Author: lensherra

Dimmalimm sýnt í Möguleikhúsinu

Einleikurinn Dimmalimm verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis á sunnudag kl. 14. og 16. og verða þetta einu almennu sýningarnar í Reykjavík. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur Dimmalimm á svið og hafa sýningar verið síðustu vikur í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu við góðar undirtektir. Leikurinn er byggður á samnefndu ævintýri eftir Mugg og hefur notið gífurlegra vinsælda allt frá því ævintýrið kom fyrst út á bók árið 1942. Ævintýrið fjallar um prins sem verður fyrir því óláni að verða breytt í svan af norninni Bauju. Þegar Dimmalimm prinsessa kemur til sögunnar tekur sagan á sig ævintýralegar myndir enda getur allt gerst í ævintýrunum. Höfundar leiksins eru þeir Elfar Logi Hannesson og Sigurþór A. Heimisson. Logi leikur og Sigurþór leikstýrir. Leikmynd er eftir Kristján Gunnarsson, Marsibil G. Kristjánsdóttur og Sigurþór. Brúðugerð annast þær mægður Alda Veiga Sigurðardóttir og Marsibil. Alda sér einnig um búninga. Jónas Tómasson, tónskáld, er höfundur lagsins Dimmalimm sem er samið við Dimmalimm ljóðið fræga. En lagið er sérstaklega samið fyrir þessa sýningu. Miðaverð er 1.500.- kr. og miðapantanir eru í Möguleikhúsinu í síma: 5625060. Nánari upplýsingar á heimasíðu Kómedíuleikhússins...

Read More

Dagrenning æfir Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni

Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði er um þessar mundir að setja upp verkið Sveyk í seinni heimstyrjöld eftir Bertold Brecht. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson og er ætlunin að frumsýna þann 31. mars nk. Sýnt verður í félagsheimilinu Brautartungu. 19 leikarar taka þátt í sýningunni en 25 manns koma að sýningunni í heild. Í helstu hlutverkum eru Jón Gíslason sem Sveyk sjálfur, Sigurður Halldórsson sem fer með hlutverk Balóns vinar Sveyks, Ágústa Þorvaldsdóttir sem leikur Frú Kopetska, kráareiganda, Sigurður Oddur Ragnarsson sem leikur Brettsneider SS foringa og Árni Ingvarsson sem túlkar Bullinger...

Read More

LA frumsýnir Litlu hryllingsbúðina

Föstudaginn 24. Mars frumsýnir LA stórsýningu vetrarins, söngleikinn ástsæla, Litla hryllingsbúðin. Verkið sló í gegn snemma á níunda áratugnum þegar það var frumsýnt og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Andrea Gylfadóttir. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson. Litla hryllingsbúðin hefur verið sýnd í leikhúsum um allan heim. Enda er sagan krassandi, persónurnar heillandi, tónlistin grípandi og húmorinn allsráðandi. Þetta er í þriðja skipti sem verkið er sett upp í atvinnuleikhúsi á Íslandi en Hitt leikhúsið setti verkið upp í Íslensku óperunni árið 1984 og Borgarleikhúsið árið 1998. Kvikmynd var gerð upp úr söngleiknum árið 1988 og skartaði hún m.a. Steve Martin í hlutverki tannlæknisins. 

Baldur eyðir fábrotnum dögunum í blómabúðinni hans Markúsar. Hann lætur sig dreyma um ástir Auðar sem er vinnur með honum í búðinni. Dag einn, rétt fyrir sólsetur uppgötvar Baldur undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heittelskuðu. Áður en langt um líður kemur í ljós að plantan hefur undarlega eiginleika og gríðalega matarlyst. Og hún vex og vex. Plantan vekur óskipta athygli og viðskiptin blómstra sem aldrei fyrr. Inn í söguna blandast svo kærasti Auðar, tannlæknir með kvalalosta, og atburðarrásin tekur óvænta stefnu… Græðgin er eitt meginstef verksins og ljóst að hinir saklausu geta legið vel við höggi þegar freistingar eru annars vegar. Geisladiskur með tónlistinni kemur í verslanir á morgun, mánudaginn...

Read More

Leikfélag Hveragerðis æfir Þrek og tár

Æfingar standa nú yfir á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson hjá leikfélagi Hveragerðis.  Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir verkinu og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa.  Margir leikarar eru í sýningunni eða 10 karlar og 7 konur og tók nokkurn tíma fyrir leikfélagið að lokka til sín karlleikara. Leikritið Þrek og Tár er flestum kunnugt og hafa mörg leikfélög sett það upp og nutum við góðs af því. t.d. var leikfélagið á Sauðárkróki  hjálplegt og lét í té nótur af tónlistinni og kann Leikfélag Hveragerðis því bestu þakkir fyrir það. Stefnt er að frumsýningu laugardaginn 1. apríl nk....

Read More

Viltu finna milljón?

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu.   Nú eru að hefjast æfingar í Borgarleikhúsinu á óborganlegum farsa sem hefur fengið nafnið Viltu finna milljón? Gamanleikurinn verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í maí. Landslið grínara situr nú og les sjóðheitt, nýútprentað handritið í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikarar eru: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Hansson og Theodór Júlíusson. Leikstóri er Þór Tulinius. Verkið heitir á frummálinu Funny money og er eftir Ray Cooney, verkið hefur farið sigurför um Evrópu og Ameríku síðan það var frumsýnt í London 1994.  Ray Cooney er að góðu kunnur íslenskum áhorfendum en gleðileikurinn “Með vífið í lúkunum”  í leikstjórn Þórs Tulinius, var sýnt tvö leikár í röð fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu. Opin samlestur á Viltu finna milljón? verður haldinn mánudaginn 20.mars á Nýja sviði Borgarleikhússins  kl. 12:30 og eru allir áhugasamir velkomnir. Við þetta tækifæri mun Guðjón Pedersen leikhússtjóri kynna væntanlega hláturhátíð sem verður í Borgareikhúsinu í maí. Aðgangur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert