Þjóðleikhúsið á bakvið blæju!
Þjóðleikhúsið æfir nú af fullum krafti leikritið Hálsfesti Helenu eftir margverðlaunaðan kanadískan höfund, Carole Fréchette. Verkið gerist á okkar tímum fyrir botni Miðjarðarhafs og er í stuttu máli stefnumót okkar vestrænu viðhorfa við þau austrænu, séð með augum aðalpersónunnar Helenu sem kemur úr norðri.
Leikhúsið sem farartæki
Febrúar er mánuður unga fólksins í Borgarleikhúsinu. Miðað verður að því leyfa ungu fólki að kynnast leikhúsmiðlinum. Ekki bara koma í leikhús og láta skemmta sér, heldur kynnast leikhúsinu sem faratæki fyrir skoðanir, tilfinningar og baráttumál. Leikhúsið er öflugur miðill og finnst forráðamönnum Borgarleikhússins það mikilvægt að kynna möguleika þess fyrir ungu fólki.
Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt, á Dalvík
Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli eru nú í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga sem verið að æfa þessa dagana. Leiklist er kennd í skólanum sem valgrein í 9. og 10. bekk og samtals 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú í Ungó leikverkið Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt ! […]
Einu sinni var… Athugið breyttar dagsetningar!
Í vetur hefur leikfélagið Hugleikur flutt samsettar dagskrár í Þjóðleikhúskjallaranum. Í nóvember var sýnd dagskráin "Einu sinni var…" Dagskráin er spunnin úr gömlum örlagasögum sem ellefu manns segja úr eigin umhverfi og krydduð með tónlist, ýmist fornum stefjum eða tónlist sem tengist sögunum sem sagðar eru. Sýningin er afrakstur af námskeiði hjá Benedikt Erlingssyni og […]
Síldin kemur í Hörgárdalinn!
Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á hinu sívinsæla leikriti Síldin kemur síldin fer eftir Kristínu og Iðunni Steinsdætur. Leikstjóri er Sunna Borg og tónlistarstjóri er Snorri Guðvarðarson. Leikritið lýsir lífi farandverkafólki á síldarárunum. Gleði þess og sorgum, vinnu, drykkju, ástum og samskiptum við heimafólk. Rauði þráðurinn er síðan togstreita síldarspekúlantsins við landeigandann sem á jörðina […]
Lagst í Leg
Vinna er nú hafin af fullum krafti við tæknilega eina mest krefjandi sýningu Þjóðleikhússins fyrr og síðar, en það er söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust, en æfingar hófust af fullum krafti nú eftir áramótin. Verkið verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins 8. mars næstkomandi, en boðið verður […]
Fiðlarinn á þakinu
Ungmennafélagið Máni í Nesjum á hundrað ára afmæli í ár. Í tilefni af því setur leikhópur félagsins upp stórsýningu í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar. Félögin frumsýna söngleikinn Fiðlarann á þakinu föstudaginn 2. febrúar. Leikstjóri sýningarinnar er Ingunn Jensdóttir. Ingunn er Hornfirðingum að góðu kunn því er hún bjó þar á árum áður setti hún upp […]
Bingó!
Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa nú hafið samstarf í annað sinn. Hafnar eru æfingar á verkinu Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Þetta er frumuppfærsla verksins. Í leikritinu Bingó sameinast fimm manneskjur við þá heimsþekktu dægradvöl að spila bingó. Þau bregðast við þeim tölum sem koma upp og rifja upp lífið sitt. Spurningin […]
Langafi prakkari aftur í Möguleikhúsinu
Möguleikhúsið hefur nú hafið sýningar á hinu vinsæla barnaleikriti Langafa prakkara sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns. Leikritið var fyrst sýnt á vegum Möguleikhússins á árunum 1999 til 2001 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð […]
Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?
Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er vaxandi listform en tilgangur keppni af þessu tagi er að styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi […]
Samlestur á Gretti í Borgarleikhúsinu
Fimmtudag 1. febrúar verður haldinn opinn samlestur á Gretti á Stóra sviði Borgarleikhússins. Lesturinn hefst klukkan 10.00 Þetta er sögulegur atburður þar sem einvala lið leikara sameinar krafta sína í þessum frábæra söngleik undir styrkri stjórn Rúnas Freys Gíslasonar. Meðfylgjandi mynd er af Sigurveigu Jónsdóttur og Jóni Sigurbjörnssyni í hlutverkum sínum í uppfærslu verksins […]
Nýtt verk frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Eilíf hamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson. Uppsetningin er samstarfsverkefni Hins Lifandi Leikhúss og Borgarleikhússins og er sýnt á litla sviðinu. Leikstjóri er Þorleifur Arnarson. Eilíf Hamingja er verk um millistjórnendastéttina, hina nýju íslensku alþýðu.
Draugadans
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sviðsetur Djáknann á Myrká og Miklubæjar Sólveigu auk fjölda annara sagna, sögurnar fléttast saman og bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi létta á atburðarrásinni með sínum hætti. Þessar sögur eru á við mjög góða spennumynd. Með nútíma sviðstækni lifna þær við með ljósum, tónlist og litum. Sýningin er full af fallegum textum […]
Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?
Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er nýtt og vaxandi listform en tilgangur keppni af þessu tagi er að styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna þvert á listgreinarnar en umsækjendur hafa […]
Frumsýning í Austubæ
Verkið 50 ways to leave your lover verður frumsýnt í Silfurtunglinu í Austurbæ 26. janúar. Þetta er einleikur sem fjallar um uppgjör ungs manns á átakanlegum atburði í lífi hans, ástinni sem hann kynntist og einverunni sem hann upplifir eftir á. Sagan er sögð á tveimur skeiðum í lífi hans, annarsvegar fyrir dauða hans og […]
Karíus og Baktus til Reykjavíkur
Leikritið Karíus og Baktus hefur kætt norðlensk börn á undanförnum mánuðum og notið fádæma vinsælda. Vegna fjöla áskorana verður sýningin sýnd í Reykjavík í örfá skipti í febrúar og byrjun mars. Sýningar verða í Borgarleikhúsinu og hefst miðasala á miðvikudag kl. 13. Vegna anna leikaranna er um takmarkaðan sýningarfjölda að ræða, en Guðjón Davíð og […]
Æfingar hafnar hjá Halaleikhópnum
Batnandi maður er nafnið á leikritinu sem Ármann Guðmundsson er að skrifa og leikstýra hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Í tilefni 15 ára afmælis Halaleikhópsins var ákveðið að fá Ármann til að vinna afmælissýningu en stefnt er að frumsýningu hennar undir lok febrúar.
100 ár í Samkomuhúsinu á Akureyri
Þann 20. janúar verður leikritið Svartur köttur eftir Martin McDonagh frumsýnt hjá LA. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamanninn, Halta Billa frá Miðey og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Um sérstaka hátíðarfrumsýningu er að ræða í tilefni […]
Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins
Næsta vinnusmiðja FLÍSS Félags um leiklist í skólastarfi og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins verður á mánudaginn þann 22. janúar. Kennari að þessu sinni verður Rúnar Guðbrandsson leiklistarkennari. Rúnar mun fjalla um aðferðir sínar í leiklistarkennslu og þjálfun leikarans. Hann mun einnig fjalla um leiklistarkennslu á hinum ýmsu skólastigum og tengingu þar á milli. Eins […]
Viltu lifa að eilífu?
Föstudaginn 19. janúar frumsýnir Þjóðleikhúsið Sælueyjuna eftir Jacob Hirdwall í leikgerð Maríu Ellingsen og Grétu Maríu Bergsdóttur í Kassanum. Hér er á ferðinni heimsfrumsýning á glænýju verki sem gerist á Íslandi og fjallar um siðferðileg álitamál í okkar samtíma. Kaldan haustmorgun finnst maður uppi á hálendinu nær dauða en lífi. Hann krefst þess að ná […]
Hnerrað á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir um helgina leikverkið Hnerrinn. Verkið samanstendur af einþáttungum og smásögum eftir Anton Tsjekoff en leikgerðina skrifaði Michael Frayn. Frumsýning verður föstudaginn 19. janúar og verður það frumflutningur verksins hér á landi. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson en hann þýddi verkið einnig á íslensku.
Fleiri sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra
Í desember frumsýndi Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir Oskar Braaten. Sýningum verður nú haldið áfram vegna fjölda áskorana. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Verkið var sett upp í tilefni af 70 ára afmæli félagsins, en var áður á fjölunum hjá félaginu árin 1945 við fádæma vinsældir.
Opinn samlestur hjá Hugleik
Nú er að fara af stað uppsetning á söngleiknum Epli og Eikur hjá leikfélaginu Hugleik. Verkið er nýtt af nálinni en höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir en verk hennar, Kolrassa, sló í gegn hjá félaginu árið 2002. Leikstjóri verður Oddur Bjarni Þorkelsson. Þetta er í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá Hugleik, en hann hefur verið […]
Power of Love – Hið fullkomna deit
Þann 14. janúar frumsýnir leikhópurinn Brilljantín einleik eftir Halldóru Malin Pétursdóttur á efri hæð Austurbæjar í Silfurtunglinu. Verkið sem er samstarfsverkefni ÍsMedía í Austurbæ og leikhópsins Brilljantín verður aðeins sýnt í viku.
Þjóðleikhúsið á nýju ári
Starfsemi Þjóðleikhússins er að komast á fullt skrið á nýju ári. Á stóra sviðinu eru þrjár sýningar í gangi. Bakkynjur, grískur harmleikur eftir Evrípídes var jólafrumsýning hússins og hefur hún vakið verðskuldaða athygli en verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Ný þýðing Kristjáns Árnasonar, leikstjórn og sviðsetning grískra leikhússnillinga, tónlist Atla Ingólfssonar […]
Leikfélag Kópavogs 50 ára
Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrrverandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins. Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir afmælisgesti, margir félagar munu stíga á svið […]
Klikkað verk um klikkun
Jólasýning Borgarleikhússins er verkið Ófagra veröld eftir Anthony Neilson. Það verður frumsýnt 29.desember. Ófagra veröld er ævintýri sem hefur sterka tilvísun í Lísu í Undralandi eftir Lewis Carol. Líkt og í sögu Lewis Carol er verkið lýsing á samfélaginu, gildum þess, þversögnum og áskorunum, um leið og það er þroskasaga Lísu. Við ferðumst með Lísu […]
Leiklistarnámskeið og -hátíðir
Undanfarin ár hefur aðgengi að upplýsingum um alþjóðleg leikhúsnámskeið og leiklistarhátíðir batnað til muna. Slíkir viðburðir eru nú til dags yfirleitt með heimasvæði á netinu. Einstaklingar og leikhópar hvaðanæva úr heiminum geta yfirleitt sótt um þátttöku, oftast í gegnum internetið. Nú er komið sérstakt svæði á vef IATA (International Amateur Theatre Association) með upplýsingum um […]
Tryllingur og hömluleysi
Jólaleikrit Þjóðleikhússins árið 2006 er Bakkynjur eftir Evrípídes. Frumsýning verður 26. desember og þetta er í fyrsta sinn sem verkið er sýnt á Íslandi. Bakkynjur er eitt frægasta leikrit grísku gullaldarinnar í leikritun og talið til harmleikja þótt það lúti ekki allskostar lögmálum hefðbundinna harmleikja. Hér birtist það í glænýrri þýðingu Kristjáns Árnasonar. Í verkinu […]
Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra
Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra eru í kvöld kl: 20:00 og á morgun laugardaginn 16. desember kl. 20.00. Þetta eru síðustu forvöð til að sjá hvernig íslenskt áhugaleikhús skemmti landsmönnum á fyrri hluta síðustu aldar. Þetta verk fékk 15.000 áhorfendur þegar það var sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar árið 1943. Fyndið og alveg meinfyndið líka. Miðapantanir […]
Ljónalandið í Jaðarleikhúsinu
Barnasöngleikurinn Ljónalandið eftir Brigitte og Herwig Thelen, í þýðingu og leikstjórn Ívars Helgasonar verður frumsýnt í Jaðarleikhúsinu sunnudaginn 17. desember næstkomandi, kl 16.00. Ljónalandið gerist á sléttum Afríku, þar sem hin ógurlega silfurslanga legst yfir landið, skilur að hjarðirnir og mengar vatnsbólin. Dýrin þurfa að taka til sinna ráða til þess að berjast gegn þessari […]
Memento Mori á leiklistarhátíð í Kóreu
Árið 2004 settu Hugleikur og Leikfélag Kópavogs upp verkið Memento Mori. Verkið var unnið í samstarfi þátttakenda úr félögunum tveimur og leikstjórans Ágústu Skúladóttur, en handrit skrifaði Hrefna Friðriksdóttir. Sýningin fór síðan á fjölþjóðlega leiklistarhátíð á Akureyri árið 2005 og var þar valin besta sýning hátíðarinnar með meiru. Síðastliðið sumar var síðan farið með sýninguna […]
Aukasýning á Jólaperu
Þar sem uppselt er á Jólaperu helgileikinn um Jósef frá Nasaret sunnudaginn 10. desember kl. 18.00 hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu sama dag kl. 20.00. Enn eru nokkrir miðar lausir á sýninguna 17. desember kl. 18.00. Söngleikurinn var frumsýndur fyrir fullu húsi fyrsta sunnudag í aðventu á efri hæð Grand Rokk við Smiðjustíg. […]
Varaðu þig á vatninu Jólasýning
Laugardaginn 9. desember sýnir Leikfélag Mosfellssveitar jólasýningu á verkinu Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen í leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarssonar. Miðaverð verður aðeins kr. 1.200 á þessa sýningu og boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Einnig munu þrír heppnir leikhúsgestir hafa með sér jólatré heim.
Jólabónus Hugleiks
Nú fer aðventan í hönd og þá er hefð fyrir því að leikfélagið Hugleikur bregði sér í jólafötin og skemmti sér og öðrum sem aldrei fyrr. Jóladagskrá Hugleiks heitir að þessu sinni Jólabónus og verður framin í Þjóðleikhúskjallaranum þriðjudaginn 5. og fimmtudaginn 7. desember klukkan 21.00. Leikfélagið Hugleikur fékk á dögunum viðurkenningu á degi íslenskrar […]
Lokasýning á Umbreytingu í Þjóðleikhúsinu
Á síðasta leikári leysti Kassinn, hið nýja svið Þjóðleikhússins við Lindargötu, Litla sviðið af hólmi sem leiksvið, og nú hefur Litla sviðið hlotið nýtt nafn, Kúlan, og öðlast nýtt hlutverk fyrir leikhúsgaldur og leiklistaruppeldi. Vígslusýning Kúlunnar var sýning brúðusnillingsins Bernds Ogrodniks, Umbreyting Ljóð á hreyfingu, sem var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík á liðnu […]
Helgileikur um Jósef frá Nasaret
Sunnudaginn 3. desember klukkan 18.00 frumsýnir leikhópurinn Peðið söngleikinn Jólapera – helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk. Jólapera er þriðja leikverkið sem Peðið setur upp en áður hefur hópurinn sýnt leikritið Lamb fyrir tvo og söngleikinn Barpera. Báðar sýningarnar voru liður í Menningarhátíð Grand Rokk en leikhópurinn samanstendur af fastagestum og velunnurum staðarins. […]
Ráðskona Bakkabræðra í Hafnarfirði
Laugardaginn 2. desember frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir norska leikskáldið Oskar Braaten. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og taka 12 manns þátt í sýningunni. Leikfélag Hafnarfjarðar heldur nú í ár upp á 70 ára afmæli sitt og í tilefni af því var sýnt nýtt íslenskt verk, Hin endanlega hamingja, eftir Lárus Húnfjörð, í byrjun […]
Höfundur Herra Kolbert til Íslands
David Gieselmann, höfundur Herra Kolberts, er væntanlegur til Íslands til að sjá rómaða uppfærslu á leikriti sínu hjá LA. Verk Gieselmanns hafa verið sýnd um allan heim en Herra Kolbert er hans þekktasta verk en það hefur verið sýnt um nær alla Evrópu auk Bandaríkjanna, Ástralíu og Suður Ameríku. Gieselmann þáði boð um að koma […]
Brot af því besta
Upplestrakvöld eru orðin fastir liðir í Borgarleikhúsinu á aðventunni. Rithöfundar munu þetta árið lesa úr verkum sínum fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.00 og fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20.00. Fimmtudagskvöldið 30. nóvember lesa höfundarnir: Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon úr verkum sínum. Fimmtudagskvöldið 7. desember er […]
