Ágústa Skúladóttir í vinnusmiðju FLÍSS

Næsta vinnusmiðja FLÍSS og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins verður haldin þriðjudaginn 20. febrúar næstkomandi.   Leiðbeinandi verður Ágústa Skúladóttir leikstjóri. Ágústa ætti að vera flestum kunn af verkum sínum undanfarin ár sem hafa sum hver notið mikilla vinsælda.   Ágústa Skúladóttir lærði leiklist hjá Monicu Pagneux, Philippe Gauliere, Theatre De Complicite, John Wright og David Glass. Hún […]

Leikfélag Hólmavíkur man hann Jörund

Leikfélag Hólmavíkur hefur nú æfingar á verkinu Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason. Leikstjóri er Skúli Gautason og stefnt er að frumsýningu þann 24. mars. Þið munið hann Jörund er eitt þekktasta verk þessa mikla leik- og tónskálds. Það hefur verið sett upp víða og tónlistin úr því er flestum kunn. Efni verksins er […]

Þjóðleikhúsið á bakvið blæju!

Þjóðleikhúsið æfir nú af fullum krafti leikritið Hálsfesti Helenu eftir margverðlaunaðan kanadískan höfund, Carole Fréchette. Verkið gerist á okkar tímum fyrir botni Miðjarðarhafs og er í stuttu máli stefnumót okkar vestrænu viðhorfa við þau austrænu, séð með augum aðalpersónunnar Helenu sem kemur úr norðri.

Sjáið Fiðlarann á þakinu!

Þegar sauðsvartur almúginn stígur á stokk og fremur list, er heilög skylda okkar hinna sem ekki nennum að vera með, að kemba hár okkar, fara í betri fötin og upplifa þessa list. En bíðum nú við! Heilög skylda! Almúginn! Er áhugamennska almúgans eitthvað frábrugðin atvinnumennsku elítunnar? Ég er ekki svo viss eftir síðustu inntöku mína […]

Leikhúsið sem farartæki

Febrúar er mánuður unga fólksins í Borgarleikhúsinu. Miðað verður að því leyfa ungu fólki að kynnast leikhúsmiðlinum. Ekki bara koma í leikhús og láta skemmta sér, heldur kynnast leikhúsinu sem faratæki fyrir skoðanir, tilfinningar og baráttumál.   Leikhúsið er öflugur miðill og finnst forráðamönnum Borgarleikhússins það mikilvægt að kynna möguleika þess fyrir ungu fólki.

Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt, á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli eru nú í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga sem verið að æfa þessa dagana. Leiklist er kennd í skólanum sem valgrein í 9. og 10. bekk og samtals 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú í Ungó leikverkið “Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt !” […]

Einu sinni var… Athugið breyttar dagsetningar!

Í vetur hefur leikfélagið Hugleikur flutt samsettar dagskrár í Þjóðleikhúskjallaranum. Í nóvember var sýnd dagskráin "Einu sinni var…" Dagskráin er spunnin úr gömlum örlagasögum sem ellefu manns segja úr eigin umhverfi og krydduð með tónlist, ýmist fornum stefjum eða tónlist sem tengist sögunum sem sagðar eru. Sýningin er afrakstur af námskeiði hjá Benedikt Erlingssyni og […]

Síldin kemur í Hörgárdalinn!

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á hinu sívinsæla leikriti Síldin kemur síldin fer eftir Kristínu og Iðunni Steinsdætur. Leikstjóri er Sunna Borg og tónlistarstjóri er Snorri Guðvarðarson. Leikritið lýsir lífi farandverkafólki á síldarárunum. Gleði þess og sorgum, vinnu, drykkju, ástum og samskiptum við heimafólk. Rauði þráðurinn er síðan togstreita síldarspekúlantsins við landeigandann sem á jörðina […]

Mistækur Draugadans Leikfélags MH

Það er alltaf áhugavert að fara á sýningar áhugaleikfélaganna í menntaskólunum. Þarna fer oft saman mikil sköpunarþörf, umtalsverðir hæfileikar og góð vinna leikstjóra og tæknifólks. Á meðan sum félögin róa á nokkuð örugg mið varðandi verkefnaval og krefjandi leiklistarsköpun eru önnur óhrædd við að taka áhættu í bæði verkefnavali og listrænum metnaði. Í þeim hópi […]

Lagst í Leg

Vinna er nú hafin af fullum krafti við tæknilega eina mest krefjandi sýningu Þjóðleikhússins fyrr og síðar, en það er söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust, en æfingar hófust af fullum krafti nú eftir áramótin. Verkið verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins 8. mars næstkomandi, en boðið verður […]

Fiðlarinn á þakinu

Ungmennafélagið Máni í Nesjum á hundrað ára afmæli í ár. Í tilefni af því setur leikhópur félagsins upp stórsýningu í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar. Félögin frumsýna söngleikinn Fiðlarann á þakinu föstudaginn 2. febrúar. Leikstjóri sýningarinnar er Ingunn Jensdóttir. Ingunn er Hornfirðingum að góðu kunn því er hún bjó þar á árum áður setti hún upp […]

Bingó!

Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa nú hafið samstarf í annað sinn. Hafnar eru æfingar á verkinu Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Þetta er frumuppfærsla verksins. Í leikritinu Bingó sameinast fimm manneskjur við þá heimsþekktu dægradvöl að spila bingó. Þau bregðast við þeim tölum sem koma upp og rifja upp lífið sitt. Spurningin […]

Langafi prakkari aftur í Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið hefur nú hafið sýningar á hinu vinsæla barnaleikriti “Langafa prakkara” sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns. Leikritið var fyrst sýnt á vegum Möguleikhússins á árunum 1999 til 2001 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð […]

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní.  Dansleikhús er vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur.  Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi […]

Samlestur á Gretti í Borgarleikhúsinu

Fimmtudag 1. febrúar verður haldinn opinn samlestur á Gretti á Stóra sviði Borgarleikhússins. Lesturinn hefst klukkan 10.00   Þetta er sögulegur atburður þar sem einvala lið leikara sameinar krafta sína í þessum frábæra söngleik undir styrkri stjórn Rúnas Freys Gíslasonar. Meðfylgjandi mynd er af Sigurveigu Jónsdóttur og Jóni Sigurbjörnssyni í hlutverkum sínum í uppfærslu verksins […]

Nýtt verk frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Eilíf hamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson. Uppsetningin er samstarfsverkefni Hins Lifandi Leikhúss og Borgarleikhússins og er sýnt á litla sviðinu. Leikstjóri er Þorleifur Arnarson. Eilíf Hamingja er verk um millistjórnendastéttina, hina nýju íslensku alþýðu.

Draugadans

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sviðsetur Djáknann á Myrká og Miklubæjar Sólveigu auk fjölda annara sagna, sögurnar fléttast saman og bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi létta á atburðarrásinni með sínum hætti. Þessar sögur eru á við mjög góða spennumynd. Með nútíma sviðstækni lifna þær við með ljósum, tónlist og litum. Sýningin er full af fallegum textum […]

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er nýtt og vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna þvert á listgreinarnar en umsækjendur hafa […]

Stórgóð sýning á Selfossi

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.10″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Undirrituð fór að sjá frumsýningu á Hnerranum á Selfossi um helgina. Hvar á maður eiginlega að byrja? Ætli sé ekki bara best að byrja á byrjuninni. Anton Tsjekoff er ljómandi leikskáld. […]

Frumsýning í Austubæ

Verkið “50 ways to leave your lover” verður frumsýnt í Silfurtunglinu í Austurbæ 26. janúar. Þetta er einleikur sem fjallar um uppgjör ungs manns á átakanlegum atburði í lífi hans, ástinni sem hann kynntist og einverunni sem hann upplifir eftir á. Sagan er sögð á tveimur skeiðum í lífi hans, annarsvegar fyrir dauða hans og […]

Karíus og Baktus til Reykjavíkur

Leikritið Karíus og Baktus hefur kætt norðlensk börn á undanförnum mánuðum og notið fádæma vinsælda. Vegna fjöla áskorana verður sýningin sýnd í Reykjavík í örfá skipti í febrúar og byrjun mars. Sýningar verða í Borgarleikhúsinu og hefst miðasala á miðvikudag kl. 13. Vegna anna leikaranna er um takmarkaðan sýningarfjölda að ræða, en Guðjón Davíð og […]

Æfingar hafnar hjá Halaleikhópnum

Batnandi maður er nafnið á leikritinu sem Ármann Guðmundsson er að skrifa og leikstýra hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Í tilefni 15 ára afmælis Halaleikhópsins var ákveðið að fá Ármann til að vinna afmælissýningu en stefnt er að frumsýningu hennar undir lok febrúar.

100 ár í Samkomuhúsinu á Akureyri

Þann 20. janúar verður leikritið Svartur köttur eftir Martin McDonagh frumsýnt hjá LA. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamanninn, Halta Billa frá Miðey og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Um sérstaka hátíðarfrumsýningu er að ræða í tilefni […]

Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins

Næsta vinnusmiðja FLÍSS – Félags um leiklist í skólastarfi og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins verður á mánudaginn þann 22. janúar.   Kennari að þessu sinni verður Rúnar Guðbrandsson leiklistarkennari. Rúnar mun fjalla um aðferðir sínar í leiklistarkennslu og þjálfun leikarans. Hann mun einnig fjalla um leiklistarkennslu á hinum ýmsu skólastigum og tengingu þar á milli.   Eins […]

Viltu lifa að eilífu?

Föstudaginn 19. janúar frumsýnir Þjóðleikhúsið Sælueyjuna eftir Jacob Hirdwall í leikgerð Maríu Ellingsen og Grétu Maríu Bergsdóttur í Kassanum. Hér er á ferðinni heimsfrumsýning á glænýju verki sem gerist á Íslandi og fjallar um siðferðileg álitamál í okkar samtíma. Kaldan haustmorgun finnst maður uppi á hálendinu nær dauða en lífi. Hann krefst þess að ná […]

Hnerrað á Selfossi

Leikfélag Selfoss frumsýnir um helgina leikverkið Hnerrinn. Verkið samanstendur af einþáttungum og smásögum eftir Anton Tsjekoff en leikgerðina skrifaði Michael Frayn. Frumsýning verður föstudaginn 19. janúar og verður það frumflutningur verksins hér á landi. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson en hann þýddi verkið einnig á íslensku.

Fleiri sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra

Í desember frumsýndi Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir Oskar Braaten. Sýningum verður nú haldið áfram vegna fjölda áskorana. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Verkið var sett upp í tilefni af 70 ára afmæli félagsins, en var áður á fjölunum hjá félaginu árin 1945 við fádæma vinsældir.

Opinn samlestur hjá Hugleik

Nú er að fara af stað uppsetning á söngleiknum Epli og Eikur hjá leikfélaginu Hugleik. Verkið er nýtt af nálinni en höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir en verk hennar, Kolrassa, sló í gegn hjá félaginu árið 2002. Leikstjóri verður Oddur Bjarni Þorkelsson. Þetta er í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá Hugleik, en hann hefur verið […]

Power of Love – Hið fullkomna deit

Þann 14. janúar frumsýnir leikhópurinn Brilljantín einleik eftir Halldóru Malin Pétursdóttur á efri hæð Austurbæjar í Silfurtunglinu. Verkið sem er samstarfsverkefni ÍsMedía í Austurbæ og leikhópsins Brilljantín verður aðeins sýnt í viku.

Leikstjórnarnám í Litháen

Í háskólanum í Klaipeida í Litháen er boðið upp á styttri námsbraut í leikstjórn. Námið tekur tvær annir og er miðað við fjölþjóðlegan nemendahóp. Hámarksfjöldi nemenda er 15 manns en einhver reynsla af leikstjórn er inntökuskilyrði. Fari fjöldi umsækjenda yfir 15 manns verður valið úr þeim eftir reynslu í leikhúsvinnu. Skólagjöld fyrir veturinn eru tæplega […]

Þjóðleikhúsið á nýju ári

Starfsemi Þjóðleikhússins er að komast á fullt skrið á nýju ári. Á stóra sviðinu eru þrjár sýningar í gangi. Bakkynjur, grískur harmleikur eftir Evrípídes var jólafrumsýning hússins og hefur hún vakið verðskuldaða athygli en verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Ný þýðing Kristjáns Árnasonar, leikstjórn og sviðsetning grískra leikhússnillinga, tónlist Atla Ingólfssonar […]

Leikfélag Kópavogs 50 ára

Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrrverandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins. Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir afmælisgesti, margir félagar munu stíga á svið […]

Klikkað verk um klikkun

Jólasýning Borgarleikhússins er verkið Ófagra veröld eftir Anthony Neilson. Það verður frumsýnt 29.desember. Ófagra veröld er ævintýri sem hefur sterka tilvísun í Lísu í Undralandi eftir Lewis Carol. Líkt og í sögu Lewis Carol er verkið lýsing á samfélaginu, gildum þess, þversögnum og áskorunum, um leið og það er þroskasaga Lísu. Við ferðumst með Lísu […]

Leiklistarnámskeið og -hátíðir

Undanfarin ár hefur aðgengi að upplýsingum um alþjóðleg leikhúsnámskeið og leiklistarhátíðir batnað til muna. Slíkir viðburðir eru nú til dags yfirleitt með heimasvæði á netinu.  Einstaklingar og leikhópar hvaðanæva úr heiminum geta yfirleitt sótt um þátttöku, oftast í gegnum internetið. Nú er komið sérstakt svæði á vef IATA (International Amateur Theatre Association) með upplýsingum um […]

Tryllingur og hömluleysi

Jólaleikrit Þjóðleikhússins árið 2006 er Bakkynjur eftir Evrípídes. Frumsýning verður 26. desember og þetta er í fyrsta sinn sem verkið er sýnt á Íslandi. Bakkynjur er eitt frægasta leikrit grísku gullaldarinnar í leikritun og talið til harmleikja þótt það lúti ekki allskostar lögmálum hefðbundinna harmleikja. Hér birtist það í glænýrri þýðingu Kristjáns Árnasonar. Í verkinu […]

Alþjóðleg leiklistarhátíð í Japan

Nú er verið að taka á móti umsóknum þeirra sem áhuga hafa á að sýna á áhugaleikhúshátíð í Matsue í Japan í nóvember 2007. Hátíðin er haldin í Shiinomi-leikhúsinu í Yakumo-hverfi í Matsue-borg. Fimm leikhópum verður boðið að sýna á hátíðinni en auk þeirra verða fjórar japanskar sýningar og verður ein þeirra frá "heimaleikhóp" Shiinomi-leikhússins, […]

Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra

Síðustu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra eru í kvöld kl: 20:00 og á morgun laugardaginn 16. desember kl. 20.00. Þetta eru síðustu forvöð til að sjá hvernig íslenskt áhugaleikhús skemmti landsmönnum á fyrri hluta síðustu aldar. Þetta verk fékk 15.000 áhorfendur þegar það var sýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar árið 1943. Fyndið og alveg meinfyndið líka. Miðapantanir […]

Sviðsetningahátíð í Prag

Scenofest 2007 er leikhúshátíð sem haldin verður 15. júní til 24. júní í Prag í Tékklandi. Á hátíðinni verður lögð áhersla á umgjörð leiksýninga. Boðið verður upp á fjölda námskeiða og sýninga þar sem áhersla er lögð á sjón- og tæknilega þætti í leikhúsi. Hátíðin er í hátíðaröðinni Prague Quadrennal, en sú hátíð er haldin […]

Ljónalandið í Jaðarleikhúsinu

Barnasöngleikurinn Ljónalandið eftir Brigitte og Herwig Thelen, í þýðingu og leikstjórn Ívars Helgasonar verður frumsýnt í Jaðarleikhúsinu sunnudaginn 17. desember næstkomandi, kl 16.00. Ljónalandið gerist á sléttum Afríku, þar sem hin ógurlega silfurslanga legst yfir landið, skilur að hjarðirnir og mengar vatnsbólin. Dýrin þurfa að taka til sinna ráða til þess að berjast gegn þessari […]

Memento Mori á leiklistarhátíð í Kóreu

Árið 2004 settu Hugleikur og Leikfélag Kópavogs upp verkið Memento Mori. Verkið var unnið í samstarfi þátttakenda úr félögunum tveimur og leikstjórans Ágústu Skúladóttur, en handrit skrifaði Hrefna Friðriksdóttir. Sýningin fór síðan á fjölþjóðlega leiklistarhátíð á Akureyri árið 2005 og var þar valin besta sýning hátíðarinnar með meiru. Síðastliðið sumar var síðan farið með sýninguna […]