Nunnulíf í Vestmannaeyjum
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir laugardaginn 18. mars leikritið Nunnulíf sem byggt er á kvikmyndinni Sister Act. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir, kórstjóri er Helga Jónsdóttir. Sýnt er í Bæjarleikhúsinu. Sister Act hefur aldrei verið sett upp á leiksviði og var undirbúningsvinnan því þó nokkur. Ásamt leikstjórastöðu tók Laufey Brá að sér handritsgerð og galdraði hún fram handrit með guðs hjálp á ótrúlega stuttum tíma. Útkoman er Nunnulíf, stórskemmtilegt leikrit sem fléttar saman lífi reglusystra og hinu harða lífi undirheimanna. Leikritið fjallar í stuttu máli um söngkonu á næturklúbbi, Díönnu Díor, sem verður vitni að hræðilegum glæp. Hún leitar aðstoðar lögreglu sem ákveður að fela hana í klaustri á meðan rannsókn á málinu fer fram. Mikil togstreita á sér stað hjá söngkonunni og lífið í klaustrinu tekur óvænta stefnu. Leikfélag Vestmannaeyja og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum standa saman að þessari uppsetningu en svona samstarf hefur verið ríkjandi undanfarin ár. Stór hluti leikara eru nemendur í skólanum og er þessi vinna metin til eininga. Æfingar hafa staðið yfir í um 6 vikur og er Helga Jónsdóttir kórstjóri hópsins. Sýningar fara fram í Bæjarleikhúsinu. Frumsýning laugardaginn 18. mars kl. 20:00 2. sýning föstudaginn 24. mars kl. 20:30 3. sýning laugardaginn 25. mars kl. 20:00 Miðasala í síma...
Read More


