Author: lensherra

Leikfélagið Borg sýnir 39 þrep

Leikfélagið Borg frumsýndi 39 þrep eftir Patrick Barlow síðastliðinn laugardag. Sýningar verða alla föstudaga og laugardaga í mars kl 20:00. Herra Hannay er ósköp venjulegur, einmana piparsveinn í London. Dagar hans eru allir eins og fremur lítið að gerast í lífi hans. Óvænt flækist hann inn í sakamál þegar framið er morð í litlu íbúðinni hans. Þá upphefst flótti um leið og hann reynir að leysa ráðgátu sem skiptir sköpum fyrir loftvarnir landsins. Fallegar konur, stórundarlegur prófessor og lögreglumenn sem eru ekki það sem þeir virðast vera. Hvað verður um Hannay? Mun hann standa af sér allar áskoranirnar? Mun...

Read More

Leiklistarskóli BÍL 2021

Námsskrá Leiklistarskóla BÍL sumarið 2021 liggur nú fyrir. Í boði verða 4 námskeið, þau sömu og ætlunin var að halda síðasta sumar þegar Covid-19 setti strik í reikninginn og skólahald var fellt niður. Breyting hefur þó orðið á kennurum á tveimur námskeiðum. Nánari upplýsingar um skólahaldið er að finna hér. Opnað verður fyrir umsóknir hér 14. mars kl. 16.00. Þeir nemendur sem ekki fengu staðfestingargjald að fullu endurgreitt í fyrra er þegar skráðir á viðkomandi...

Read More

Leiklistarskólinn 2021

Starfstími skólans er að þessu sinni 19. – 27. júní 2021 að Reykjaskóla í Hrútafirði.  Kveðja frá skólanefnd Kæru leiklistarvinir!Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og fjórða sinn. Skólahald féll niður vegna Covid-19 síðasta sumar eins og allir vafalaust vita. Við vonum að þetta skólaár verði engu að síður sama uppspretta metnaðar, sköpunar og gleði og verið hefur öll þau ár síðan skólinn var fyrst settur.Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkominn Ólaf Ásgeirsson sem kennir hjá okkur í fyrsta sinn og verður með Leiklist II, sem er framhald af námskeiðinu sem Aðalbjörg Árnadóttir var með í hittifyrra. Einnig bjóðum við velkomna í fyrsta sinn í kennarahópinn, Völu Fannell sem kenna mun Leikstjórn I. Þá fögnum við því að fá Evu Björgu Harðardóttur og Ingvar Guðna Brynjólfsson til okkar með framhald á námskeiðinu Bak við tjöldin sem Eva Björg stýrði 2018 en Ingvar er hinsvegar að kenna við skólann í fyrsta sinn. Sérnámskeið um leikarann sem skapandi listamann verður svo í höndum hins þrautreynda kennara Rúnars Guðbrandssonar.Við vonum að sem flestir eigi þess kost að nema og njóta.Hlökkum til að sjá ykkur – með bestu kveðju,
 Hrefna, Dýrleif, Herdís, Hrund og Gísli   Leikstjórn I – Grunnnámskeið Kennari Vala FannellÞátttökugjald: 104.500 kr.Námskeiðið er grunnnámskeið fyrir leikstjóra. Þeir ganga fyrir sem ekki...

Read More

Höfundasmiðja hjá Hugleik

Árni Kristjánsson stýrir Höfundasmiðju hjá leikfélaginu Hugleik í febrúar og mars. Kennt verður yfir þrjár helgar í alls 18 tíma. Höfundar fá þjálfun í undirstöðuatriðum leikritunar með heilum haug af stuttum verklegum verkefnum. Verkefnin eru til þess ætluð að hjálpa höfundum við lokaverkefni smiðjunnar sem er heildstæður einþáttungur fyrir tvær persónur. Leikritunarsmiðjan kynnir einfaldar og aðgengilegar aðferðir sem styðja höfunda í hugmyndaleit, persónugerð, hraðskrifum, skrif útfrá takmörkunum, endurskrift og greiningu. Kennt er í húsnæði Hugleiks við Langholtsveg 111. Höfundar þurfa að geta komið með tölvu með sér en einnig stílabók og penna. Leikritunarsmiðjan hentar bæði reyndum og óreyndum höfundum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert