Author: lensherra

Leikfélag Selfoss með heiðurssýningu

Þann 2. apríl nk. verður sérstök heiðurssýning á Þuríði og Kambsráninu hjá Leikfélagi Selfoss til að heiðra minningu Ólafar Österby (fædd 1. apríl 1906, lést 19. janúar 1995). Ólöf var í fyrstu stjórn leikfélagsins árið 1958 og ári seinna var hún kosinn sem formaður og gegndi því starfi í eitt ár. Hún kom margoft fram með leikfélaginu, síðast árið 1972. Þann 1. apríl nk, verða liðin 100 ár frá fæðingu en hún lést árið 1995, 89 ára að...

Read More

Leynist kvikmyndastjarna í þér!

Sunnudaginn 2. apríl stendur Kvikmyndafélag Íslands fyrir opinni áheyrnarprufu fyrir ævintýragrínmyndina ASTRÓPÍA Í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar, sem tekin verður upp í sumar.   Leikarar jafnt sem áhugafólk er hvatt til að mæta í áheyrnarprufur sem standa yfir frá 10:00 til 17:00 í NEXUS hverfisgötu 103.   Athugið við leitum af fólki frá 17 ára aldri og uppúr, bæði í aðalhlutverk sem og minni hlutverk.   Allir velkomnir.   KVIKMYNDAFÉLAG...

Read More

Þráinn Karlsson fagnar 50 ára leikafmæli

Þráinn Karlsson  hefur starfað hjá LA í fimm áratugi og var meðal þeirra leikara sem fyrst fengu fastráðningu þegar LA varð atvinnuleikhús árið 1973. Síðan þá hefur hann farið með mörg hlutverk fyrir félagið, stór og smá. Þar má meðal annarra nefna Sganarelle í Don Juan, Skrifta-Hanns í Ævintýri á gönguför, Þórð í Stalín er ekki hér, Bjart í Sjálfstæðu fólki, Matta í Púntilla og Matta, Anton Antonovitsj í Eftirlitsmanninum, Roulin bréfbera í Bréfberanum frá Arles, hlutverk í My Fair Lady og í Edith Piaf, Ezra Pound í Skjaldbakan kemst þangað líka, Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni, Eddie Carbone í Horft af brúnni, karlhlutverkin í BarPari, Fangavörðinn í Leðurblökunni, Charlie Baker í Útlendingnum, Angel í Undir berum himni, Jeeter Lester í Tobacco Road, Póloníus í Hamlet, og Ananías í Gullbrúðkaupi, og er þá fátt eitt talið.   Hann hefur einnig leikstýrt nokkrum vinsælustu sýningum félagsins, svo sem Ættarmótinu, Fátæku fólki og nú síðast Blessuðu barnaláni. Þá hefur Þráinn hannað og smíðað leikmyndir. Árið 1974 stofnaði hann Alþýðuleikhúsið ásamt með öðrum og vann með því að nokkrum sýningum svo sem Krummagulli og Skollaleik. Hann starfaði um tíma í Þjóðleikhúsinu og hefur leikið í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi.  Þráinn vinnur einnig að myndlist og helgaði sig slíkum störfum veturinn 1995-1996 en þá var hann bæjarlistamaður Akureyrarbæjar.  Í vetur hefur hann leikið í öllum uppsetningum LA, Fullkomnu brúðkaupi, Maríubjöllunni og Litlu hryllingsbúðinni. Í tilefni...

Read More

Memento mori til Færeyja

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur valið sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur til að vera fulltrúi Íslands á 4. NEATA-leiklistarhátíðinni sem fram fer í Færeyjum dagana 2.-8. ágúst nk. Sýningin er eins og kunnugt er samvinnuverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Val stjórnar var reyndar ekki erfitt þar sem ekki var sótt um fyrir fleiri sýningar en stjórnin var sammála um að sýningin væri afar verðugur fulltrúi íslenskrar leiklistar og Bandalagsins. Þessi félög hafa reyndar verið fulltrúar Íslands á NEATA-hátíðum hingað til, Hugleikur sýndi Bíbí og blakan í Litháen árið 2000 og Undir hamrinum í Eistlandi 2004 og Leikfélag Kópavogs fór með Grimms til Svíþjóðar 2002. Markmið hátíðarinnar er að efla samstarf áhugaleikfélaga á Norðurlöndum og í baltnesku löndunum. Á hátíðinni verða sýningar frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi og Svíþjóð auk þess sem námskeið verða haldin, farið verður í skoðanaferðir og hátíðarklúbbur starfræktur. Til gamans má geta þess að sterkar líkur eru á að NEATA-hátíðin verði haldin hér á landi árið...

Read More

Örleikritasamkeppni framhaldsskólanema

Mánudagskvöldið 27. mars, á alþjóðlega leikhúsdaginn, verða úrslit í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna kynnt. Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir samkeppninni. Alls bárust á þriðja tug handrita hvaðanæva að af landinu. Fimm leikrit voru valin til flutnings í Kassanum, nýju leiksviði Þjóðleikhússins. Flytjendur eru nemendur í þriðja bekk leiklistardeildar LHÍ en leikstjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. Dómnefnd, sem skipuð er Þórhalli Sigurðssyni, leikstjóra og deildarstjóra fræðsludeildar, Ragnheiði Skúladóttur, deildarforseta leiklistardeildar LHÍ og Jóhannesi Helgasyni frá Spron, mun velja vinningshafa úr þessum verkum. Vegleg verðlaun eru í boði. Sigurvegarinn hlýtur 50 þúsund krónur, önnur verðlaun eru 30 þúsund krónur og þriðju verðlaun eru 20 þúsund krónur. Auk þess fá verðlaunahafar gjafakort í Þjóðleikhúsið. Þetta er í þriðja sinn sem fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild LHÍ standa fyrir örleikritasamkeppni meðal framhaldsskólanema. Bjargföst trú á uppeldis- og menningarlegt gildi leiklistar býr að baki stofnunar fræðsludeildar við Þjóðleikhúsið. Deildinni er ætlað að efla samskipti leikhússins við skólana í landinu, m.a. með námskeiðahaldi fyrir kennara, útgáfu á námsefni og með samstarfsverkefnum eins og örleikritasamkeppninni. Styrktaraðili örleikritasamkeppninnar er...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert