Author: lensherra

Tíu ára vampýruafmæli

Janúarverkefni Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum er gamanóperan Bíbí og blakan eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Verkið segir frá hinni ungu og fögru Bíbí sem bíður ein eftir að ástin sæki hana heim, en mál hennar vandast þegar tvo gesti ber að garði sömu nóttina: töfrandi en dularfullan rúmenskan nýbúa og ábúðarmikinn vampýruveiðara sem telur sig heldur en ekki vera kominn í feitt. Höfundarnir kjósa að kalla verkið "óperuþykkni", enda koma þar fyrir öll þau helstu atriði sem einkenna "alvöru" óperur, en á mun skemmri tíma en algengast er, sem ætti að henta sérlega vel tímabundnum nútímaáhorfendum. Bíbí og Blakan er langlífasta og víðförulasta sýning Hugleiks, og fagnar nú tíu ára afmæli sínu. Verkið var frumsýnt í Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur 1996, og seinna sama vor tekin til sýninga hjá Hugleik. Árið 2000 var sýningin fulltrúi Íslands á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Litháen og var í framhaldinu boðið á aðra hátíð í Rússlandi af fulltrúum rússneska áhugaleikhússambandsins sem heilluðust mjög af sýningunni. Erlendri sigurgöngu Bíbíar (hingað til a.m.k) lauk síðan í Rudolstadt í Þýskalandi, þangað sem henni var boðið af þýskum leiklistarforkólfum eftir sýninguna í Rússlandi. Verkið hefur tekið talsverðum breytingum í áranna rás, og hafa höfundar notað tækifærið í hvert sinn sem nýtt ferðalag var á döfinni að breyta og bæta. Leikarar að þessu sinni eru þau Einar Þór Einarsson, Björn Thorarensen, Hulda B. Hákonardóttir, Silja B. Huldudóttir,...

Read More

Sunnudagskvöld með Svövu

Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur, verða fimm Sunnudagskvöld með Svövu þar sem boðið verður upp á fyrirlestur, kvöldverð, leiksýningu og umræður. Þessi kvöld eru í samvinnu við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í kynjafræðum. Svava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menningarlíf og samfélag á ofanverðri tuttugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldhús eftir máli heiðrar Þjóðleikhúsið minningu Svövu. Hún hefði orðið 75 ára í ár, en lést árið 2004. Sunnudagskvöld með Svövu verða sem fyrr segir fimm. Sunnudaginn 15. janúar heldur Kristín Ástgeirsdóttir, forstöðukona Rannsóknarstofu í kynjafræðum, fyrirlestur undir yfirskriftinni Svava og stjórnmálin, 22. janúar er komið að Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur rithöfundi en hennar erindi nefnist Svava og skáldskapurinn, María Kristjánsdóttir fjallar um Svövu og sviðslistirnar 29. janúar, 5. febrúar er röðin komin að Ármanni Jakobssyni bókmenntafræðingi en hann fjallar um Svövu og samtímann. Vigdís Finnbogadóttir verður með síðasta fyrirlesturinn í þessari röð 12. febrúar og ræðir um Skáldkonuna Svövu Jakobsdóttur. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 18:00, að þeim loknum er boðið upp á léttan kvöldverð fyrir leiksýninguna og í lok hennar umræður. Sunnudagskvöld með Svövu kosta 4.500 krónur. Leikarar í Eldhúsi eftir máli eru Aino Freyja Järvelä, Kjartan Guðjónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, María Pálsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir...

Read More

Æfingar hefjast á Selfossi

Leikfélag Selfoss hefur nýja árið með trukki og dýfu sunnudaginn 8. janúar, en þá verður fyrsti samlestur á vorverkefni félagsins. Verkefnið er frumsamið sögulegt leikverk byggt á heimildum um Þuríði formann og Kambsránið, ritað af Sigurgeiri Hilmari Friðþjófssyni. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson. Samlesturinn hefst klukkan 14:00 og eru allir áhugasamir...

Read More

Ljósanámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Helgina 7.-8. janúar næstkomandi heldur Leikfélag Hafnarfjarðar námskeið í ljósastjórnun í leikhúsi.  Kennari er Egill Ingibergsson sem er gamalreyndur í faginu og hefur hannað lýsingar í fjölmörgum leiksýningum gegnum árin. Kennd verða undirstöðuatriði lýsingar fyrir leikhús auk þess sem farið verður ítarlega yfir notkun og notkunarmöguleika ETC Express ljósaborða við ljósastjórnun. Námskeiðið er tveir dagar, laugardagur og sunnudagur. Kennt verður frá 10 til 17 báða dagana. Öll námsgögn og ítarefni afhent á  staðnum. Námskeiðsgjald er kr. 10.000. Skráning hjá Ingvari Bjarnasyni, formanni LH, í síma 896-7478. Allir áhugasamir velkomnir, enn er laust pláss á námskeiðið. Fyrstir koma fyrstir...

Read More

Samkeppni ÍD og LR um dansleikhús

Vilt þú hafa áhrif á þróun dansleikhúss á Íslandi? Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn óska eftir hugmyndum að dansleikverkum fyrir blandaðan hóp leikara og dansara. Listafólk er hvatt til að taka áskoruninni! Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fjórða sinn í júní. Tilgangur keppni af þessu tagi er að styðja við dansleikhúsformið og kanna möguleika þess. Hugmyndin í ár er að taka enn eitt skrefið í átt að öflugu íslensku dansleikhúsi þar sem eitt verk verður valið til frekari þróunar að keppni lokinni. Frábært tækifæri fyrir fólk í listum til að hafa áhrif á þróun spennandi listforms  sem enn er ungt á Íslandi. 1. skref Fáðu hugmynd að verki sem sameinar leikhús og dans og sendu hugmyndina og upplýsingar um þig til okkar fyrir 27. janúar 2006. 2. skref 12-14 hugmyndir verða valdar til frekari þróunar. 3. skref 6-9 hugmyndir verða valdar til útfærslu með þátttöku listamanna ÍD og LR. Við bjóðum aðstöðu í Borgarleikhúsinu. 4. skref Dansleikhússamkeppnin verður haldin á Stóra sviði Borgarleikhússins í Júní. Skipuð dómnefnd veitir þrenn verðlaun, áhorfendur þau fjórðu og aðstandendur ÍD og LR velja eitt verk til frekari þróunar. Útlistun á hugmynd ásamt upplýsingum um höfund/höfunda skal merkja „dansleikhúskeppni“ og senda með tölvupósti til borgarleikhus@borgarleikhus.is fyrir 27. janúar 2006.  Nánari upplýsingar: www.borgarleikhus.is og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert