Author: lensherra

Umsóknarfrestur á NEATA-hátíðina að renna út

Þann 15. mars rennur út frestur til að sækja um að komast á Leiklistarhátíð Norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins sem í þetta sinn verður haldið í Þórshöfn í Færeyjum dagana 3. til 8. ágúst. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum. Hátíðin stendur yfir í 4 heila dagar sem eru fullir af leiksýningum, leiksmiðjum, umræðum og skoðunarferðum. Reiknað er með að þátttakendur mæti fimmtudaginn 3. og fari heim þriðjudaginn 8. Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga er ábyrg fyrir vali á íslensku sýningunni en umsækjendur þurfa að vera aðilar að Bandalaginu. Sýningarlengd má að hámarki vera 90 mín. Beðið er um sjónrænar sýningar. Hátíðin greiðir uppihald á hátíðinni fyrir 10 manns frá hverju landi (fullt fæði, gistingu, leikhúsmiða, leiksmiðjur og skoðunarferðir). Ekki er komið verð á uppihaldi fyrir aðra ef leikhópar eru fjölmennari. Fargjöld til og frá Færeyjum þurfa leikhóparnir að borga sjálfir, einnig þurfa þeir að hafa allar sínar tryggingar í lagi. NAR veitir styrki til ferðarinnar. Nóg er til að byrja með að sækja um í tölvupósti á netfangið info@leiklist.is. Umsækjendur skulu vera viðbúnir því að þurfa að senda inn upptöku af sýningunum. Í fyrstu umsókn þarf eftirtalið að koma fram: Nafn leikfélags Nafn tengiliðs Sími hans og netfang Nafn leiksýningar Höfundur, þýðandi og leikstjóri Sýningarlengd án hlés Fjöldi þátttakenda í sýningunni Tilkynnt verður um val á sýningu þann 1. apríl 2006. Aðstandendur...

Read More

Krossgötur – málþing um Pétur Gaut

Í tilefni af sýningu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen standa Þjóðleikhúsið og norska sendiráðið fyrir málþingi um þetta stórvirki leikbókmenntanna laugardaginn 18. mars kl. 15:00 í Kassanum. Sýning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut, í leikgerð og leikstjórn Baltasars Kormáks, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og leikhúsgesta. Hér er á ferðinni eitt af meistarverkum Henriks Ibsens, snilldarlegur ljóðleikur sem aflaði skáldinu heimsfrægðar. Verkið kom fyrst út á bók árið 1867 en tæpum áratug síðar var það frumflutt og hefur reglulega verið sett upp í frægum uppsetningum í helstu leikhúsum heims síðan þá. Á þessu ári er hundrað ára ártíð Ibsens, og skáldsins er minnst með leiksýningum, hátíðahöldum og hvers kyns uppákomum víða um heim. Í ár er  jafnframt hundrað og þrjátíu ára sýningarafmæli leikritsins Péturs Gauts sem var frumflutt í Kristjaníuleikhúsinu þann 24. febrúar 1876. Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut verður haldið málþing um verkið og Ibsen í samstarfi við norska sendiráðið laugardaginn 18. mars nk. í Kassanum. Yfirskrift þess er Krossgötur og mun Terje Mærli halda erindi er hann nefnir “Pétur Gautur í samhengi við önnur verk Ibsens”. Terje er einn af fremstu leikstjórum Norðmanna og hefur sett upp yfir þrjátíu sýningar á verkum Ibsens í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi og Japan. Erindi Terjes verður haldið á norsku en að því loknu verða pallborðsumræður á íslensku með þátttöku Baltasars Kormáks leikstjóra, Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda,...

Read More

Stúdentaleikhúsið æfir nýtt verk

Stúdentaleikhúsið er nú að æfa nýtt leikrit sem frumsýnt verður 2. apríl í Loftkastalanum. Víkingur Kristjánsson hefur verið fenginn til að leikstýra hópnum að þessu sinni, og er verkið samið af leikhópnum í samvinnu við hann. Víkingur hefur getið sér gott orð á undanförnum árum, og þá sérstaklega í Vesturporti, þar sem hann hefur meðal annars leikið í Rómeó og Júlíu og Woyzeck, auk margra annarra. Hann hefur einu sinni áður leikstýrt Stúdentaleikhúsinu, árið 2002 í Púðurtunnunni. Eins og áður sagði er leikritið frumsamið af leikhópnum, en efni þess verður ekki gefið upp að svo stöddu. Leikhópurinn er stór að venju, og telur um 25 manns í það heila, og má því búast við stórri og kröftugri...

Read More

Klaufar og kóngsdætur kveðja

Síðasta sýning á Klaufum og kóngsdætrum í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 12. mars kl. 13:00 og er þá rétt um ár síðan verkið var frumsýnt og hafa yfir 10.000 manns séð verkið. Klaufar og kóngsdætur er leikgerð þeirra á Ármanns Guðmundssonar, Sævar Sigurgeirssonar og Þorgeirs Tryggvasonar á nokkrum af ævintýrum HC Andersen í tilfefni af 200 ára árstíð hans á síðasta ári. Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa...

Read More

Halaleikhópurinn frumsýnir Pókók

Laugardaginn 11. mars mun Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra, frumsýna leikritið Pókók, fyrsta leikverk Jökuls Jakobssonar. Þegar verkið var skrifað vakti það vonir um að mikið leikskáld væri í fæðingu, sem og varð raunin. Jökull er eitt besta leikskáld sem við höfum átt. Verk hans eru stórbrotin umfjöllun um samtímann, sálarkima mannskepnunnar og á stundum hárhvöss ádeila á íslensku þjóðarsálina. Með hverju verki magnaðist innsæið og verkfæri leikhússins léku í höndum hans. Pókók er gamanleikur sem fjallar um mann sem er ný sloppinn af Litla hrauni. Hann ætlar að setja á markað og græða stórkostlega á sælgæti, sem vinur hans og samfangi fann upp. En ekki er auðvelt að fylgja hinum gullna vegi til ríkidóms og ekki er sælgætið eins vænt og talið var í fyrstu. Inn í leikritið fléttast blekkingar, svik og brögð. Fegurðardrottningar og óprúttnir þjófar. Leikritið er í 4 þáttum og er tímalaust. Það var samtímasaga þegar það var sett upp fyrst en gæti einnig gerst nú tæpum 50 árum seinna. Frumsýnt verður laugardaginn 11. mars, klukkan 20:00. Sýningar verða í okkar litla og notalega leikhúsi að Hátúni 12 og vonandi verða þær sem flestar. Nánari upplýsingar á halaleikhopurinn.is og í síma 552-9188.     Meira um Halaleikhópinn:   Segja má að hópurinn í allri sinni breidd sé birtingarform þess samfélags sem við viljum sjá í „besta heimi allra heima“. Heildarhugmynd leikrits getur breyst ef einhver...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert