Kabarett í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið sýnir á föstudags- og laugardagskvöld 7. og 8. nóvember sinn árlega Kabarett. Kabarettinn í ár ber heitið Skítt með Kerfil – tökum slátur! Löng hefð er fyrir því í Eyjafjarðarsveit að setja upp kabarettsýningu með frumsömdu efni þar sem atburðir líðandi stundar, innan sveitar sem utan, eru skoðaðir í spaugilegu ljósi. Tónlist skipar stóran […]

Vestrið eina frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. nóvember verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh, frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikritið er fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði og er hann því með ástsælustu leikskáldum landsmanna nú um stundir. Þröstur Leó Gunnarsson og Björn Thors leika óviðfelldna en um leið frekar brjóstumkennanlega bræður sem í […]

Æfingar hafnar á Shakespeare – Karnival

Halaleikhópurinn hefur nú hafist handa við uppsetningu nýs leikverks fyrir þetta leikár og ber það vinnuheitið Shakespeare – Karnival. Byrjað var  þann 1. nóvember í húsnæði leikhópsins að Hátúni 12.

Emil strákskratti á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Emil í Kattholti eftir Astrid Lingren laugardaginn 8. nóvember kl. 16.00 í Samkomuhúsinu á Húsavík. Þýðingu verskins gerði Vilborg Dagbjartsdóttir og leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir en hún er Húsvíkingum af góðu kunn, leikstýrði Gauragangi hjá LH árið 1996 og Þreki og tárum 1998.

Mowgli undir Mýrdalsjökli

Þorgeir Tryggvason fjallar um sýningu Leikfélags Kópavogs á Skugga-Sveini: "Það er fagnaðarefni af stærra taginu að ganga inn í nýtt leikhús. Sérstaklega ef þar er ekki tjaldað til einnar nætur. Hið nýja húsnæði Leikfélags Kópavogs lofar svo sannarlega góðu og fyllsta ástæða til að óska félagsmönnum og bæjarbúum til hamingju með þetta. Leikfélag Kópavogs hefur […]

Stuttverkadagskrá Hugleiks í Listasafni Reykjavíkur

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir stuttverkadagskrána „Ó, þessi tæri einfaldleiki“, föstudaginn 31. október kl. 20.00 í Listasafni Reykjavíkur. Frumsýnd verða níu ný stuttverk sem öll eiga það sammerkt að hafa afmæli sem þema. Sýningin markar þannig upphafið á afmælisári Hugleiks sem fagnar 25 ára starfsafmæli sínu leikárið 2008-2009. Leikstjórn stuttverkanna er í höndum félagsmanna, en tónlistarflutningi stjórnar […]

Leikfélag Dalvíkur æfir jóladagskrá

Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á léttri og skemmtilegri jóladagskrá sem áætlað er að frumsýna föstudaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 20.30. Dagskrá þessi, er ber heitið „Er nálgast jólin…“ inniheldur m.a. 3 frumsamin leikverk unnin af leikhópnum og leiðbeinendum, söng, dans, undirleik og fróðleik er tengist jólunum.

Haustfundur Bandalagsins og námskeið í stjórnun leikfélaga

Námskeið í stjórnun leikfélaga og Haustfundur 2008 verða haldin í Leikhúsinu, nýju leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2, Kópavogi laugardaginn 22. nóvember. Námskeiðið verður haldið undir formerkjunum „Listin að stjórna leikfélagi – Stjórnun leikfélaga og lítið eitt um kynningarmál“. Fulltrúar í stjórn Bandalags ísl. leikfélaga halda erindi og taka þátt í umræðum undir stjórn formannsins, […]

Saga Bandalagins komin út!

Út er komin „Allt fyrir andann“, saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000, skráð af Bjarna Guðmarssyni sagnfræðingi og áhugaleikara. Bókin greinir frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu verkefnum. Þá er þráðurinn rakinn í gegnum áratugina og sýnt hvernig hreyfingin þróaðist með tímanum en sú þróun var hreint ekki alltaf átakalaus. Bókin kostar 5.500 […]

Leiklistarnámskeið fyrir unglinga

Leikfélag Kópavogs heldur leiklistarnámskeið fyrir unglinga með yfirskriftinni "Að segja sögu á sviði". Kennari er Anna Brynja Baldursdóttir sem hefur numið leiklist í Rose Bruford College á Englandi og hefur einnig lokið námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands.  Námskeiðið hefst þriðjudaginn 28. október. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjudgum og fimmtudögum kl. 16.30-18.30 að […]

Leikhúsið opnar í Kópavogi

Nýtt leikhús Leikfélags Kópavogs var vígt sunnudaginn 19. október þegar Skugga-Sveinn var frumsýndur við góðar undirtektir áhorfenda. Núlifandi stofnfélagar Leikfélagsins voru viðstaddir sýninguna og má sjá þá hér á myndinni til hliðar. Þetta er fólkið sem fyrir rúmri hálfri öld stofnaði leikfélag af bjartsýni og dug í því litla bæjarfélagi sem Kópavogur var þá. Ekki […]

Utan gátta frumsýnt 25. október

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson laugardaginn 25. október nk. í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sýningar verða í Kassanum við Lindargötu 7. Sigurður Pálsson er eitt þekktasta leikskáld okkar, en auk leikrita hefur hann sent frá sér þrettán ljóðabækur og þrjár skáldsögur. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2007 fyrir Minnisbók. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit Sigurðar, […]

Ársrit BÍL komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2007–2008 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa en þar eru birtar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur verið send til formanna leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast ritið á PDF-formi hér .

Leikfélags Hveragerðis sýnir frumsamið gamanverk

Föstudaginn 24. október frumsýnir Leikfélag Hveragerðis gamanleikritið H.V.S.F.Í. eftir leikfélagsmeðlimina Jakob Hansen, Hafstein Þór Auðunsson og Sindra Kárason. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni og má þar nefna helst kempurnar Steindór Gestsson, Hjört Benediktsson, Sigurgeir H. Friðþjófsson og Önnu Jórunni Stefánsdóttur svo einhverjir séu nefndir. Leikstjóri verksins er að þessu sinni Ólafur Jens Sigurðsson […]

Góðverkin kalla! á Egilsstöðum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir laugardagskvöld 18. október leikritið Góðverkin kalla eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir þessari uppfærslu á Góðverkin kalla en hann er þaulreyndur leikstjóri þrátt fyrir unga aldur. Hans þekktasta leikstjórnarverkefni hingað til er líklega kvikmyndin Astrópía sem hefur fengið fantagóðar viðtökur og hefur nú nýlega vakið […]

Skugga-Sveinn í Leikhúsinu

Leikfélag Kópavogs frumsýnir 19. október þann sígildasta af öllum sígildum, sjálfan Skugga-Svein Matthíasar Jochumssonar.  Verkið er sýnt í glænýrri leikgerð, sem löguð er að kröfum tímans. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en uppfærslur hennar á undanförnum árum hafa þótt með því ferskasta í íslensku leikhúsi, sýningar á borð við Klaufa og kóngsdætur, Eldhús eftir máli, Stórfengleg, […]

Pétur Pan á Sauðárkróki

Laugardaginn 18. október klukkan 17:00 frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks  fjölskylduleikritið Pétur Pan eftir J.M. Barrie. Þýðinguna gerði Karl Ágúst Úlfsson og leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. Sýnt er í Bifröst. Það kannast flestir við Pétur Pan, strákinn sem neitar að verða fullorðinn og býr ásamt týndu drengjunum í Hvergilandi þar sem sjóræningjar, indjánar og hafmeyjar lifa […]

Nú er það „Hart í bak“

Þjóðleikhúsið frumsýnir Hart í bak eftir Jökul Jakobsson á Stóra sviðinu nk. föstudag, þann 17. október, í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Hart í bak markaði tímamót í íslenskri leiklistarsögu þegar það var frumsýnt árið 1962. Leikritið rataði beint að hjarta Íslendinga. Og nú, 46 árum síðar, á miklu umrótaskeiði í lífi íslensku þjóðarinnar, á þetta leikrit […]

Fólkið í blokkinni frumsýnt

Föstudaginn 10. október kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur fjölskylduleikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur. Hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft. Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum […]

Ljótasta leikferð allra tíma?

Leikarar Þjóðleikhússins leggja í dag upp í sína þriðju leikferð á vegum Farandleikhúss Þjóðleikhússins. Að þessu sinni ferðast leikhópur með sýninguna Sá ljóti til níu framhaldsskóla á landsbyggðinni og hefst ferðalagið á Akranesi. Þjóðleikhúsið hefur á undanförnum árum lagt sífellt meiri áherslu á leiksýningar sem höfða til ungs fólks, meðal annars í því skyni að […]

Leikhús andanna æfir Dansaðu við mig

Hinn nýstofnaði leikhópur Leikhús andanna æfir nú nýtt íslenskt leikverk, Dansaðu við mig, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann. Æfingar standa yfir í Iðnó, en verkið verður frumsýnt þar þann 24. október næstkomandi. Leikstjórn er í höndum Jóns Gunnars Þórðarsonar, en síðasta sýning sem hann leikstýrði hérlendis, Fool for love, hlaut 7 tilnefningar til Grímunnar, íslensku […]

Áheyrnarprufa hjá LA

Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir 9-12 ára stúlku til að leika og syngja í jólaleikriti LA! Mánudaginn 6. október nk. verður skráning í Rýminu kl. 15:00-17:00. Seinni hluta október mun LA hefja æfingar á íslensku jólaleikriti, Lápur, Skrápur og jólaskapið sem ætlunin er að sýna á aðventunni. Þetta er bráðskemmtilegt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson […]

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla

Mánudagskvöldið 6. október n.k. verður aðalfundur Leikfélags Hörgdæla árið 2008 haldinn á Melum í Hörgárdal og hefst hann kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem rætt verður um starfið á komandi vetri.

Vigdís fyrsti Sendiherra leiklistarinnar í heiminum

Alþjóða leiklistarstofnunin, ITI, sæmdi Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands og leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur titlinum Senndiherra leiklistarinnar í heiminum (World Theatre Ambassador) við hátíðlega athöfn í laugardag 27. September sl. í Madrid á Spáni. Alþjóða leiklistarstofnunin, sem stofnuð var í Prag 1948, heldur nú 32. alheimsþing sitt í höfuðborg Spánar, Madrid. Hátíð var haldin við þinglok […]

Þjóðleikur – einstakt tækifæri fyrir ungt leikhúsáhugafólk

Þjóðleikur er tilraunaverkefni sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir á Austurlandi í vetur. Verkefnið miðar meðal annars að því að efla leiklistarstarf ungs fólks og hvetja til nýsköpunar í íslenskri leikritun. Þjóðleikhúsið er aðili að Vaxtarsamningi Austurlands og hefur samvinnu við menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og fleiri aðila á Austurlandi um skipulag og framkvæmd þessa nýstárlega verkefnis.

Fimm sýningar eftir af Engisprettum

Leikhúsunnendum sem misstu af Engisprettum á liðnu leikári gefst nú tækifæri til að sjá þessa rómuðu leiksýningu, en efnt verður til fimm aukasýninga á verkinu nú í haust. Sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu um helgina.

KINKI – Skemmtikraftur að sunnan

Skemmtikrafturinn Kinkir Geir Ólafsson hefur af góðmennsku sinni ákveðið að gefa konum í úthverfum 101 Reykjavíkur tækifæri til að njóta kertaljósakonserts síns í tónleikahúsinu Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi. Kertaljósakonsertinn verður fimmtudaginn 25. september kl. 20 en ekki eru fleiri konsertar fyrirhugaðir í úthverfunum heldur mun Kinkir Geir einbeita sér að því að gleðja konur […]

Hauststarf komið á fullt hjá áhugaleikfélögunum

Nú er hauststarfið komið á fullt hjá mörgum aðildarfélögum Bandalagsins. Leiklistavefurinn forvitnaðist aðeins um hvað er í pípunum og í ljós kom að eins og við var að búast kennir þar ýmissa grasa, íslensk og erlend klassík í bland við nýrri verk, gaman, alvara, söngur og allt þar á milli. Það er því bara útlit […]

Áheyrnarprufur fyrir !HERO

KFUM og KFUK hyggjast setja upp kristilegu rokkóperuna HERO. Verið er að setja saman hljómsveit fyrir sýninguna og æfingar á verkinu hefjast í byrjun október þegar búið er að kasta í hlutverk. Áætluð frumsýning er snemma á næsta ári, lok febrúar/byrjun mars. Hero er í raun guðspjallið í nútímasamhengi. Sagan gerist í Brooklyn, New York […]

Leikhúsperlur Atla Heimis

Í tilefni af 70 ára afmæli tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar sunnudaginn 21. september nk. verður sérstök hátíðardagskrá á Stóra sviði Þjóðleikhússins helguð leikhústónlist hans. Leikarar Þjóðleikhússins stíga á stokk ásamt fjölda tónlistarmanna og dansaraefna og flytja brot úr verkunum Ég er gull og gersemi, Landi míns föður, Ofvitanum, Mýrarljósi, Sjálfstæðu fólki og Dimmalimm.

Shakespeare hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn er kominn á kreik eftir stutt sumarfrí. Þröstur Guðbjartsson hefur verið ráðinn leikstjóri fyrir sýningu vetrarins, jafnframt mun hann halda leiklistarnámskeið í október. Halaleikhópurinn ætlar að þessu sinni að taka fyrir sýningu með þáttum úr nokkrum verkum Shakespears í Karnivalútsetningu sem samin er af leikstjóranum. Tekin verða fyrir atriði úr Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt […]

60 sýningar hjá aðildarfélögum SL

Dagskrá aðildarfélaga Sjálfstæðu leikhúsanna er fjölbreitt að vanda. Alls verður boðið upp á 60 sýningar næsta vetur.  Stærstur hluti sýninganna eru íslensk verk ætluð börnum og ungu fólki en einnig verða á ferðinni danssýningar, ópera og hefðbundnar leiksýningar. Tvær hátíðir verða haldnar á næsta leikári, Act alone á Ísafirði og Draumar – alþjóðleg döff leiklistarhátíð verður haldin […]

Theatre in Iceland 2006-2008

Ritið Theatre in Iceland er komið út. Ritið sem er á ensku inniheldur upplýsingar um leiksýningar og leiklist á Íslandi á árunum 2006 til 2008.  Hér er hægt að nálgast ritið á PDF-formi.

Tvö opin námskeið hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss býður upp á tvö námskeið opin öllum í haust, jafnt byrjendum sem og reyndum. Annars vegar erum að ræða leiklistarnámskeið sem Gunnar Sigurðsson leikstjóri heldur og hins vegar námskeið í söng og raddbeitingu þar sem kennari er Kristjana Stefánsdóttir.

Bingó í Riga – Ferðasagan

Þann 2. ágúst sl. sté fríður hópur áhugaleikara úr Leikfélagi Kópavogs og Hugleik uppí flugvél og hélt á vit ævintýranna í Riga, höfuðborg Lettlands. Ætlunin var að sýna leikritið Bingó, sem félögin settu upp saman fyrir tveimur leikárum, á Norður-evópsku leiklistarhátíðinni sem haldin var þar í borg. Ásta Gísladóttir var með í hópnum og ritaði […]

Fýsn frumsýnt föstudaginn 12. sept.

Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður nýtt íslenskt leikrit, Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann, frumsýnt föstudaginn 12. september. Leikritið vann leikritasamkeppnina „Sakamál á svið“ sem LR stóð fyrir árið 2006. Marta Nordal þreytir frumraun sína sem leikstjóri en þær Þórdís hafa unnið að uppsetningunni um nokkurt skeið. Að auki hefur Þórdís unnið að þróun þess í […]

Forleikur og ísbjörn á nýju leikári Kómedíuleikhússins

Leikár Kómedíuleikhússins er bæði ferskt og klassískt. Alls verða sex sýningar á fjölum leikhússins á nýju leikári þar á meðal frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan Íslenskan einleik,  Auðun og ísbjörninn, sem er byggður á samnefndum Íslendingaþætti sem er án efa sá besti og vandaðasti Íslendingaþátta. Í Auðun og ísbjörninn halda Elfar Logi og Soffía Vagnsdóttir áfram farsælu […]

Sýningin fallega um Gosa aftur á svið

Nú er Gosi loksins kominn úr sumarfríi og aftur á fjalir Borgarleikhússins. Sýningin vakti mikla lukku á síðasta vetri og meira en 25 þúsund gestir hrifust með ævintýrum Gosa, Tuma engisprettu og allra hinna. Það vakti einnig mikla lukku sýningargesta að hitta hetjur sýningarinnar í forsal að sýningu lokinni. Miðasala er í fullum gangi í […]

Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Framhaldsnámsikeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða Þátttökugjald: kr. 15.000.- Tími: 24. til 26. október 2008 Staður: Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík Skráningu lýkur 15. september Námskeiðið er sjálfstætt framhald af byrjendanámskeiðinu sem haldið var sl. haust, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið.

Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu helgina 5.-6. sept.

Leikfélagið Maddid Theatre Company, sem starfar aðallega í London, sýnir sviðslistasýninguna Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu Strandgötu 50 næstkomandi föstudags- og laugardagskvöld kl. 20:00. Með hlutverk Maddidar fer leikkonan Vala Ómarsdóttir. Vala stofnaði leikfélagið ásamt leikhúsframleiðandanum Mari Rettedal fyrir rúmu ári en síðan þá hafa fleiri listamenn bæst í hópinn. Maddid Theatre Company er fjölþjóðlegur hópur með […]