru einungis tvær sýningar eftir á hinni karnivalísku leiksýningu Þjóðarsálinni. Þær verða fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24. nóvember kl. 20.00 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi, nánar tiltekið í Álalind 3. Sýning þessi hefur vakið mjög sterk viðbrögð áhorfenda sem og gagnrýnenda. Fimm leikarar fara með stór hlutverk, þau Árni Pétur Guðjónsson, Árni Salomonsson, […]
Hugleikur hlýtur viðurkenningu á degi íslenskrar tungu
Menntamálaráðherra veitti í gær leikfélaginu Hugleik sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu. Formaður félagsins tók við viðurkenningunni við athöfn í Hjallaskóla í Kópavogi í dag. Viðurkenningin var veitt í tengslum við verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem eru veittþann 16. nóvember, ár hvert. Þau voru nú veitt í 11. sinn. Áður hafa 19 aðilar fengið sérstakar […]
Herra Kolbert einungis á Akureyri
Vegna fjölda fyrirspurna og áskorana vill LA koma eftirfarandi á framfæri: Engin áform eru uppi um að sýna Herra Kolbert né næstu uppsetningar LA í Reykjavík. Uppsetningunni á Herra Kolbert hefur verið afar vel tekið og verður hún sýnd á Akureyri í nóvember og desember. Síðasta sýning á Herra Kolbert verður 16. desember.
Hvers vegna láta konurnar svona?
Námskeið á vegum Þjóðleikhússins um Bakkynjur eftir Evripídes í nýrri og glæsilegri þýðingu Kristjáns Árnasonar sem m.a. styðst við nýgríska útgáfu af leiknum eftir gríska heimspekinginn og ljóðskáldið Giorgos Chimonas. Bakkynjur eru nú settar upp í fyrsta sinn á Íslandi og eru jafnframt jólasýning Þjóðleikhússins. Frumsýning er 26. desember n.k.
Sambúðarverkir frumsýndir á Dalvík
Nú er komið að frumsýningu á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Yfirheiti verksins er Sambúðarverkir, en verkið samanstendur af fimm einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum. Höfundar einþáttunganna eru sex: Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Freyr Antonsson, Júlíus […]
Ristruflanir í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið setur upp sýninguna Ristruflanir í Freyvangi 10. og 11. nóvember. Eyjafjarðarsveit er sveitarfélag í hröðum vexti, en þegar allt á að gerast í einu, koma upp vandamál svonefndar ristruflanir. Sveitarstjórinn tekst á við Pólverja og morgunsvæfa vinnumenn úr sveitinni, á meðan Sporvagninn Girnd ferðast um svæðið og selur karlmönnum misblátt efni, þeim til dægrastyttingar. […]
Verðlaun í Stuttverkasamkeppni afhent
Verðlaun í í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjónustumiðstöð Bandalagsins í dag. Fyrstu verðlaun hlaut Helga Hreinsdóttir fyrir verkið Undinn upp á þráð – bráð en hún skrifaði undir dulnefninu Nóra. Jöfn í 2. og 3. sæti voru þau Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson með verkið Kaffi og með því og Hrefna Friðriksdóttir með […]
Leiklestur í Borgarleikhúsinu
Nú fara í hönd leiklestrar á úrslitaverkum úr samkeppni Borgarleikhússins, Sakamál á svið. Núna á sunnudaginn, 12. nóvember, verður fyrsta verkið lesið. Það er leikritið Engu að tapa eftir Jónínu Leósdóttur og Gunnar H. Jónsson. Lesturinn fer fram á þriðju hæð Borgarleikhússins og hefst klukkan 17.00. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir, en leiklesendur verða: Hildigunnur Þráinsdóttir, […]
Aukasýningar í Austurbæ
Breska leikritið Danny and deep blue sea fékk feikigóðar undirtektir um síðustu helgi í Austurbæ og vegna fjölda áskoranna verða tvær aukasýningar á laugardaginn 11. nóvember kl. 20 og 22. Danny and the deep blue sea er eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu black-box rými á efri […]
Frumsýning á Iðavöllum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir. Félagið hefur starfað nær óslitið frá árinu 1966 og hefur verið snar þáttur í menningarlífi Austurlands í allan þann tíma. Á þessum afmælisvetri stefnir félagið að fjölbreyttri og öflugri starfsemi. Starfsemi leikársins hófst í sumar á sýningum á verkinu Miðsumarnæturdraumar í leikstjórn Guðjóns […]
Úrslit í samkeppni um sakamálaleikrit
Síðasta vor blés Borgarleikhúsið til samkeppni í ritun sakamálaleikrita undir yfirskriftinni "Sakamál á svið". Keppnin var styrkt af Spron. Úrslit í keppninni voru kunngjörð í gær. Sigurverkið verður sett upp í Borgarleikhúsinu á næsta leikári auk þess sem annað verk verður sett upp af Útvarpsleikhúsinu. Alls eru sex verk í úrslitum, en hin fjögur verða […]
Hugleikur segir sögur í Þjóðleikhúskjallaranum
Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr […]
Dansleikhússport í Borgarleikhúsinu
‘Watch My Back’ er nýr dansleikhúshópur sem samanstendur af listamönnum LR og Íd, það eru þeir Peter Anderson dansari og danshöfundur, Guðmundur Elías Knudsen dansari og Björn Ingi Hilmarsson leikari sem leiða saman grínhesta sína. Dansleikhússport er ný tegund afþreyingarlistar. Hópurinn spinnur gamansamar senur með hjálp áhorfenda. Áhorfendur gefa leikurum/dönsurum stikkorð sem þeir spinna út […]
Maður í mislitum sokkum
Laugardaginn 4. nóvember frumsýnir Umf. Íslendingur leikritið Maður í mislitum sokkum, sem er gamanfarsi eftir Arnmund Backman. Þeir sem hafa gaman af góðu gríni ættu ekki að missa af þessu.
Höll ævintýranna í Möguleikhúsinu
Sunnudaginn 5. nóvember 2006 kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið við Hlemm nýtt barnaleikrit, Höll ævintýranna, eftir Bjarna Ingvarsson. Hér er á ferðinni leiksýning fyrir áhorfendur á aldrinum 2ja til 8 ára, þar sem börnin fá að taka virkan þátt í atburðarásinni og gleyma sér í heimi ævintýranna um stund.
Sakamál á svið
Kunngert verður um vinningshafa í leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins og Spron “Sakamál á svið” fimmtudaginn 2.nóvember kl.18 í forsal Borgarleikhússins.
Kúlan, nýtt leiksvið Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið opnar þann 4. nóvember næstkomandi nýtt leikrými, Kúluna, sem er helgað ungum áhorfendum og nýrri leikhúsreynslu. Kúlan er þar sem áður var Litla svið Þjóðleikhússins.
Listin að lifa
Leikfélag Fljótsdalshéraðs er þessa dagana að æfa leikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttir. Leikritið er sérstaklega samið fyrir Leikfélag Fljótsdalshéraðs í tilefni af 40 ára afmæli leikfélagsins.
Frá Leikfélagi Vestmannaeyja
Þann 28. október var frumsýnt hjá Leikfélagi Vestmannaeyja verkið „Móglí“ eftir Illuga Jökulsson í leikstjórn hins frábæra leikstjóra Jóns Stefáns Kristjánssonar.
Stuttverk 2006 – Úrslit tilkynnt í dag
Atkvæðagreiðslu í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins 2006 er lokið. 15 stuttverk voru í valinu og völdu lesendur þau 3 bestu. Úrslit verða tilkynnt og verðlaun afhent kl. 16.00 í dag, föstudaginn 10. nóvember á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga, Laugavegi 96. Einnig verða verkin sem lenda í efstu sætunum þremur leiklesin. Allir velkomnir.
Frá Leikfélagi Hörgdæla
Aðalfundur leikfélagsins var haldinn mánudagskvöldið 16. október 2006. Í stjórn félagsins eru: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, formaður, Kristín Haraldsdóttir varaformaður, Ásgeir Már Hauksson gjaldkeri, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir ritari og Bernharð Arnarson meðstjórnandi. Á fundinum var samþykkt að Arnsteinn Stefánsson, Stóra-Dunhaga, yrði heiðursfélagi leikfélagsins. Nú í haust mun Leikfélagið setja upp dagskrá um Kristján frá Djúpalæk (Dreifar […]
Danny and the deep blue sea
Austurbær er að hefja sýningar á leikritinu Danny and the deep blue sea eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box” rými á efri hæðinni, í Silfurtunglinu. Brit Pop leikrit, beint frá Bretlandi, beint í æð. Leikendur eru bresku hjónin Nicolette Morrison og Matthew Hugget. Leikið er á […]
Manntafl í Borgarleikhúsinu
Ákveðið hefur verið að taka upp sýninguna Manntafl eftir Stefan Zweig frá fyrra leikári. Sýningin fékk afar góðar viðtökur og var ÞórTulinius tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir einleikinn. Aðeins 4 sýningar eru í boði og sú fyrsta verður sunnudaginn 29.október. Manntafl er hiklaust ein af perlum skáldverka tuttugustu aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyðingaættum […]
Láttu ekki deigan síga, Guðmundur
Þá er loksins komið að því að áhorfendur geti séð uppfærslu á verkinu “Láttu ekki deigan síga Guðmundur”, hjá Leikfélagi Siglufjarðar í leikstjórn hins magnaða leikstjóra Guðjóns Sigvaldasonar. Höfundar eru Hlín Agnarsdóttir og Edda Björgvinsdóttir. Frumsýnt verður þann 27. október í Bíó Café og hefst sýningin kl. 21:00. Húsið opnar kl. 20:00.
Aukasýning á Systrum
Allra síðasta tækifæri til að sjá hina margverðlaunuðu sýningu Hugleiks, Systur, gefst í Möguleikhúsinu föstudagskvöldið 27. október nk. Þetta er aukasýning og enn er hægt að fá miða. Þá gildir hið vinsæla "systratilboð" ennþá, en samkvæmt því greiða systrahópar aðeins fyrir einn miða óháð fjölda systranna. Miðapantanir eru á www.hugleikur.is eða í síma 551 2525.
Dogmatísk Sólarferð í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 28.október mun Dogmaleikhópur Borgarleikhússins opna dyrnar fyrir almenningi. Síðastliðnar fjórar vikur hefur leikhópurinn verið að skoða hlutverk leikarans í vinnunni með leikverkið. Vettvangur rannsóknarinnar hefur verið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Leikararnir hafa kastað á milli sín hugmyndum að úrlausnum og leikaðferðum, án tilkomu leikstjóra eða útlitshönnuða. Þeir hafa velt fyrir sér ábyrgð leikarans í […]
Purpuri á Fosse-hátíð
Leikhópurinn Jelena tekur aftur upp sýningar í tengslum við Jon Fossehátíð Þjóðleikhússins á leikritinu Purpuri. Leikritið fjallar um hóp af ungum strákum sem hafa stofnað hljómsveit sem er enn heldur stefnulaus. Ung stúlka bætist í hóp þeirra og myndast spenna milli hljómsveitarmeðlima og hennar. Hvernig er að vera ungur og eiga í erfiðleikum með að […]
Stórfengleg!
Föstudaginn 27. október frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Stórfengleg! eftir Peter Quilter í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Stórfengleg! er glænýr gamanleikur um Florence Foster Jenkins, “verstu söngkonu allra tíma”. Jenkins varð víðfræg fyrir hljómplötur sínar og tónleika sem hún hélt í New York á 4. og 5. áratugnum. Hún þótti heillandi persónuleiki, var gædd óbilandi sjálfstrausti, en hafði […]
Alveg brilljant skilnaður
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur , sem frumsýndur var í mars árið 2005, hefur verið sýndur 130 sinnum fyrir fullu húsi og við fádæma undirtektir áhorfenda um allt land, en rúmlega 20 þúsund manns hafa nú þegar séð sýninguna. Það er því óhætt að segja að sýningin Alveg brilljant skilnaður er einhver sú vinsælasta sem sýnd hefur […]
Herra Kolbert
Laugardagskvöldið 28. október verður Herra Kolbert eftir David Gieselmann frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Hér er á ferðinni margverðlaunað leikrit sem sýnt hefur verið um allan heim og vakið mikla athygli. Í verkinu tvinnast saman ómótstæðilegur húmor og hvöss ádeila. Hver er herra Kolbert? Hver er með númer 26, sleppa chillíinu? Er Herra Kolbert í kistlinum […]
Fjölbreytt Jon Fosse hátíð í Þjóðleikhúsinu
Jon Fossehátíð verður haldin í Þjóðleikhúsinu dagana 28. og 29.október n.k.í samvinnu við Norska sendiráðið í Reykjavík. Jon Fosse sjálfur verður aðalgestur hátíðarinnar ásamt sænska leiklistargagnrýnandanum Leif Zern sem hefur skrifað bók um skáldið. Leif Zern hefur starfað sem menningarritstjóri á dagblaðinu Expressen en er þekktastur sem einn helsti virtasti leiklistargagnrýnandi Svía, en hann skrifaði áralangt um leiklist […]
Leiklistarskóli BÍL auglýsir:
Námskeið í stjórnun leikfélaga, fyrirlestrar og umræður. Haldið laugardaginn 18. nóvember 2006 frá kl. 10.00 til 17.00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Síðasti skráningardagur í dag, 10. nóvember!
Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins
Næsta vinnusmiðja FLÍSS og Fræðsludeildarinnar verður miðvikudagskvöldið 25. október kl. 20.00 – 22.00. Sigríður Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur mun fjalla um leiklistarmeðferð (dramatherapy) og notkun hennar í skólastarfi. Sigríður er menntaður kennari frá KHÍ og kenndi í 2 ár áður en hún fór í framhaldsnám í leiklistarmeðferð (drama therapy) í New York háskóla. Hún útskrifaðist […]
