Æfingar hefjast á Selfossi
Leikfélag Selfoss hefur nýja árið með trukki og dýfu sunnudaginn 8. janúar, en þá verður fyrsti samlestur á vorverkefni félagsins. Verkefnið er frumsamið sögulegt leikverk byggt á heimildum um Þuríði formann og Kambsránið, ritað af Sigurgeiri Hilmari Friðþjófssyni. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson. Samlesturinn hefst klukkan 14:00 og eru allir áhugasamir velkomnir.
Ljósanámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Helgina 7.-8. janúar næstkomandi heldur Leikfélag Hafnarfjarðar námskeið í ljósastjórnun í leikhúsi. Kennari er Egill Ingibergsson sem er gamalreyndur í faginu og hefur hannað lýsingar í fjölmörgum leiksýningum gegnum árin. Kennd verða undirstöðuatriði lýsingar fyrir leikhús auk þess sem farið verður ítarlega yfir notkun og notkunarmöguleika ETC Express ljósaborða við ljósastjórnun. Námskeiðið er tveir dagar, […]
Samkeppni ÍD og LR um dansleikhús
Vilt þú hafa áhrif á þróun dansleikhúss á Íslandi? Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn óska eftir hugmyndum að dansleikverkum fyrir blandaðan hóp leikara og dansara. Listafólk er hvatt til að taka áskoruninni!
Aukasýning á Jólaævintýri Hugleiks
Þótt seint verði sagt um áhugaleikfélög landsins að þau séu of vel haldin fjárhagslega, er víst að þau „gleyma ekki sínum minnsta bróður“. Þannig hefur Hugleikur ákveðið að bæta við einni aukasýningu á Jólaævintýri sínu þar sem fólki sem að öllu jöfnu á þess ekki kost að sækja leiksýningar er boðið. Öðrum gefst þó tækifæri […]
Leiklistarnámskeið á vegum Andagiftar ehf.
Börn og unglingar hafa gaman af að stíga á svið og er það reynsla okkar eftir að hafa haft hátt í 300 börn á námskeiði fyrir rúmu ári síðan. Við höfum því ákveðið að bæta við námskeiði en alls sjá þrír kennarar ásamt gestakennara sjá um kennsluna á þessu námskeiði. Markmið námskeiðsins er að kynnast starfsemi leikhúsa […]
Halaleikhópurinn setur upp Pókók
Heildarhugmynd leikrits getur breyst ef einhver af persónunum er látin fá einhverja fötlun. Hvað ef Hamlet væri í hjólastól? Hvað ef óvinurinn í Gullna Hliðinu væri dvergvaxinn, verður hann þá jafn ógnvænlegur? Hvað ef Makki hnífur væri á hækjum? Hvað ef Fílamaðurinn væri ófatlaður, en allir aðrir í leikritinu ættu við einhverja fötlun að stríða? […]
Belgíska Kongó tekið upp
Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu 2 leikár í röð. Vegna fjölda áskoranna hefur nú verið ákveðið að taka verkið aftur upp e. áramót. Fyrsta sýning verður 7. janúar. Eggert Þorleifsson hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestan leik í aðalhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Bankastarfsmaðurinn Rósar […]
Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006
Leiklistarsamband Íslands-ITI hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson, leikskáld, til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem sýnt var af Vesturporti. Í dómnefnd fyrir hönd Leiklistarsambandsins sátu þau Sveinbjörn I. Baldvinsson leikskáld, Steinunn Knútsdóttir leikstjóri og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur.
Eldhús eftir máli
Eldhús eftir máli – Hversdaglegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á nokkrum smásögum Svövu Jakobsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 29. desember nk. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Opni listaháskólinn
Sjá Listaháskóla Íslands – Leiklistardeild
Listaháskóli Íslands – Leiklistardeild
www.lhi.is
Vesturport
Leikhópurinn Vesturport hefur sett upp margar þekktar leiksýningar hér heima sem og erlendis. Netfang gisli@vesturport.com Vefsíða www.vesturport.is
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa
www.leikhopar.is
Túskildingsóperan frumsýnd annan í jólum
Jólaverkefni Þjóðleikhússins að þessu sinni er Túskildingsóperan eftir Bertolt Brecht og Kurt Weill. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Þegar sómakærir Íslendingar eru rétt búnir að kyngja jólaöndinni sprettur fram hinn forboðni ávöxtur leikhúsjöfranna Bertolts Brecht og Kurts Weill. Þetta óperuútfrymi gerði allt vitlaust þegar það var frumsýnt í Berlín 1928.
