Author: lensherra

Obbosí, eldgos! í Halanum

Halaleikhópurinn hefur ráðið Sigrúnu Valbergsdóttir til að endurskrifa leikrit sitt, Ábrystir með kanil og setja upp með félaginu í vetur. Verkið sem endurskrifað hefur fengið nafnið Obbosí, eldgos!, er bráðskemmtilegur farsi sem gerist á heimili ferðaþjónustubónda. Margar kostulegar persónur koma þar við sögu og eins og í öllum góðum försum hleðst upp misskilningur á misskilning ofan. Persónugalleríið er fjölbreytt og samanstendur m.a. af heimasætu, línudansara, spákonu, draumráðanda, leikfimikennara, árunuddara, og fótanuddari svo einhverjir seú nefndir auk starfsfólks almannavarna, svo augljoslega gengur á ýmsu í verkinu. Fyrsti samlestur á verkinu verður fimmtudaginn 14. okt. kl. 17 – 21 í Halanum,...

Read More

Brellur og fjör í Kópavogi

Höfundar: Skúli Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson Leikstjórn: Gunnar Björn Guðmundsson Leikmynd: Þorleifur Eggertsson, Frosti Friðriksson og Örn Alexandersson Ljós: Skúli Rúnar Hilmarsson Hljóð: Hörður Sigurðarson Búningar: María Björt Ármannsdóttir og Marín Mist Magnúsdóttir  Leikfélag Kópavogs hefur verið duglegt við að sinna börnum og unglingum í gegnum tíðina bæði með hefðbundnum barnasýningum og með því að stuðla að þátttöku unglinga í leiklistarstarfi og þannig er það enn. Þrátt fyrir heimsfaraldur og samkomubann, sem hefur sett mark sitt á alla menningarstarfsemi veraldarinnar undanfarna tvo vetur, er Kópavogsleikhúsið í startholunum. Það þýtur af stað strax og færi gefst og slakað er...

Read More

Rúi og Stúi snúa aftur

Leikfélag Kópavogs frumsýndi barnaleikritið Rúa og Stúa síðastliðinn vetur í Leikhúsinu í Kópavogi. Vegna Covid þurfti að hætta sýningum í miðju kafi en nú tekur leikfélagið upp þráðinn að nýju og fyrsta sýning verður 2. okt. næstkomandi. Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka og enn dularfyllri stórþjófur koma öllu í uppnám. Hvað er til ráða annað en að baka sjálfur jólaköku? Fær Bergsteinn aðstoðarmaður sinn ástkæra bæjarstjóra aftur?...

Read More

Fyrsti kossinn í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur fagnar 60 ára afmæli með 100. leiksýningu félagsins. Í ár fagnar leikfélagið 60 ára afmæli og af því tilefni verður söngleikurinn „Fyrsti kossinn“ frumsýndur í Frumleikhúsinu þann 22. október nk. Sýningin er jafnframt sú 100. í sögu félagsins ef rétt er talið og því ber að fagna eins og segir í fre´ttatilkynningu frá félaginu. Fyrsti kossinn er söngleikur saminn af Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaugi Ómari Guðmundssyni sem bæði hafa leikið og setið í stjórn LK í mörg ár. Verkið er að sögn höfundanna samið og sett upp til að heiðra minningu Rúnars heitins Júlíussonar en eins og...

Read More

Samlestur á Selfossi

Leikfélag Selfoss boðar til samlestrar á gamanleik sem ætlunin er að setja upp í vetur. Samlesturinn er opin öllum áhugasömum 18 ára og eldri, hvort sem áhuginn liggur á sviði leiklistar eða bak við tjöldin. Að vanda er tekið sérstaklega vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sístækkandi leikhúsfjölskyldu félagsins eða vill einfaldlega kynna sér starf leikfélagsins betur. Samlesturinn er í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi miðvikudaginn 15. september kl. 20:00. Leikstjóri verður Gunnar Björn Guðmundsson. Gunnar Björn hefur unnið jöfnum höndum í leikhúsi og kvikmyndum síðan 1996. Á þessum árum hefur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert