Author: lensherra

Stuttverkasamkeppni 2006

Í kvöld lýkur rennur út skilafrestur fyrir Stuttverkasamkeppnina. Á miðnætti í kvöld, fimmtudaginn 26. október þurfa handrit að hafa borist. Smelltu á tengilinn hér að neðan til að fá nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag. Árið 2003 stóð Leiklistarvefurinn fyrir samkeppni í ritun stuttra leikþátta. Mæltist framtakið vel fyrir og var þátttaka afar góð. Nú stendur til að endurtaka leikinn og halda sambærilega keppni. Í þetta sinn verða peningaverðlaun í boði:Fyrir 1. sæti: Kr. 25.000Fyrir 2. sæti: Kr. 15.000Fyrir 3. sæti: Kr. 10.000Engin skilyrði eru um efni eða form verkanna nema að þau mega að hámarki vera 800 orð...

Read More

108 prOtOtype

108 PROTOTYPE er röð mánaðarlegra sýninga þar sem listamenn frá hinum ýmsu listgreinum hafa tækifæri til þess að sýna verk sína.  Markmið sýninganna er að skapa umhverfi þar sem megináherslan er lögð á sköpunarferlið, tilraunir og nýjar hugmyndir.  Opnum umræðum milli áhorfenda og listamanna verður stjórnað í lok hverrar sýningar.   108 PROTOTYPE fer fram í Klassíska Listdansskólanum, sem er virk miðstöð fyrir bæði dans og aðrar listgreinar.  Þar er að finna rúmgóðan sýningarsal og tvo minni sali sem hægt er nota fyrir sýningar á margmiðlunarverkum.  108 PROTOTYPE nýtur fulls stuðnings Klassíska Listdansskólans sem viðurkennir þörfina á því að danslistin nái betri tengslum við samfélagið og aðrar listgreinar. 108 PROTOTYPE er ekki hagnaðarstarfsemi.     Umsókn Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í sýningarröðinni 108 PROTOTYPE þá vinsamlegast sendið eftirfarandi:   Útlistun á hugmyndinni og listrænum tilgangi. Ferilskrá og æviágrip. Upptaka af verkinu.  (Ef verkið er nýtt þá vinsamlegast sendið upptöku af fyrri verkum).  Tekið er við; DVD, DV, CD, CD Rom, myndir, skyggnur. Frímerkt umslag með nafni og heimilisfangi ef óskað er eftir að fá gögnin send tilbaka.   Sendið til: 108 PROTOTYPE Andreas Constantinou Ofanleiti 9, Reykjavik 105 Is-Iceland.   Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um sýningarnar eða varðandi umsóknarferlið þá vinsamlegast hafið samband við Andreas Constantiniou, himherandit@yahoo.co.uk, Steinunni Ketilsdóttir, steinunn_k@hotmail.com eða leitið upplýsinga á...

Read More

Japönsk heimsfrumsýning í Þjóðleikhúsinu

Japanski leikhópurinn Theatre du Sygne frumsýnir Snegla tamin eða Taming of the Shrew eftir William Shakespeare á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 16. september kl. 20.00. Sýningin kemur til Íslands í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að Japan og Ísland tóku upp stjórnmálasamband. Leikhópurinn Theatre du Sygne hefur tekist á við fjölda verka eftir Shakespeare og ferðast með sýningar víða um heim. Meðal fyrri verkefna hópsins eftir Shakespeare má nefna Kaupmanninn í Feneyjum, Makbeð og Óþelló.   Sýningin á Snegla tamin er frumsýnd á þessari leikför, og er Ísland fyrsti áfangastaður hópsins á ferð til fleiri...

