Author: lensherra

Aukasýning á Jólaævintýri Hugleiks

Þótt seint verði sagt um áhugaleikfélög landsins að þau séu of vel haldin fjárhagslega, er víst að þau „gleyma ekki sínum minnsta bróður“. Þannig hefur Hugleikur ákveðið að bæta við einni aukasýningu á Jólaævintýri sínu þar sem fólki sem að öllu jöfnu á þess ekki kost að sækja leiksýningar er boðið. Öðrum gefst þó tækifæri til að kaupa miða á þessa sýningu sem hlotið hefur afar góðar viðtökur á áhorfendum. Jólaævintýri Hugleiks hefur nú verið sýnt við góðan orðstír og mikla aðsókn frá því í nóvember. Formleg lokasýning var 30. desember, en ekki vill Ebenezer skröggur liggja kjur alveg strax, heldur ætlar að skemmta áhorfendum einu sinni enn, og þá náttúrulega á þrettándanum. Og í anda verksins er sýningin hugsuð sérstaklega fyrir fólk sem ekki á þess alla jafnan kost að sækja leiksýningar. Í því skyni færðu hugleikarar Mæðrastyrksnefnd miða á sýninguna til að dreifa til skjólstæðinga sinna. Engu að síður eru enn til miðar ef einhver hefur hug á að grípa þetta síðasta tækifæri til að sjá verkið. Sýningin verður eins og fyrr segir þann 6. janúar og hefst kl. 20:00 í Tjarnarbíói. Miðapantanir á...

Read More

Leiklistarnámskeið á vegum Andagiftar ehf.

Börn og unglingar hafa gaman af að stíga á svið og er það reynsla okkar eftir að hafa haft hátt í 300 börn á námskeiði fyrir rúmu ári síðan. Við höfum því ákveðið að bæta við námskeiði en alls sjá þrír kennarar ásamt gestakennara sjá um kennsluna á þessu námskeiði. Markmið námskeiðsins er að kynnast starfsemi leikhúsa og leikara ásamt því að efla og styrkja hæfileika hvers þátttakanda. Námskeiðið fer fram helgina 14. og 15. janúar og stendur yfir í alls 8 klst. Öllum krökkum á aldrinum 6-16 ára er heimil þátttaka en lágmarksþátttaka eru 10 nemendur í hverjum hóp. Þátttökugjald er 12.500 sem greiðist fyrirfram og innifalið í því er frímiði á söngleikinn Annie en 30 börn taka þátt í uppfærslunni. Skráning fer fram á sérstöku þátttökublaði sem er að finna á heimasíðu okkar (www.annie.is) undir umsókn/skráning. Þátttökugjald er hægt að leggja inn á reikning (301-26-5410) Andagiftar ehf. (kt. 5410042540) en taka þarf fram í skýringu nafn þátttakanda. Frekari upplýsingar í síma...

Read More

Halaleikhópurinn setur upp Pókók

Heildarhugmynd leikrits getur breyst ef einhver af persónunum er látin fá einhverja fötlun. Hvað ef Hamlet væri í hjólastól? Hvað ef óvinurinn í Gullna Hliðinu væri dvergvaxinn, verður hann þá jafn ógnvænlegur? Hvað ef Makki hnífur væri á hækjum? Hvað ef Fílamaðurinn væri ófatlaður, en allir aðrir í leikritinu ættu við einhverja fötlun að stríða? Þessi hugtök og önnur hefur Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra leikið sér að með einum eða öðrum hætti í þrettán ár. Þótt heimsfrægð á Íslandi hafi eitthvað látið á sér standa hefur hópurinn á þessum tíma sett upp hvert stórverkið á fætur öðru í þeirra litla og notalega húsnæði í Hátúni 12. Má þar nefna leikrit eins og Túskildingsóperuna eftir Berthold Brecht sem Þjóðleikhúsið er að sýna um þessar mundir, Kirsuberjagarðinn eftir Anton Chekhov, Gullna Hliðið eftir Davíð Stefánsson og Aurasálina eftir Moliére. Auk þess að hafa frumsýnt þrjú splunkuný íslensk leikrit, þá oftast samin með leikhópinn í huga. Sá sem er svo heppinn að fá að taka þátt í leiklist og í því ferli sem það felur í sér kemst ekki hjá því að líta í eigin barm og velta því fyrir sér hver hann er. Til þess að geta skapað og túlkað persónu þarf einstaklingurinn að geta sett sig í spor annarra, tjáð gleði, sorg o.s.frv. Leiklistin er ekki eingöngu leikari á sviði heldur einnig hópurinn sem vinnur að sameiginlegu markmiði þar...

Read More

Belgíska Kongó tekið upp

Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir  fullu húsi í Borgarleikhúsinu 2 leikár í röð. Vegna fjölda áskoranna hefur nú verið ákveðið að taka verkið aftur upp e. áramót. Fyrsta sýning verður 7. janúar.  Eggert Þorleifsson hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestan leik í aðalhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Bankastarfsmaðurinn Rósar og amma hans Rósalind hafa ekki talast við í sjö ár.  Einn daginn ákveður Rósar að það sé orðið tímabært að sættast og fá hin gömlu og tilefnislaustu leiðindi út úr heiminum.  En það á eftir að koma í ljós hvort jafn óskylt/ólíkt fólk og skyldmennin sem um ræðir hafi nokkuð hvort við annað að segja. Auk Eggerts leika í sýningunni: Ilmur Kristjánsdóttir, Ellert A. Ingimundarson og Davíð...

Read More

Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006

Leiklistarsamband Íslands-ITI hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson, leikskáld, til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem sýnt var af Vesturporti. Í dómnefnd fyrir hönd Leiklistarsambandsins sátu þau Sveinbjörn I. Baldvinsson leikskáld, Steinunn Knútsdóttir leikstjóri og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur.   Í umsögn þeirra segir: "Leikritið BRIM stendur föstum fótum í séríslenskum veruleika um leið og það bregður upp sammannlegri mynd af hlutskipti manneskjunnar hvar sem er og hvenær sem er. Sú mynd er í formi dramatískrar fléttu áhrifaríkra frásagna af örlögum nokkurra manna sem eiga sameiginlegt að eyða mestum hluta lífs síns í sjálfvalinni einangrun á fiskiskipi. Við fylgjumst með samskiptum þeirra, en framvindan er brotin upp við og við þegar þeir stíga út af sviðinu og leyfa okkur að skyggnast í huga sinn. Án þess að segja nokkurn tíma of mikið, eða hlaða að óþörfu undir blóðhráan textann með nærtækum leikhúsmeðölum, fær sjaldgæfur slagkraftur einlægninnar og meðlíðaninnar með manneskjunni í heiminum að njóta sín, kraumandi heitur og nístandi kaldur."   Til Norrænu leikskáldaverðlaunanna var stofnað af Norræna leiklistarsambandinu og voru þau veitt í fyrsta sinn 1992 þegar norrænir leiklistardagar voru haldnir á Íslandi. Þá hlaut verðlaunin Hrafnhildur Hagalín þau fyrir leikrit sitt Ég er Meistarinn. Þau hafa ekki hlotnast íslensku leikskáldi síðan. Verðlaunin hafa verið veitt á tveggja ára fresti, þegar Norrænir leiklistardagar eru haldnir til skiptis á norðurlöndunum. Norrænu leikskáldaverðlaunin verða veitt á Norrænu leiklistardögum sem haldnir verða...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert