Mögnuð Lína hjá Umf. Íslendingi
Það var góð stund sem undirritaður átti með fjölskyldunni síðastliðinn laugardag í Borgarfirði. Ferðinni var heitið í félagsheimilið Brún í Bæjarsveit þar sem leikdeild Umf. Íslendings frumsýndi leikritið sívinsæla um hana Línu Langsokk. Verkið sjálft er eftir snillinginn Astrid Lindgren. Það er fyrir löngu orðinn klassíker sem allir, stórir sem smáir, þekkja út í æsar. […]
Rose Bruford College með prufur á Íslandi
Dagana 21. og 22. mars næst komandi mun leiklistarháskólinn Rose Bruford College halda áheyrnarprufur og viðtöl fyrir ingöngu í skólann fyrir næstu haustönn. RBC bíður upp á háskólanám í flestum greinum leikhúslistarinnar. Allar nánari upplýsingar um námsbrautir er að finna inn á www.bruford.ac.uk en skráning í viðtöl er í síma: 0044-2083082611 eða með tölvupósti á […]
Spennandi Páskahret
Guðmundur Karl Sigurdórsson brá sér í Þingborg og lætur vel af því sem hann sá: Ungmennafélögin í Flóahreppi setja nú í þriðja sinn á svið leiksýningu í sameiningu. Fyrir valinu varð verkið Páskahret eftir Árna Hjartarson, verk sem hentar leikhópnum ágætlega með mörgum sérstökum persónum og skemmtilegri atburðarrás. Happafengur var félögunum að fá Jón Stefán […]
Þöglir farþegar á hjara veraldar
Síðastliðinn laugardag, þann 14. mars, frumsýndi Stúdentaleikhúsið glænýtt íslenskt leikrit. Leikritið nefnist Þöglir farþegar og fjallar um hóp fólks sem þarf að takast á við algjört raunveruleikahrun. Leiklistarfræðingurinn Snæbjörn Brynjarsson skrifaði verkið og leikstýrði. Umfjöllunarefnið sækir hann í íslenskan samtíma og tíðaranda Þetta er samt ekkert raunsæisverk varar hann við. Þetta eru mun drastískari aðstæður […]
Frá okkar fyrstu kynnum
Leikfélag Sauðárkróks heldur uppá 120 ára afmæli. Árið 1888 eru íbúar á Króknum farnir að losa hundraðið og þá stofna þeir Leikfélag Sauðárkróks, sem stundum var kallað Sauðárskrókur Theater eða Comedíufélagið. Þetta er níu árum fyrr en þeir stofna leikfélag í Reykjavík. Til að minnast þeirra tímamóta að rúm 120 ár eru liðin frá því […]
Hátíðarsýning hjá Leikfélagi Rangæinga
Síðast liðið laugardagskvöld var Leikfélag Rangæinga með hátíðarsýningu á leikritinu Orustan á Laugalandi í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Um 100 gestir voru á sýningunni sem gerðu afskaplega góðan róm að henni. Meðal gesta var forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson. Á sýninguna var boðið hreppsnefndum Rangárþings ytra, eystra og Ásahrepps ásamt þingmönnum kjördæmisins. […]
Þrettándakvöld frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Nemendaleikhús Lhí og Þjóðleikhúsið frumsýna gleðileik Shakespeares, Þrettándakvöld föstudaginn 13. mars. Þetta er sívinsæll gamanleikur sem gerist í Illiríu þar sem ástleitinn greifi fellir hug til meyjar af aðalsættum sem ekki vill þýðast nokkurn mann – því hún syrgir bróður sinn. Önnur systkin, skipreka frá fjarlægu landi, verða síðan til þess að stokka rækilega upp […]
Leikdeild Umf. Eflingar sýnir Kvennaskólaævintýrið
Laugardaginn 14. mars kl 16:00 frumsýnir Leikdeild UMF Eflingar Kvennaskólaævintýrið eftir Böðvar Guðmundsson. Sýnt er á Breiðumýri og leikstjóri er Arnór Benónýsson. Tónlistarstjóri er Jan Alavere. 20 leikarar taka þátt í sýningunni auk þriggja manna hljómsveitar, en alls koma rúmlega fjörutíu manns að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Mikil tónlist er í sýningunni, flutt […]
Síðustu sýningar á !HERO
Rokkóperan !HERO er í raun nútíma/Brooklyn útgáfa af Jesus Christ Superstar. Sýningin er leikhús og tónlistarupplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Tónlistin spannar allt frá rokki, poppi og fallegum melódíum yfir í rapp. Með aðalhlutverk fara m.a.: Svenni Þór (Luxor), María Magnúsdóttir, Sigurður Ingimarsson og rappararnir Dabbi T og Poetrix.
