Author: lensherra

Eldhús eftir máli

Eldhús eftir máli – Hversdaglegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á nokkrum smásögum Svövu Jakobsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 29. desember nk. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Svava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menningarlíf og samfélag á ofanverðri tuttugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldhús eftir máli hyggst Þjóðleikhúsið heiðra minningu Svövu. Hún hefði orðið 75 ára í ár, en lést á síðasta ári. Þjóðeikhúsið réð Völu Þórsdóttur til að skrifa leikverk sem byggir á nokkrum af þekktustu smásögum Svövu og titillinn vísar til einnar þeirra. Einnig liggja smásögurnar Gefið hvort öðru, Saga handa börnum, Krabbadýr, brúðkaup, andlát og Veisla undir grjótvegg leikverkinu til grundvallar. Ekki er um eiginlega leikgerð að ræða, heldur er leikverkið innblásið af sagnaheimi Svövu Jakobsdóttur. Verkið ber undirtitilinn Hversdagslegar hryllingssögur og mun sýningin meðal annars mótast af frásagnarmáta sem Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir, leikstjóri verksins, hafa þróað í sameiningu í ýmsum uppfærslum sem þær hafa unnið að hér á landi og í Bretlandi. Vala Þórsdóttir hefur unnið jöfnum höndum sem leikkona og leikskáld. Hún lauk námi í leiklist við Bretton Hall listaháskólann í Leeds árið 1995 og hefur sótt ýmis námskeið í leiklist og leikritun, auk þess sem hún lærði kvikmyndahandritsgerð hjá North By North West í Danmörku. Vala hefur meðal annars skrifað...

Read More

Listaháskóli Íslands – Leiklistardeild

www.lhi.is Sölvhólsgata 13 101 Reykjavík Sími 552 5020 Fax 561 6314 Netfang lhi@lhi.is Opni listaháskólinn Forstöðumaður Sólveig Eggertsdóttir Skipholti 1 105 Reykjavík sími 545 2210 Netfang: opni.listahaskolinn@lhi.is, Veffang:...

Read More

Vesturport

Leikhópurinn Vesturport hefur sett upp margar þekktar leiksýningar hér heima sem og erlendis. Netfang gisli@vesturport.com Vefsíða www.vesturport.is

Read More

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa

www.leikhopar.is Lindargötu 6, 101 Reykjavík Sími 551-1400, Formaður Aino Freyja Järvelä, Netfang aino@simnet.is Framkvæmdastjóri Kristín Eysteinsdóttir, Gsm. 823-4111 Netfang leikhopar@leikhopar.is Veffang www.leikhopar.is Þar er að finna yfirlit yfir sjálfstæðu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert