Karíus og Baktus á Akureyri
Laugardaginn 23. september verður hið sígilda barnaleikrit Karíus og Baktus eftir Thorbjorn Egner frumsýnt hjá LA. Verk Thorbjorns Egners eru ætíð vinsæl en þetta er í fyrsta sinn sem Karíus og Baktus eru settir upp norðan heiða. Í uppsetningu LA er tónlistin flutt í nýrri og grallaralegri útgáfu hljómsveitarinnar 200.000 naglbítar. Karíus og Baktus verða […]
Fagnaður eftir Harold Pinter aftur á svið
Fagnaður eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter í leikstjórn Stefáns Jónssonar verður tekinn til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu og að þessu sinni á Stóra sviðinu. Fyrsta sýningin verður sunnudaginn 24. september n.k. Harold Pinter, eitt frægasta leikskáld samtímans, hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Þjóðleikhúsið sýnir nýjasta leikrit hans, Fagnað, sem hlaut þá umsögn gagnrýnanda þegar […]
Námskeið í Rússlandi
Bandalag rússneskra leikfélaga (STD), í samstarfi við alþjóðasamtök áhugaleikfélaga, AITA/IATA heldur alþjóðlegt námskeið sem gengur undir nafninu "The Stanislavsky Method Today / Practical Training for Actors and Directors of the Amateur Theatre" dagana 26. apríl til 4. maí 2007. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2006.
Stuttverkasamkeppni 2006
Í kvöld lýkur rennur út skilafrestur fyrir Stuttverkasamkeppnina. Á miðnætti í kvöld, fimmtudaginn 26. október þurfa handrit að hafa borist. Smelltu á tengilinn hér að neðan til að fá nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag.
108 prOtOtype
108 PROTOTYPE er röð mánaðarlegra sýninga þar sem listamenn frá hinum ýmsu listgreinum hafa tækifæri til þess að sýna verk sína. Markmið sýninganna er að skapa umhverfi þar sem megináherslan er lögð á sköpunarferlið, tilraunir og nýjar hugmyndir. Opnum umræðum milli áhorfenda og listamanna verður stjórnað í lok hverrar sýningar.
Japönsk heimsfrumsýning í Þjóðleikhúsinu
Japanski leikhópurinn Theatre du Sygne frumsýnir Snegla tamin eða Taming of the Shrew eftir William Shakespeare á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 16. september kl. 20.00. Sýningin kemur til Íslands í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að Japan og Ísland tóku upp stjórnmálasamband.
Vinnusmiðja Þjóðleikhússins 2006-2007
Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í […]
Aðalfundur 6. og 7. maí 2006
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 6.-7. maí 2006 1. Guðrún Halla Jónsdóttir formaður bauð fundargesti velkomna. Hún stakk upp á Grétari G. Guðmundssyni, Leiklistarf. Seltjarnarness, og Ingólfi Þórssyni, Freyvangsleikhúsinu, sem fundarstjórum, það samþykkt. Halla stakk jafnframt upp á Ármanni Guðmundssyni, starfsmanni skrifstofu, og Dýrleifi Jónsdóttur, Leikf. Hafnarfjarðar, sem fundarriturum. Það samþykkt. 2. Regína […]
Ljósanámskeið
Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Um er að ræða tvískipt námskeið. Laugardagurinn verður fyrir alla er koma […]
No(h)ra tvöföld
Útsendari Leiklistarvefjarins brá sér að japanska sýningu í Þjóðleikhúsinu: Það var forvitni um undarlegar stefnur og hefðir í leikhúsi sem rak mig til að fara að sjá gestasýningu frá Natori-leikhúsinu í Japan í Þjóðleikhúsinu síðasta laugardagskvöld. Mér þótti spennandi að sjá Noh-formið, og að efniviðurinn væri Brúðuheimili eftir Ibsen þótti mér hálfgert aukaatriði. Enda finnst […]
Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir
Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund laugardaginn 16. september 2006 í Hjáleigu Leikfélags Kópavogs, Fannborg 2, Kópavogi. Fundurinn hefst klukkan 13:00. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundastörf og önnur mál. Kosið verður í stjórn, farið yfir starf síðustu tveggja ára og farið yfir fjármálin. Auk þess verður starfið framundan rætt. Mikilvægt er að félagsmenn mæti til þess að tjá sig […]
Tvö námskeið í leikhúsförðun
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir tvö námskeið í leikhúsförðun í október nk.Kennari á báðum námskeiðunum er Gréta Boða leikhúsförðunarfræðingur og hárkollumeistari.Skráningu lýkur 15. september á bæði námskeiðin!
Leiklistarnámskeið
Nokkur pláss eru laus á leiklistarnámskeið sem leikfélagið Hugleikur stendur fyrir nú í september. Námskeiðið er ætlað leikurum, jafnt reyndum sem þeim sem minni hafa reynsluna. Áhersla verður lögð á líkamlega tjáningu og að hætta að hugsa. Kennari verður leikarinn og leikstjórinn Agnar Jón Egilsson. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Tímaáætlun […]
Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2006
Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi dagana 29. september til 1. október. Í boði verða námskeið í stjórnun leikfélaga, málþing um Leiklistarskóla Bandalagsins og almennar umræður um málefni áhugaleikhússins.Tilkynna þarf þátttöku fyrir 12. september.
Theatre in Iceland 2004-2006
Ritið Theatre in Iceland sem Leiklistarsamband Íslands og Menntamálaráðuneytið gefa út er nú tiltækt hér á vefnum. Ritið fjallar aðallega um leiksýningar atvinnuleikhúsa á Íslandi árin 2004 til 2006 en einnig er yfirlit yfir frumuppfærslur áhugaleikhúsanna á íslenskum verkum. Einnig má finna þar upplýsingar um handhafa Grímunnar umrætt tímabil auk ýmissa annarra upplýsinga. Ritið er […]
Leikfélag Reykjavíkur í 110 ár
Opið hús verður í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 3. september milli 3-5. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vetrarstarfið verður kynnt hjá Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum og Sönglist. Persónur úr verkum vetrarins spígspora um leikhúsið. Hvað gerist þegar Hitler og Ronja mætast? Eða Mozart og Tarzan?
Enn laust á námskeið í leiklistarkennslu
Enn eru nokkur pláss laus á námskeið í leiklistarkennslu á vegum FLÍSS, Félags um leiklist í skólastarfi og fræðsludeildar Þjóðleikhússins. FLÍSS hefur fengið hinn þekkta dramasérfræðing Jonothan Neelands prófessor við University of Warwick í Englandi til þess að halda tvö námskeið hér á landi. Námskeiðin verða haldin í einum af sölum Þjóðleikhússins, laugardaginn 2. september […]
Leikárið í Þjóðleikhúsinu
Nýbreytni er eitt af því sem einkennir verkefnaskrá Þjóðleikhússins í vetur, en leikhúsið frumflytur nú tíu verk á Íslandi, ný íslensk og erlend verk og sígilt verk sem ekki hefur verið sviðsett hér áður. Nýr gamanleikur, eitt af meistaraverkum grísku gullaldarinnar, íslensk leikgerð á vinsælli barnabók, „vísindasöngleikur“ eftir einn af höfundum ungu kynslóðarinnar, áhrifamikil erlend […]
LA kynnir næsta leikár
Leikfélag Akureyrar hefur nú birt dagskrá leikársins 2006-2007. Áfram er unnið eftir sömu stefnu og verið hefur og sérstök áhersla lögð á að ná ekki síður til yngri leikhúsgesta en þeirra sem eldri eru. Liðið leikár sló öll met er varða aðsókn og ljóst að LA er í mikilli sókn.
Wuppertal dansleikhús á Íslandi
Hið heimsfræga Wuppertal dansleikhús undir stjórn Pinu Bausch, er væntanlegt til Íslands. Pina Bausch er án efa einn áhrifamesti sviðslistamaður seinni tíma og er það mikill fengur fyrir íslenska áhorfendur að fá að njóta snilli hennar. Sýningin Aqua er stórbrotin sýning sem unnin var í samráði við borgina Sao Paolo í Brasilíu.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs 40 ára
Leikfélag Fljótsdalshéraðs var stofnað á Egilsstöðum 31. ágúst 1966 og á því 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður mikið um að vera á leikárinu og hófst það reyndar með því að leikritið Miðsumarnæturdraumar, eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu, var sett upp í Selskógi. Guðjón Sigvaldason leikstrýrði. Sýningin tókst vel og áhorfendur […]
Jaðarleikhúsið opnað
Á laugardaginn verður haldin opnunarhátið Jaðarleikhússins, tilrauna- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar. Haldið verður upp á opnunina með leikhúsgjörningi, listaverkum, umræðum og fleiru. Auk þess verður boðið upp á kaffi og meðlæti. Alþjóðlegi leikhópurinn Dan Kai Teatro kemur fram. Leikhúsið er staðsett að Miðvangi 41, á bak við Samkaup (gamla apótekið) í Hafnarfirði. Miðaverð er kr. 1000, […]
Ýmislegt framundan hjá LA
Fleiri aukasýningar Færri komust að en vildu á Litlu hryllingsbúðina í vor. Vegna fjölda áskorana hefur tekist að bæta við örfáum aukasýningum í byrjun september. Einungis verður sýnt í þrjár helgar og því takmarkað magn miða í boði. Sala er hafin og miðarnir rjúka út. Sýningardagar eru: 2/9, 3/9, 8/9, 9/9, 10/9, 15/9 og 16/9. […]
Leiklestur fyrir börn á Menningarnótt
Kl. 17:30 á laugardaginn verður dagskrá fyrir börn í Lisatasafni Íslands. Dagskráin er unnin í samhengi við þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar sem nú eru á sýningu safnsins. Leiklestrar verða á íslensku og ensku við myndirnar í flutningi Kristínar G. Magnús. Einnig verður sett upp sýning á verkum barna tengdum þjóðsögum í vinnustofu. Verkefnið er í samvinnu […]
How do you like Iceland?
Síðasta almenna sýningin á How Do You Like Iceland? eftir BenónýÆgisson verður miðvikudaginn 16. ágúst kl. 20:30 í Iðnó. Leikritið, sem er á ensku, var frumsýnt í fyrra sumar og hlaut góðar viðtökur og gagnrýni. How Do You Like Iceland? (Er Ísland eftirlæti yðar, í lauslegri þýðingu) fer með áhorfandann í bráðfyndna en fræðandi skemmtiferð […]
Sartre á Menningarnótt
Taktu frá laugardagskvöldið 19. ágúst næstkomandi. Þér er hér með boðið á leiksýningu í Tjarnarbíói klukkan 19:00 á Menningarnótt. Heimspeki- og menningarfélag Menntaskólans á Akureyri (HOMMA) og Leikklúbburinn Saga setja á svið leikritið Fyrir luktum dyrum eftir Jean-Paul Sartre. Verkið er í þýðingu Ásgeirs Berg Matthíassonar, sem einhverjir kunna að þekkja sem fyrirliða Gettu betur […]
Purpura, frumsýning á Íslandi
Föstudaginn 18. ágúst, mun Leikhópurinn Jelena frumsýna sitt fyrsta verk, Purpura. Verkið heitir Lilla á upprunamálinu og er fyrsta uppsetning á Íslandi eftir einn mest leikna rithöfund Evrópu í dag, Jon Fosse. Verkið var þýtt af Álfrúnu Örnólfsdóttur en leikstjóri sýningarinnar er Friðrik Friðriksson.
Hryllingsbúðin og Brúðkaupið
Síðustu aukasýningar hjá LA frá fyrra leikári. Sem kunnugt er var gríðarleg aðsókn að sýningum LA á síðasta leikári. Aldrei hafa fleiri sótt sýningar leikhússins á Akureyri en til viðbótar sóttu þúsundir leikhúsgesta sýningar leikhússins í Reykjavík. Tvær sýningar voru á fjölum syðra í vor, Fullkomið Brúðkaup og Litla hryllingsbúðin. Til að mæta fjölda áskorana […]
Frú Norma frumsýnir
Atvinnuleikhópurinn Frú Norma hefur verið stofnaður á Austurlandi. Stofnendur eru þau Halldóra Malin Pétursdóttir, leikkona, Stefán Benedikt Vilhelmsson, leiklistarnemi og Guðjón Sigvaldason, leikstjóri. Auk þeirra starfa með hópnum þau Kristrún Jónsdóttir, búningahönnuður, Ríkharður Hjartar Magnússon, leikmyndasmiður, Bergvin Snær Andrésson, ljósamaður, Árni Geir Lárusson, tónlistarmaður og Kristín Nanna Vilhelmsdóttir sem aðstoðar við handritsgerð.
Síðustu sýningar á Máfnum
Leikfélagið Sýnir sýnir leikritið Máfinn eftir Anton Tjekhof. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, en hann leikstýrði einnig uppsetningu leikfélagins á Stútungasögu í Heiðmörk fyrir tveimur árum. Sýningum fer að ljúka, en aðeins eru eftir tvær sýningar, fimmtudagurinn 10. ágúst klukkan 19:00 í Elliðaárdal laugardagurinn 12. ágúst klukkan 17:00 á Dalvík – Fiskideginum mikla, sýnt […]
Úti bíður andlit á glugga
Um þessar mundir er verið að sýna einleikinn Úti bíður andlit á glugga í gamla pósthúsinu á Borgarfirði Eystra. Höfundur, leikari og leikstjóri er Halldóra Pétursdóttir. Sesselja Traustadóttir var á staðnum og hér kemur umfjöllun hennar um sýninguna: Laugardaginn 28. júlí var gríðarlega mikið um að vera á Borgarfirði eystra. Veðrið lék við heimamenn og […]
Artfart sviðslistahátíð
Artfart – sviðslistahátíð fer fram dagana 10. – 20. ágúst næstkomandi. Hátíðin er tilraunavettvangur ungs listafólk með það að markmiði að stuðla að nýsköpun og framúrstefnu í íslenskri sviðlist. Að hátíðinni standa 8 hópar sem allir hafa það sameiginlegt að spyrja spurninga um tilgang og markmið sviðslista á Íslandi og tenginngu þeirra við aðrar listir […]
Memento mori á leiklistarhátíð NEATA
Leikhópur frá Hugleik og Leikfélagi Kópavogs er nú staddur í Færeyjum á leiklistarhátíð NEATA (Norður-Evrópska áhugaleiklistarsambandsins) með sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.Hópurinn heldur dagbók um ferðina sem lesa má á vefjum félaganna á kopleik.is og hugleikur.is.
Viðburði vantar á Menningarnótt!
Á Menningarnótt er fyrirhugað að vera með fjölda leiklistaruppákoma, gjörninga, stutt leikverk og dansverk í Tjarnarbíói svo eitthvað sé nefnt. Undirbúningsnefnd Menningarnætur leitar því að fjölbreyttum atriðum fyrir þessa dagskrá og geta allir sótt um að vera atriði.
Námskeið um leiklist sem kennslutæki
Nú gefst einstakt tækifæri til að kynna sér hvernig leiklist er notuð í kennslu. FLÍSS, félag um leiklist í skólastarfi hefur fengið hinn þekkta dramasérfræðing Jonothan Neelands prófessor við University of Warwick í Englandi til þess að halda tvö námskeið hér á landi. Námskeiðin verða haldin í einum af sölum Þjóðleikhússins, laugardaginn 2. september og […]
Tsjekoff í Elliðaárdalnum
"Leiksýningar undir berum himni hafa yfir sér sérstakan blæ. […] Aldrei er hægt að vita hvenær miðaldra hjón eða kjarnafjölskylda á skemmtigöngu birtast skyndilega á milli trjánna og horfa yfir sig hissa á Konstantín Tréplév deila við Írínu móður sína eða Trígorín daðra við Nínu." Útsendari okkar fór á sýningu á Máfnum hjá Leikfélaginu Sýnum […]
Máfurinn frumsýndur í Elliðaárdal
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikritið Máfinn eftir Anton Tsjekhoff þann 29. júlí næstkomandi kl. 15:00. Sýnt verður undir berum himni, en margir muna eftir uppsetningu leikfélagsins á Draumi á Jónsmessunótt í Elliðaárdal fyrir þremur árum. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, en hann leikstýrði einnig uppsetningu leikfélagins á Stútungasögu í Heiðmörk fyrir tveimur árum.
Tréhausarnir hafa talað! Hrund
Þá hafa menn væntanlega jafnað sig eftir gleði/vonbrigði fyrri Tréhaussins og eru tilbúnir í að takast á við þann seinni. Eins og gildir alltaf um störf gagnrýnenda, þá þurfa skoðanir þeirra engan veginn að endurspegla mat þjóðarinnar…
Miðnætursumardraumur frumsýndur
Í kvöld, föstudagskvöldið 21. júlí frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs hið bráðskemmtilega leikrit Miðsumarnæturdraumar eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu. Guðjón er jafnframt leiksstjóri.
Tréhausarnir hafa talað! Toggi
Hinir fráneygu og sívinsælu gagnrýnendur Morgunblaðsins Hrund Ólafsdóttir og Þorgeir Tryggvason hafa nú loksins gert upp leikárið hjá áhugaleikélögunum og útdeilt hinum eftirsótta Tréhaus. Það skal tekið fram að þótt þau hafi víða farið og margt séð, þá sáu þau ekki allar sýningar áhugaleikfélaganna vegna breyttrar ritstjórnarstefnu Moggans. Til að halda fólki spenntu þá birtum […]
