Beint í æð hjá Leikfélagi Keflavíkur
Hvað gerir taugaskurðlæknir þegar gömul hjásvæfa hans mætir, óumbeðin, rétt áður en hann á að flytja mikilvægasta fyrirlestur ferilsins og tilkynnir honum það að hann eigi fullvaxta son? Af hverju er löggan komin í málið? Af hverju grettir Grettir Sig sig? Hvað ætli Súsanna, konan hans, segi? Hvað er Páll Óskar að gera þarna? Hver er Loftur? Hvað er málið með Mannfreð og Gróu? Hvar er yfirdeildarhjúkrunarfræðingurinn? Leikfélag Keflavíkur setur upp sprenghlægilega gamanleikinn Beint í æð í leikstjórn Jóels Sæmundssonar í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Frumsýning er föstudagskvöldið 5. febrúar í Frumleikhúsinu við Vesturbraut. Miðasala er hafin á tix.is Vegna...
Read More