„Gott að minnast þess hve lánsöm við erum“
Fulltrúi Leiklistarvefsins heldur áfram umfjöllun um áhugaleikhópinn Fire and Ice Theatre á Keflavíkurflugvelli: „Þetta verk hentar einstaklega vel á þessum tíma nú þegar jólin nálgast. Það gerir okkur öllum gott að minnast þess hversu lánsöm við í raun erum og þetta verk hjálpar svo sannarlega til við það. Það minnir okkur á hversu lánsöm við […]
Gaman að sjá allt ganga upp
Meðlimir Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa sl. aldarfjórðung rekið leikhópinn Fire and Ice Theatre. Fulltrúi Leiklistarvefsins heimsótti leikhópinn og fékk að fylgjast með upptökum á tveimur útvarpsleikritum tengdum jólunum sem útvarpað verður uppi á velli síðar í vikunni.
Námskeið í tengslum við Pétur Gaut
Í febrúar og mars stendur Þjóðleikhúsið fyrir námskeiði fyrir almenning í tengslum við sýningu leikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen. Pétur Gautur verður opnunarsýning Kassans, sem er nýtt leiksvið í Þjóðleikhúsinu. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að opna þátttakendum heim leikhússins og gefa þeim innsýn inn í aðferðir þess.
Öskubuska í Óperunni
Óperan Öskubuska (La Cenerentola) eftir Rossini verður frumsýnd í Íslensku óperunni 5. febrúar 2006. Texti óperunnar er eftir Jacopo Ferretti og var Öskubuska frumsýnd í Róm 25. janúar 1817. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi.
Brúðkaupið heldur áfram
Seinni hluti leikárs Leikfélags Akureyrar hefur verið stokkaður upp og sýningartími Fullkomins brúðkaups framlengdur vegna fjölda áskorana. Frumsýningu Maríubjöllunnar verður flýtt og nýtt leikrými verður tekið í notkun en frumsýningu Litlu hryllingsbúðarinnar verður seinkað.
Síðustu sýningar fyrir jólin
Leikhúsin gera hlé á sýningum síðustu dagana fyrir jól en leikhúsunnendur geta ennþá fundið eitt og annað áhugavert á fjölunum. Hugleikur sýnir Jólaævintýrið í Tjarnarbíói á laugardag og sunnudag og Leikfélag Hafnarfjarðar verður með aukasýningu á Hinni endanlegu hamingju í gamla Lækjarskóla á föstudginn.
Sex í sveit, aukasýning
Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs á Sex í sveit á Iðavöllum. Sýningin verður á föstudagskvöld klukkan 20 og er þetta allra síðasta sýning! Sex í sveit hefur fengið frábærar móttökur og uppselt hefur verið á flestar sýningar á Iðavöllum. Þegar hafa á níunda hundrað manns séð verkið sem er bráðfyndinn farsi […]
Fræðsludeild Þjóðleikhússins
Sjá Þjóðleikhúsið.
Halldór í Hollywood
Sýningum er að ljúka á Halldóri í Hollywood. Allra síðasta sýning verður á laugardagskvöldið 10. desember. Það er Atli Rafn Sigurðarson sem fer með hlutverk Nóbelskáldsins, um tónlistarstjórn sér Árni Heiðar Karlsson en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Hin endanlega hamingja, aukasýning
Ákveðið hefur verið að bæta við einni sýningu á leikritinu "Hin endanlega hamingja" eftir Lárus Húnfjörð vegna mikillar aðsóknar. Sýningar verða því sem hér segir: Fimmtudagur 8. desember kl. 20:00 Uppselt Laugardagur 10. desember kl. 20:00 Nokkur sæti laus Föstudagur 16. desember kl. 20:00 AUKASÝNING Miðapantanir í síma 848 0475 "Það er víst […]
90 ára 19. desember
Edith Piaf, ein frægasta söngkona heims, hefði orðið 90 ára gömul 19. desember nk. Af því tilefni verður flutt í Þjóðleikhúsinu söngdagskrá um Edith Piaf úr samnefndri sýningu leikhússins.
Útvarpsleikhúsið
www.ruv.is/leikhus
Síðustu sýningar fyrir jól
Leikfélag Keflavíkur hefur undanfarið verið að sýna leikritið Trainspottting, eftir Harry Gibson byggt á sögu Irwin Welsh. Þýðing er eftir Megas en leikstjóri er Jón Marinó Sigurðsson.
Það besta við jólin
Út er kominn hljómdiskurinn „Það besta við jólin“ eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Diskurinn hefur að geyma fimmtán ný íslensk jólalög sem Þórunn hefur samið á síðustu árum. Þórunn hefur verið í leikfélaginu Hugleik frá árinu 1997 og hefur mikið af tónlistinni áður verið flutt á vettvangi félagsins. Þórunn hefur einnig samið mikið af tónlist og leikritum […]
Þetta er strútur, skiluru!
Leikhópurinn Lopi frumsýndi leikverkið: ÞETTA ER STRÚTUR, SKILURU! í Mánagarði miðvikudaginn 30. nóvember. Leikverk þetta er samið af leikstjóranum Magnúsi J. Magnússyni og leikhópnum. 16 leikarar leika í sýningunni en alls koma um 25 manns að verkinu.
Þrjár systur í Nemendaleikhúsinu
Frumsýning Nemendaleikhúss Listaháskólans á leikritinu Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov fer fram sunnudaginn 4. desember n.k. kl. 20.00 á Litla sviði Borgarleikhússins. Þrjár systur er annað verkefni Nemendaleikhússins í vetur en hópurinn hefur vakið athygli í haust með kraftmikilli og ögrandi sýningu á leikritinu Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson.
Sýningum að ljúka í Kópavogi
Nú eru einungis tvær sýningar eftir á leikritinu ÞAÐ GRÆR ÁÐUR EN ÞÚ GIFTIR ÞIG í leikstjórn Sigrúnar Sólar Næstsíðasta sýning er á fimmtudaginn 1. desember og síðasta sýning er sunnudaginn 4. desember. Sýningar hefjast kl. 20:00. Miðapantanir í síma 554 1985 og á midasala@kopleik.is Frekari upplýsingar er a finna á heimasíðu félagsins.
Hugarflug á Selfossi
Þá er Leikfélag Selfoss að hefja enn eitt leikár sitt í Leikhúsinu gamla við Sigtún. Í haust var auglýst eftir þátttakendum í svonefndu Hugarflugi en þá er unnin sýning úr þeim hugmyndum sem fram koma á fyrstu vinnufundum með leikhópnum. Umsjón með þessari grasrótarvinnu hafa þær Íris Magnúsdóttir og GuðfinnaGunnarsdóttir haft mest á sinni könnu.
Brot af því besta
Upplestur og lifandi tónlist fimmtudagskvöldin 1.og 8. desember klukkan 20 í anddyri Borgarleikhússins.
Ævintýrið um Augastein
Leikhópurinn Á senunni sýnir hina margrómuðu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin. Sýningar verða á Akureyri dagana 10. – 12. desember og í Reykjavík dagana 14. – 18. desember. Sýningar á Akureyri eru í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Barnabókin Ævintýrið um Augastein […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýningin
Umsóknareyðublað vegna Athyglisverðustu áhugaleiksýningar ársins er nú tiltækt á vefnum. Eyðublaðið er í PDF-formi og áhugasamir geta hlaðið því niður með því að hægrismella hér og vista á eigin tölvu.
Sjö heimar upphafningarinnar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Hina endanlegu hamingju, nýtt íslenskt leikrit eftir Lárus Húnfjörð, laugardaginn 26. nóvember síðastliðinn. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur staðið öðrum félögum framar undanfarin ár í að leika sér með skilin á milli leikara og áhorfenda og sett upp nokkrar eftirminnilegar slíkar sýningar.
Fimm þúsundasti gesturinn
Leiksýningin Fullkomið brúðkaup hefur notið fádæma vinsælda frá því hún var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar þann 20. október sl. Troðfullt hefur verið á allar sýningar og til að mæta eftirspurn hefur fjölda aukasýninga verið bætt við sem allar hafa selst upp jafn óðum. Fimm þúsundasti gesturinn mun sjá sýninguna nú á seinni sýningu verksins á […]
Frumsýning hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 26. nóvember leikritið “Hin endanlega hamingja”. Höfundur og leikstjóri er Lárus Húnfjörð. “Hin endanlega hamingja” var unnin og skrifuð á æfingatímabilinu. Freysteinn, andlegur leiðtogi Helgidóms hinnar endanlegu hamingju er horfinn á brott. Mun söfnuðurinn jafna sig á þessu áfalli? Tæklar Sigurmar nýja hlutverkið sem leiðtogi? Heldur Elínborg, ekkja Freysteins sönsum? Er […]
Leikfélag Rangæinga vekur upp drauga
Nú eru nokkur ár síðan Leikfélag Rangæinga hefur sett upp leiksýningu en þá sýndi félagið Emil í Kattholti. Nokkrir áhugasamir félagar í leikfélaginu hafa nú tekið sig saman og sett saman sýninguna Vakið upp drauga.
Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Nýtt aðventuævintýri eftir Þorvald Þorsteinsson, Leitin að jólunum, með tónlist Árna Egilssonar verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 26. nóvember nk. kl. 14:00. Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum fléttast inn í ævintýrið. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