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Hin illa dauðu
Föstudagskvöldið 13. mars mun enn eitt stórverkið verða frumsýnt í Frumleikhúsinu en þar er á ferðinni hryllingssöngleikurinn Hin illa dauðu sem byggður er á hryllingsmyndunum Evil dead I, II og III. Nokkrir leikfélagsmeðlimir réðust í þýðingu á verkinu nú eftir áramótin og réðu leikstórann Guðmund L. Þorvaldsson til að leikstýra. Tónlistarstjórn er í höndum Júlíusar […]
Æfingar hafnar á Út í kött!
Lýðveldisleikhúsið hefur hafið æfingar á nýju dansleikhúsverki fyrir börn. Verkið heitir Út í Kött! og er byggt á útgáfum Roalds Dahl á þremur Grimms ævintýrum en annar texti og þýðingar á kvæðum Roalds Dahl er eftir Benóný Ægisson. Leikstjóri og danshöfundur er Kolbrún Anna Björnsdóttir, búningar og sviðsmynd eru eftir Sigríði Ástu Árnadóttur en tónlist […]
Leikfélag FSu sýnir Unglingadramað Rómeó og Júlía Remix
Í vetur hefur Leikfélag NFSu æft af kappi hið sígilda og klassíska verk eftir William Shakespeare, Rómeó og Júlíu. Hins vegar er verkið ekki algjörlega í sinni upprunnalegu útfærslu heldur eru fjögur pör af Rómeó og Júlíu á mismunandi tímaskeiðum. Verkið er sýnt í Fjölbrautaskóla Suðurlands, nánar tiltekið í gryfju skólans. Leikstjóri verksins er Ólafur […]
Barnaleikhúshátíð í Færeyjum
Barnaleikhúshátíðin Klakkur verður haldin í Klakksvík í Færeyjum dagana 29. júní til 5. júlí í sumar. Til hennar er boðið leiksýningum barna frá 9 til 14 ára, að hámarki 60 mín. að lengd. Sýningarnar verða frá öllum Norðurlöndunum ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Leikhóparnir fá frítt uppihald fyrir 10 börn og 2 fullorðna meðan á […]
Tenórinn syngur sitt síðasta
Leikfélag Akureyrar og hinn ástæli leikari og tenór Guðmundur Ólafsson bjóða upp á leiksýninguna Tenórinn í Samkomuhúsinu laugardagskvöldið 14. mars kl. 20:00. Eftir 6 ára sýningartíma Tenórsins er Guðmundur á því að "Nú sé mál að linni" og því mun Tenórinn syngja sitt síðasta í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardagskvöldið 14. mars en þar þreytti Guðmundur […]
Leikfélag Rangæinga sýnir Orrustuna á Laugalandi
Síðastliðinn laugardag, þann 7. mars, frumsýndi Leikfélag Rangæinga leikritið Orrustan á Laugalandi í Njálsbúð í Landeyjum. Leikstjóri er Guðrún Halla Jónsdóttir. Um geysilega vel heppnaða sýningu var að ræða í alla staði og gerðu þeir 110 frumsýningargestir sem í Njálsbúð voru góðan róm að sýningunni. Næsta sýning er fyrirhuguð laugardaginn 14. mars og er þar […]
Leikdeild Umf. Vöku sýnir Páskahretið
Leikdeild Umf. Vöku, í samstarfi við Ungmennafélögin Baldur og Samhygð, frumsýndi föstudaginn 27. febrúar gamanleikritið Páskahret eftir Árna Hjartarson, í leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar. Leikritið gerist í skála í Hrafntinnuskeri en þar hefur hópur ólíkra einstaklinga leitað gistinar eftir að hafa lent í miklu illviðri. Innan skamms fara óvæntir hlutir að gerast, gamlar erjur koma […]
Stundum og stundum ekki frumsýnt í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir gamanleikinn Stundum og stundum ekki eftir Arnold og Bach í leikstjórn Sögu G. Jónsdóttur fimmtudaginn 5. mars kl. 20:30 á Melum í Hörgárdal.Stundum og stundum ekki var fyrst frumsýnt á Íslandi í Iðnó árið 1940. Á þeim tíma þótti verkið fara langt út yfir velsæmismörk sökum fáklæddra leikara en ekki þótti við […]
Möguleikhúsið frumsýnir Alla Nalla og tunglið
Sunnudaginn 8. mars kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Alli Nalli og tunglið, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Leikstjóri er Pétur Eggerz, tónlist er eftir Kristján Guðjónsson en leikmynd og búningar eftir Messíönu Tómasdóttur. Leikarar eru Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir. Frumsýningin markar einnig upphafið á samstarfi Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Möguleikhússins.
Óskar og bleikklædda konan á Litla sviðinu
Fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu einleikinn Óskar og bleikklædda konan eftir Eric-Emmanuel Schmitt. Verkið fjallar um Óskar, tíu ára dreng sem þjáist af hvítblæði og bíður hins óhjákvæmilega á spítala. Sjálfboðaliði sem kemur reglulega í heimsóknir hvetur Óskar til þess að skrifa bréf til Guðs og skapa sér þannig framtíð […]
Aukasýning á Sjeikspírs Karnivali
Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á Sjeikspírs Karnivali Halaleikhópsins sunnudaginn 8. mars nk. kl. 17.00 í leikgerð og leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Verkið er unnið upp úr þremur verkum Williams Shakespears: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV, í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum sólarhring í Illiríu, á Karnivali hjá […]
Heppinn þú Arngrímur Jónsson frumsýnt í MH
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir Gunnar Björn Guðmundsson föstudaginn 27. febrúar. Leikritið fjallar um hóp fólks sem boðað er á fund til bjargar framtíð íslensku þjóðarinnar. Leikritið er samið með spuna og er mjög lífleg og skemmtileg. Sýningartími er um ein klukkustund og er sýnd í Undirheimum, aðstöðu leikfélagsins í Menntaskólanum […]
Á svið í Borgarnesi
Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýndi föstudaginn 20. febrúar sl. leikritið Á svið eftir Rick Abbot. Þetta er gamanleikur í þremur þáttum. Leikritið fjallar um leikhóp sem er að setja upp sakamálaleikritið Hið fúla fólsku morð og er óhætt að segja að margt fari úrskeiðis og gangi á ýmsu hjá hópnum. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Sjóræningjaprinsessan á Selfossi
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrapp um helgina austur fyrir fjall til að sjá sýningu Leikfélags Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti, Sjóræningjaprinsessunni sem Ármann Guðmundsson semur og leikstýrir. Hér greinir hún frá þeirri upplifun: Ég brá mér í leikhús um helgina. Fór við þriðja aðstoðargagnrýnanda að sjá Sjóræningjaprinsessuna hjá Leikfélagi Selfoss. Alltaf gaman að sjá ný barnaleikrit […]
Milljarðamærin snýr aftur í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 27. febrúar frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur verk svissneska leikskáldsins Friederich Dürrenmatt, Milljarðamærin snýr aftur á Stóra sviðinu. Sagan gæti hæglega verið sprottin úr íslenskum samtíma en verkið er skrifað fyrir meira en hálfri öld. Íbúar ónefnds bæjarfélags í efnahagshruni eygja vonarglætu um endurreisn en hún felur í sér blóðuga fórn. Leikstjórn er í höndum Kjartans […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Vínland
Föstudaginn 20. febrúar kl. 20.00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit nýjan rokksöngleik, Vínland, eftir heimamanninn Helga Þórsson. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Tónlistin sem er eftir Helga og hljóðfæraleikarana er ákaflega fjölbreytt og nýtur sín vel í nýendurbættu hljóðkerfi Freyvangsleikhússins.
Mikið um að vera hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00 munu ungliðar Leikfélags Mosfellssveitar frumsýna söngleikinn Töfrataskan. Í söngleiknum kynnast áhorfendur ýmsum ævintýrapersónum eins og Mary Poppins, konungi ljónanna, litlu hafmeyjunni, Aladdin, Móglí og Fríðu. Leikstjórar eru Sigrún Harðardóttir og Agnes Wild.
Sjóræningjaprinsessan frumsýnd á Selfossi
Föstudaginn 20. febrúar frumsýnir Leikfélag Selfoss nýtt íslenskt fjölskyldu – og barnaleikrit, Sjóræningjaprinsessuna, eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt leikstýrir verkinu. Ármann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta ásamt Sævari Sigurgeirssyni. Með helstu hlutverk fara Rakel Ýr Stefánsdóttir, Bjarki Þór Sævarsson, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og Stefán Ólafsson en 16 leikarar og 4 hljóðfæraleikarar […]
Fimmta uppsetningin á Kardemommubænum
Þjóðleikhúsið frumsýnir Kardemommbæinn eftir Thorbjörn Egner nk. laugardag, 21. febrúar, á Stóra sviðinu. Leikstjóri sýningarinnar er Selma Björnsdóttir. Íbúar Kardemommubæjarins eiga sér vísan stað í hjörtum íslenskra barna og nú færir ný kynslóð leikhúslistamanna okkur þetta dásamlega verk. Boðskapur verksins um mikilvægi umburðarlyndis og heiðarleika á alltaf við, og vísast geta ræningjarnir þrír, Soffía frænka […]
Aukasýning á Bólu-Hjálmari
Stoppleikhópurinn sýnir í kvöld, 18. febrúar, í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl. 20.00. Verkið nefnist: Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í Iðnó í maí sl. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í […]
Stundum og stundum ekki
Leikfélag Hörgdæla vinnur nú hörðum höndum að uppsetningu farsans Stundum og stundum ekki eftir þá kumpána Arnold og Bach. 15 leikarar taka þátt í uppsetningunni auk fjölda annarra sem koma að tæknimálum, hönnum og smíði sviðsmyndar, búningahönnun, förðun o.fl. Hallmundur Kristinsson hannar leikmynd, Ingvar Björnsson sér um ljósahönnun og Guðmundur Óskar Guðmundsson hefur yfirumsjón með […]
Velheppnuð Shakespeare-sýning í Halanum
Markvisst og metnaðarfullt verkefnaval Halaleikhópsins heldur áfram að skila okkur áhorfendum eftirminnilegum upplifunum. Núna er það sjálfur Shakespeare sem heimsækir Halann með efni úr þremur leikritum, Þrettándakvöldi, Jónsmessunæturdraumi og Hinrik IV. Þröstur Guðbjartsson hefur áður fengist við bútasaum af þessu tagi og fléttar hér tvær senur úr síðarnefndu leikritunum saman við meginþræði Þrettándakvölds. Útkoman er […]
Síðasta aukasýning á Blúndum og blásýru
Lokasýning á Blúndum og blásýru í flutningi Leikfélags Ölfuss verður laugardaginn 14. febrúar kl. 20 í Versölum, Þorlákshöfn. Blúndur og Blásýra er uppfærsla 4. leikárs Leikfélags Ölfuss og án nokkurs vafa sú stærsta hingað til. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur sem fjallar um Brewster fjölskylduna sem er ekki öll þar sem hún er séð.
Fólk á förnum vegi… frumsýnt á Dalvík
Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga. Er þetta í fjórða sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. Í skólanum er leiklist kennd sem valgrein í 9. og 10. bekk og 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú frumsamið leikverk […]
Leiklestur á öllum verkum Söru Kane
Í kjölfar einstaklega vel heppnaðrar frumsýningarinnar á Rústað eftir Söru Kane heldur Borgarleikhúsið áfram kynningu á verkum þessa magnaða leikskálds. Öll önnur verk hennar verða flutt í sviðsettum leiklestrum á Nýja sviðinu næstu fjórar vikurnar. Fjöldi leikara tekur þátt í verkefninu. Gagnrýnendur spara ekki stóru orðin um uppsetningu Kristínar Eysteinsdóttur á Rústað og aðdáendur Söru […]
Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu
Stoppleikhópurinn sýnir nk. miðvikudag 11. febrúar í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum […]
Við heimtum aukavinnu á Ísafirði
Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði verður boðið uppá alþýðlega leik- og söngskemmtunina Við heimtum aukavinnu í febrúar. Hér er á ferðinni stórskemmtileg sýning sem er byggð á verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Flutt verður úrval laga þeirra bræðra s.s. Klara Klara, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Og þá stundi Mundi, Augun þín blá, Langi […]
Leikfélag Rangæinga æfir Orustan á Laugalandi
Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikriti sem hefur fengið nafnið Orustan á Laugalandi. Verkið er farsi sem varð til á árunum eftir seinna stríð og er höfundurinn óþekktur. Mikil vinna hefur verið lögð í það hjá leikstjóra og leikurum að breyta verkin þannig að það gerist í nútímanum hér á svæðinu. Verkið fjallar um […]
Ástverk í leikferð
Iðnaðarmannaleikhúsið er nýstofnaður leikhópur sem fjallar um stemmninguna meðal iðnaðarmanna og samanstendur hópurinn af leikhúslistamönnum sem allir hafa reynslu af iðnaðarstörfum. Meðlimir Iðnaðarmannaleikhússins eru allir í yngri kantinum, á aldrinum 25 til 34 ára. Ástverk ehf er nýtt íslenskt verk sem varð til upp úr samvinnu hópsins. Verkið byggir bæði á sönnum sögum af vinnustöðum […]
Aukasýningar hjá Áhugleikhúsi atvinnumanna
Aukasýningar verða haldnar á sjónleik Áhugleikhúss atvinnumanna Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna sem sýnt er í Nýlistasafninu. Sýningarnar verð þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20 og miðvikudaginn 4. febrúar kl.20, aðgangur er ókeypis. Verkið er hluti af fimmverka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun […]
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna annarrar úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar, en úthlutað verður í byrjun mars. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að fimm höfundum styrk til að […]