Read More

Vinnusmiðja Þjóðleikhússins 2006-2007

Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS,  sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í skólastofunni stuðning í viðleitni sinni.  Undanfarin ár hefur allnokkur hópur sótt námskeið vinnusmiðjunnar og vonumst við til að svo verði áfram. Í vetur fáum við til okkar fimm einstaklinga sem allir hafa getið sér gott orð fyrir störf sín. Þeir koma úr ýmsum áttum en eiga það sameiginlegt að vinna við hinar ýmsu hliðar leiklistar og leiklistarkennslu. Munu þeir fyrst og fremst kynna sínar vinnuaðferðir fyrir kennurum og gefa þeim hugmynd um hvernig hægt er að nota þær í leiklistarkennslu, almennri kennslu og uppsetningum. Við munum hittast einu sinni í mánuði yfir veturinn, þrisvar fyrir jól og þrisvar eftir jól. Hér fyrir neðan er dagskrá Vinnusmiðjunnar og allar nánari upplýsingar. Staðsetning     Húsnæði Fræðsludeildar Þjóðleikhússins, gamla Hæstaréttarhúsinu, Lindargötu 3. Verð og skráning: Eins og undanfarin ár þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir allan veturinn. Við reynum að halda kostnaði í algjöru lágmarki og er einungis um að ræða kostnað vegna kennara á fræðslukvöldunum. Allur pakkinn, sex fræðslukvöld, kostar einungis 12.000 kr. Hægt er að skrá sig hjá FLÍSS á netfangið  HYPERLINK "mailto:ogud@btnet.is" ogud@btnet.is Tími:...

Read More

Aðalfundur 6. og 7. maí 2006

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 6.-7. maí 2006 1. Guðrún Halla Jónsdóttir formaður bauð fundargesti velkomna. Hún stakk upp á Grétari G. Guðmundssyni, Leiklistarf. Seltjarnarness, og Ingólfi Þórssyni, Freyvangsleikhúsinu, sem fundarstjórum, það samþykkt. Halla stakk jafnframt upp á Ármanni Guðmundssyni, starfsmanni skrifstofu, og Dýrleifi Jónsdóttur, Leikf. Hafnarfjarðar, sem fundarriturum. Það samþykkt. 2. Regína Sigurðardóttir, Leikf. Húsavíkur, formaður kjörnefndar afgreiddi kjörbréf og afhenti atkvæðaspjöld. Atkvæði alls 23. Staða framboða kynnt. Júlíus Júlíusson, Hörður Sigurðarson og Lárus Vilhjálmsson áttu að ganga úr stjórn og Ármann Guðmundssson og Margrét Tryggvadóttir úr varastjórn. Lárus gaf kost á sér til endurkjörs en ekki Hörður og Júlíus. Ármann gaf kost á sér til aðalstjórnar og Margrét til varastjórnar. 3. Júlíus las Menningarstefnu. Fundurmenn kynntu sig. 4. Lárus greindi frá hvaða félög hefðu sótt um að ganga í Bandalagið. Leikfélagið Baldur, Bíldudal, og Leikklúbburinn Krafla, Hrísey, höfðu sótt um og voru samþykkt. Ofleikur, Reykjavík, Ultima Thule, Kaupmannahöfn, og KEX, Osló,  sögðu sig úr Bandalaginu. 5. Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar. Hún samþykkt. 6. Guðrún Halla flutti skýrslu stjórnar: Ársskýrsla stjórnar Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir starfsárið 2005-2006 Lögð fram á aðalfundi á Seltjarnarnesi 6. maí 2006. Stjórn Bandalagsins er þannig skipuð: Guðrún Halla Jónsdóttir, Akureyri, formaður Lárus Húnfjörð Vilhjálmsson, Álftanesi, varaformaður Þórvör Embla Guðmundsdóttir, Reykholtsdal, ritari Hörður Sigurðarson, Reykjavík, meðstjórnandi Júlíus Garðar Júlíusson, Dalvík, meðstjórnandi Í varastjórn eru: Margrét Tryggvadóttir, Hvolsvelli Ármann Guðmundsson,...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert