Sex í sveit í Ólafsvík
Æfingar eru hafnar á gamanleiknum Sex í sveit eftir Marc Camoletti í íslenskun og staðfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Um er að ræða bráðskemmtilegan og flókinn gamanleik sem gerist í sumarbústað hér á landi. Leikarar í verkinu eru 6 talsins, blanda af reyndum og óreyndum leikurum. Leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson. Áætlað er að sýna um mánaðarmótin […]
Amadeus í Borgarleikhúsinu
Amadeus eftir Peter Shaffer verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 21. október kl. 20.00. Leikstjóri er Stefán Baldursson Verkið fjallar um samband Wolfgang Amadeus Mozart og Antonio Salieri, hirðtónskáld Austuríska keisarans á síðari hluta átjándu aldar. Verkið byggir á sögusögnum um dulafullan dauða Mozarts og þátt Salieri í honum. Salieri kvelst af afbrýði út […]
Gosi frumsýndur á Sauðárkróki
Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks að þessu sinni er barna- og fjölskyldusöngleikurinn Gosi. Þetta er leikverk Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarin Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar. Verkið er byggt á hinni heimsfrægu sögu um strengjabrúðuna Gosa eftir ítalann C. Collodi, en sagan kom fyrst út á bók árið 1873 og er því orðin rúmlega 230 […]
Leikfélag Siglufjarðar lætur ekki deigan síga
Hjá Leikfélagi Siglufjarðar standa yfir stífar æfingar á bráðskemmtilegu verki þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, Láttu ekki deigan síga Guðmundur. Leikurinn gerist árið 1984 og fjallar um ´68 kynslóðina svokölluðu, sigra hennar og vonbrigði á gamansaman hátt. Í leikritinu rifjar aðalpersónan, Guðmundur Þór, upp sögu sína þegar sonur hans Garpur Snær leitar ásjár […]
Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Dalvíkur
Nú eru hafnar æfingar á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Verkið samanstendur af 5 einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum.
Sænsk gestasýning í Þjóðleikhúsinu
Fimmtudaginn 19.október kl. 20.00 og föstudaginn 20.október kl. 20.00 sýnir Cinnober leikhúsið frá Gautaborg leikritið Suzannah eftir Jon Fosse á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Leikritið fjallar um Súsönnu Ibsen sem í 48 ár var eiginkona norska skáldjöfursins Henriks Ibsens. Höfundurinn kallar verkið einleik fyrir þrjár leikkonur. Einleikurinn skiptist milli þriggja radda, sem endurspegla líf Súsönnu á þremur aldursskeiðum hennar, […]
Ársrit BÍL komið út
Ársrit BÍL fyrir leikárið 2005 – 2006 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa enda eru þar dregnar saman fréttir og upplýsingar um starfsemi félaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur veirð send til leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast eintak í PDF-formi hér. ðæþýíóáú
Ljósanámskeið
Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október Skráningarfrestur er út miðvikudaginn 18. október. Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Námskeiðið hentar að hluta öllum sem […]
Ert þú með hugmynd í maganum?
Leitum að skapandi listamönnum til þess að taka þátt í næstu sýningum 108 PROTOTYPE. Fyrsta sýning gekk vonum framar! Megináherslan er lögð á ferlið, hugmyndir og tilraunir. Næstu sýningar eru: Sun 29. október kl: 20:00 Sun 27. nóvember kl: 20:00 Hafðu samband á steinunn_k@hotmail.com 108 PROTOTYPE er röð mánaðarlegra sýninga þar sem listamenn frá […]
Act alone í Sjónvarpinu í kvöld
Heimildarmynd um Act alone er nefnist Leikur einn verður sýnd í Sjónvarpinu í kvöld, þriðjudaginn 10. október kl. 21.10. Það er Ísfirska kvikmyndafyrirtækið digi-Film sem gerir myndina sem er í leikstjórn Jóhannesar Jónssonar, kvikmyndagerðamanns og aðal digimanns. Myndin var gerð á Act alone 2005.
Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga
Þegar prestfrú ein tekur upp á því spila í getraunum gegn vilja eiginmannsins og án hans vitundar getur ekkert verra komið fyrir en… að hún vinni. Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Getraunagróði eftir Philip King. Verkið er gamanleikur þar sem hlutir ganga hratt fyrir sig og mikið er um misskilning og ærsl. […]
Leikhússport á Íslandi
[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.4.1″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″] Þeir sem áhuga hafa á spuna og leikkhússporti takið eftir: Ég og fleiri erum að koma saman spunahóp sem myndi hittast reglulega (1–2 í viku) og æfa og keppa.Allir þeir sem áhuga hefðu á því að vera […]
Áhugaleiklistin undir hnífnum
Hið árlega fjárlagafrumvarp var kynnt á dögunum. Eins og venjulega var látið að því liggja að nú væri kaupmáttaraukning í þjóðfélaginu og smjör drypi af nánast hverju strái, en þó verða menn að passa sig á þenslunni. Einhverra hluta vegna kemur það meðal annars í hlut hins fjársvelta leikhúsgeira að halda aftur af henni. Aðildarfélög […]
Þjóðleikhúsið frumsýnir á Selfossi
Þjóðleikhúsið frumsýnir Patrek 1,5 eftir Michael Druker í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn 10. október kl. 13.00. Þetta er hvorki hefðbundinn staður né stund fyrir frumsýningu á vegum Þjóðleikhússins en ástæðan er sú að hér er um að ræða leikrit sem er einkum ætlað ungu fólki og markar sýningin upphaf leikferðar Patreks 1,5 um landið […]
Lína Langsokkur á Patreksfirði
Leikfélag Patreksfjarðar hefur nú vaknað af nokkurra ára dvala og hafið starfsemi aftur af fullum krafti. Nú um helgina frumsýnir það sitt þrítugasta leikrit, en félagið var stofnaði 13. maí 1967 og á því fertugsafmæli í vor. Verkið sem sýnt verður að þessu sinni er Lína Langsokkur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Elvars Loga Hannessonar […]
Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum
Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr […]
Gosi á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks hefur hafið æfingar á söngleiknum um hinn eina sanna spýtustrák Gosa. Leikverkið er eftir Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarinn Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar. Leikstjórn er í öruggum höndum Þrastar Guðbjartssonar, en leikendur og aðrir aðstandendur sýningarinnar eru ungir og gamlir, reyndir og óreyndir, af ýmsum ættum og úr mörgum héruðum. […]
Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu
Föstudaginn 29. september n.k. frumsýnir Þjóðleikhúsið Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikgerð Illuga Jökulssonar og leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Leikgerðin er byggð á þremur bókum Guðrúnar, Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikritið gerist í íslensku sjávarþorpi í síðari heimsstyrjöldinni og miðpunkturinn er barnmörg stórfjölskylda. Gegnum litríkt líf hennar kynnast […]
Leikritunarnámskeið hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs verður með námskeð í leikritun bráðlega og stjórn þess verður í styrkum höndum Hrefnu Friðriksdóttur. Á námskeiðinu verður farið í leikritun og verður sjónum einkum beint að skrifum á styttri verkum/einþáttungum.
Systur Verðlaunaverk Hugleiks aftur á fjalirnar
Leikfélagið Hugleikur frumsýndi leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu síðastliðið vor. Sýningin fékk frábæra dóma og mjög góða viðtökur, og af því tilefni hyggst félagið sýna fimm sýningar á verkinu í haust. Endurfrumsýningin verður sunnudaginn 24. september og sú síðasta föstudaginn 20. október.
Vinnusmiðjur Þjóðleikhússins
Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í […]
Mein Kampf frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Mein Kampf eftir George Tabori verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 23. september. Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið en leikstjórn er í höndum Hafliða Arngrímssonar Verkið er hárbeittur og meinfyndinn gamanleikur um sambýli gyðingsins Slómó og Adolfs Hitlers er sá síðarnefndi kemur úr sveitinni til Vínarborgar í þeim erindagjörðum að nema málaralist við Listaakademíuna […]
Karíus og Baktus á Akureyri
Laugardaginn 23. september verður hið sígilda barnaleikrit Karíus og Baktus eftir Thorbjorn Egner frumsýnt hjá LA. Verk Thorbjorns Egners eru ætíð vinsæl en þetta er í fyrsta sinn sem Karíus og Baktus eru settir upp norðan heiða. Í uppsetningu LA er tónlistin flutt í nýrri og grallaralegri útgáfu hljómsveitarinnar 200.000 naglbítar. Karíus og Baktus verða […]
Fagnaður eftir Harold Pinter aftur á svið
Fagnaður eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter í leikstjórn Stefáns Jónssonar verður tekinn til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu og að þessu sinni á Stóra sviðinu. Fyrsta sýningin verður sunnudaginn 24. september n.k. Harold Pinter, eitt frægasta leikskáld samtímans, hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Þjóðleikhúsið sýnir nýjasta leikrit hans, Fagnað, sem hlaut þá umsögn gagnrýnanda þegar […]
Stuttverkasamkeppni 2006
Í kvöld lýkur rennur út skilafrestur fyrir Stuttverkasamkeppnina. Á miðnætti í kvöld, fimmtudaginn 26. október þurfa handrit að hafa borist. Smelltu á tengilinn hér að neðan til að fá nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag.
108 prOtOtype
108 PROTOTYPE er röð mánaðarlegra sýninga þar sem listamenn frá hinum ýmsu listgreinum hafa tækifæri til þess að sýna verk sína. Markmið sýninganna er að skapa umhverfi þar sem megináherslan er lögð á sköpunarferlið, tilraunir og nýjar hugmyndir. Opnum umræðum milli áhorfenda og listamanna verður stjórnað í lok hverrar sýningar.
Japönsk heimsfrumsýning í Þjóðleikhúsinu
Japanski leikhópurinn Theatre du Sygne frumsýnir Snegla tamin eða Taming of the Shrew eftir William Shakespeare á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 16. september kl. 20.00. Sýningin kemur til Íslands í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að Japan og Ísland tóku upp stjórnmálasamband.
Vinnusmiðja Þjóðleikhússins 2006-2007
Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í […]
Ljósanámskeið
Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Um er að ræða tvískipt námskeið. Laugardagurinn verður fyrir alla er koma […]
Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir
Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund laugardaginn 16. september 2006 í Hjáleigu Leikfélags Kópavogs, Fannborg 2, Kópavogi. Fundurinn hefst klukkan 13:00. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundastörf og önnur mál. Kosið verður í stjórn, farið yfir starf síðustu tveggja ára og farið yfir fjármálin. Auk þess verður starfið framundan rætt. Mikilvægt er að félagsmenn mæti til þess að tjá sig […]
Tvö námskeið í leikhúsförðun
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir tvö námskeið í leikhúsförðun í október nk.Kennari á báðum námskeiðunum er Gréta Boða leikhúsförðunarfræðingur og hárkollumeistari.Skráningu lýkur 15. september á bæði námskeiðin!
Leiklistarnámskeið
Nokkur pláss eru laus á leiklistarnámskeið sem leikfélagið Hugleikur stendur fyrir nú í september. Námskeiðið er ætlað leikurum, jafnt reyndum sem þeim sem minni hafa reynsluna. Áhersla verður lögð á líkamlega tjáningu og að hætta að hugsa. Kennari verður leikarinn og leikstjórinn Agnar Jón Egilsson. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Tímaáætlun […]
Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2006
Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi dagana 29. september til 1. október. Í boði verða námskeið í stjórnun leikfélaga, málþing um Leiklistarskóla Bandalagsins og almennar umræður um málefni áhugaleikhússins.Tilkynna þarf þátttöku fyrir 12. september.
Leikfélag Reykjavíkur í 110 ár
Opið hús verður í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 3. september milli 3-5. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vetrarstarfið verður kynnt hjá Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum og Sönglist. Persónur úr verkum vetrarins spígspora um leikhúsið. Hvað gerist þegar Hitler og Ronja mætast? Eða Mozart og Tarzan?
Enn laust á námskeið í leiklistarkennslu
Enn eru nokkur pláss laus á námskeið í leiklistarkennslu á vegum FLÍSS, Félags um leiklist í skólastarfi og fræðsludeildar Þjóðleikhússins. FLÍSS hefur fengið hinn þekkta dramasérfræðing Jonothan Neelands prófessor við University of Warwick í Englandi til þess að halda tvö námskeið hér á landi. Námskeiðin verða haldin í einum af sölum Þjóðleikhússins, laugardaginn 2. september […]
Leikárið í Þjóðleikhúsinu
Nýbreytni er eitt af því sem einkennir verkefnaskrá Þjóðleikhússins í vetur, en leikhúsið frumflytur nú tíu verk á Íslandi, ný íslensk og erlend verk og sígilt verk sem ekki hefur verið sviðsett hér áður. Nýr gamanleikur, eitt af meistaraverkum grísku gullaldarinnar, íslensk leikgerð á vinsælli barnabók, „vísindasöngleikur“ eftir einn af höfundum ungu kynslóðarinnar, áhrifamikil erlend […]
LA kynnir næsta leikár
Leikfélag Akureyrar hefur nú birt dagskrá leikársins 2006-2007. Áfram er unnið eftir sömu stefnu og verið hefur og sérstök áhersla lögð á að ná ekki síður til yngri leikhúsgesta en þeirra sem eldri eru. Liðið leikár sló öll met er varða aðsókn og ljóst að LA er í mikilli sókn.
Wuppertal dansleikhús á Íslandi
Hið heimsfræga Wuppertal dansleikhús undir stjórn Pinu Bausch, er væntanlegt til Íslands. Pina Bausch er án efa einn áhrifamesti sviðslistamaður seinni tíma og er það mikill fengur fyrir íslenska áhorfendur að fá að njóta snilli hennar. Sýningin Aqua er stórbrotin sýning sem unnin var í samráði við borgina Sao Paolo í Brasilíu.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs 40 ára
Leikfélag Fljótsdalshéraðs var stofnað á Egilsstöðum 31. ágúst 1966 og á því 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður mikið um að vera á leikárinu og hófst það reyndar með því að leikritið Miðsumarnæturdraumar, eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu, var sett upp í Selskógi. Guðjón Sigvaldason leikstrýrði. Sýningin tókst vel og áhorfendur […]
Jaðarleikhúsið opnað
Á laugardaginn verður haldin opnunarhátið Jaðarleikhússins, tilrauna- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar. Haldið verður upp á opnunina með leikhúsgjörningi, listaverkum, umræðum og fleiru. Auk þess verður boðið upp á kaffi og meðlæti. Alþjóðlegi leikhópurinn Dan Kai Teatro kemur fram. Leikhúsið er staðsett að Miðvangi 41, á bak við Samkaup (gamla apótekið) í Hafnarfirði. Miðaverð er kr. 1000, […]
