Author: lensherra

Gauragangur á Höfn

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagana, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er sérlega uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og tónlistarstjórn annast Jóhann Morávek en hljómsveitin Ný dönsk samdi tónlistina.  Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagan, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður...

Read More

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Hodja frá Pjort

Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort sem byggt er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en leikgerðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Ingvar Bjarnason. Hodja er ungur strákur frá smábænum Pjort í Búlgóslavíu. Hann dreymir um að ferðast og skoða heiminn en gengur illa að láta þann draum sinn rætast þrátt fyrir einlægan vilja. Einn daginn kynnist hann fjörgömlum teppavefara sem lánar honum fljúgandi töfrateppi. Hodja flýgur á því af stað í langþráð ferðalag til fjarlægra landa og lendir í fjölmörgum ævintýrum, hittir meðal annarra skúrkinn Rottuna og spikfeitan soldán sem hefur aðeins tvö áhugamál, að borða og höggva af fólki höfuðið. Hönnun leikmyndar er í höndum Finnboga Erlendssonar og Ingvars Bjarnasonar.  Dýrleif Jónsdóttir sá um hönnun búninga og gerfa og leikmuni. Ljósahönnuður er Kjartan Þórisson og tónlistarstjóri er Snæbjörn Ragnarsson. Leikritið er sýnt í nýjum húsakynnum félagsins í gamla Lækjarskóla og er gengið inn um aðalinngang að framanverðu.   Sýningin verður eins og fyrr segir frumsýnd laugardaginn 25. mars kl 17:00 en næstu sýningar eru sunnudaginn 26. mars, laugardaginn 1. apríl, laugardaginn 8 apríl og sunnudaginn 9. apríl. klukkan 14:00 alla dagana. Upplýsingar um sýningar og miða fást í síma 848-0475. Athugið að frítt er fyrir Hafnfirðinga á 3. sýningu 1. apríl samkvæmt venju, á meðan húsrúm...

Read More

Leikfélag Sauðárkróks æfir Vífið

Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen, er annað verkefni Leikfélags Sauðárkróks á leikárinu og verður frumsýnt í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl nk. Verkið var m.a. sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku leikhúsgrúppunni við fantagóðar undirtektir árið 2001 og fjallar um John nokkurn Smith sem er ósköp venjulegur maður nema hvað hann er óvart giftur tveimur konum. Einn daginn lendir hann í óhappi sem veldur því að upp um hann gæti komist og spinnast þá upp ótrúlegustu lygar og flækjur til að koma í veg fyrir að konurnar frétti hvor af annarri.   Þetta gerir leikritið að eldfjörugum og bráðskemmtilegum farsa með hurðarskellum og öllu tilheyrandi. Leikstjóri er Þröstur...

Read More

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum eina ferðina enn

Leikfélagið Hugleikur hefur staðið fyrir mánaðarlegum skemmtidagskrám í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur undir yfirskriftinni Þetta mánaðarlega. Dagskrá marsmánaðar verður fimmtudag og sunnudag næstkomandi og hefst kl. 21, en húsið opnar kl. 20.30. Hugleikur hefur undanfarin ár lagt áherslu á uppsetningu frumsaminna einþáttunga og dagskráin einkennist af því. Að þessu sinni verða sex einþáttungar fluttir á dagskránni, þar af fimm spánnýir. Þættirnir eru "Latexdrottningin" eftir Ármann Guðmundsson, "Leki" eftir Guðmund Erlingsson, "Í öruggum heimi" eftir Júlíu Hannam, "Kratavar" og "Hannyrðir" eftir Sigurð H. Pálsson og "Friðardúfan" eftir Unni Guttormsdóttur. Þættirnir eru fjölbreyttir að efni, og velt er upp ýmsum spurningum: Er til eitthvað betra en að spila bridds heila helgi? Hvað gera karlmenn þegar þeir hittast án þess að kvenfólk sé nærri? Hvaða útivinna stendur miðaldra húsmæðrum til boða? Hvar er kúríbíska töluð? Eru friðardúfur farfuglar? Höfundar og leikstjórar eru úr röðum félagsmanna, en Hugleikur hefur sem kunnugt er sérhæft sig í að sýna verk eftir innanfélagsmenn. Almennt miðaverð er 1.000 kr. og miðapantanir eru í síma 551 2525 og á...

Read More

Dimmalimm sýnt í Möguleikhúsinu

Einleikurinn Dimmalimm verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis á sunnudag kl. 14. og 16. og verða þetta einu almennu sýningarnar í Reykjavík. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur Dimmalimm á svið og hafa sýningar verið síðustu vikur í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu við góðar undirtektir. Leikurinn er byggður á samnefndu ævintýri eftir Mugg og hefur notið gífurlegra vinsælda allt frá því ævintýrið kom fyrst út á bók árið 1942. Ævintýrið fjallar um prins sem verður fyrir því óláni að verða breytt í svan af norninni Bauju. Þegar Dimmalimm prinsessa kemur til sögunnar tekur sagan á sig ævintýralegar myndir enda getur allt gerst í ævintýrunum. Höfundar leiksins eru þeir Elfar Logi Hannesson og Sigurþór A. Heimisson. Logi leikur og Sigurþór leikstýrir. Leikmynd er eftir Kristján Gunnarsson, Marsibil G. Kristjánsdóttur og Sigurþór. Brúðugerð annast þær mægður Alda Veiga Sigurðardóttir og Marsibil. Alda sér einnig um búninga. Jónas Tómasson, tónskáld, er höfundur lagsins Dimmalimm sem er samið við Dimmalimm ljóðið fræga. En lagið er sérstaklega samið fyrir þessa sýningu. Miðaverð er 1.500.- kr. og miðapantanir eru í Möguleikhúsinu í síma: 5625060. Nánari upplýsingar á heimasíðu Kómedíuleikhússins...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert