Author: lensherra

Vinnusmiðjur Þjóðleikhússins

Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS,  sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í skólastofunni stuðning í viðleitni sinni.  Undanfarin ár hefur allnokkur hópur sótt námskeið vinnusmiðjunnar og vonumst við til að svo verði áfram. Í vetur fáum við til okkar fimm einstaklinga sem allir hafa getið sér gott orð fyrir störf sín. Þeir koma úr ýmsum áttum en eiga það sameiginlegt að vinna við hinar ýmsu hliðar leiklistar og leiklistarkennslu. Munu þeir fyrst og fremst kynna sínar vinnuaðferðir fyrir kennurum og gefa þeim hugmynd um hvernig hægt er að nota þær í leiklistarkennslu, almennri kennslu og uppsetningum. Leiðbeinendur verða: Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur Ágústa Skúladóttir, leikstjóri Bernd Ogrodnik, brúðuleikhúsmaður Ása Helga Ragnarsdóttir, leiklistarkennari Siríður Birna Valsdóttir, dramaþerapisti Við munum hittast einu sinni í mánuði yfir veturinn, þrisvar fyrir jól og þrisvar eftir jól. Hér fyrir neðan er dagskrá Vinnusmiðjunnar og allar nánari upplýsingar. Staðsetning     Húsnæði Fræðsludeildar Þjóðleikhússins, gamla Hæstaréttarhúsinu, Lindargötu 3. Verð og skráning: Eins og undanfarin ár þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir allan veturinn. Við reynum að halda kostnaði í algjöru lágmarki og er einungis um að ræða kostnað vegna kennara á fræðslukvöldunum. Allur pakkinn,...

Read More

Mein Kampf frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Mein Kampf eftir George Tabori verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 23. september. Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið en leikstjórn er í höndum Hafliða Arngrímssonar Verkið er hárbeittur og meinfyndinn gamanleikur um sambýli gyðingsins Slómó og Adolfs Hitlers er sá síðarnefndi kemur úr sveitinni til Vínarborgar í þeim erindagjörðum að nema málaralist við Listaakademíuna þar í borg. Höfnun inntökunefndar er alger. Áfallið reynist Hitler andleg ofraun og við tekur ótrúleg saga vináttu og ástar þar sem gyðingurinn gengur hinum unga, óharðnaða og heimska utanbæjarlepp í móðurstað og kveikir hjá honum hugmyndir um pólitískan frama. Þegar Slómó áttar sig...

Read More

Karíus og Baktus á Akureyri

Laugardaginn 23. september verður hið sígilda barnaleikrit Karíus og Baktus eftir Thorbjorn Egner frumsýnt hjá LA. Verk Thorbjorns Egners eru ætíð vinsæl en þetta er í fyrsta sinn sem Karíus og Baktus eru settir upp norðan heiða. Í uppsetningu LA er tónlistin flutt í nýrri og grallaralegri útgáfu hljómsveitarinnar 200.000 naglbítar. Karíus og Baktus verða sýndir í nýju leikhúsi LA, Rýminu í september, október og nóvember. Sýningin er stutt, tekur um hálfa klukkustund í flutningi og tilvalin fyrir þá sem eru að kynnast töfrum leikhússins í fyrsta skipti. Verk Thorbjörns Egners eru fastir liðir á verkefnaskrám íslenskra leikhúsa. Hver...

Read More

Fagnaður eftir Harold Pinter aftur á svið

Fagnaður eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter í leikstjórn Stefáns Jónssonar verður tekinn til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu og að þessu sinni á Stóra sviðinu. Fyrsta sýningin verður sunnudaginn 24. september n.k. Harold Pinter, eitt frægasta leikskáld samtímans, hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Þjóðleikhúsið sýnir nýjasta leikrit hans, Fagnað, sem hlaut þá umsögn gagnrýnanda þegar það var frumflutt í London árið 2000 að það væri fyndnasta og aðgengilegasta verk skáldsins í mörg ár. Verkið gerist á veitingastað í London. Á hverju borði er verið að fagna einhverju. En smám saman verðum við vör við ógnina sem býr undir niðri....

Read More

Námskeið í Rússlandi

Bandalag rússneskra leikfélaga (STD), í samstarfi við alþjóðasamtök áhugaleikfélaga, AITA/IATA heldur alþjóðlegt námskeið sem gengur undir nafninu "The Stanislavsky Method Today / Practical Training for Actors and Directors of the Amateur Theatre" dagana 26. apríl til 4. maí 2007. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2006. Prófessorar frá leiklistarskólum Moskvu kenna eftirfarandi námskeið: Acting skills Director’s work on the play during the staging The stage movement Kennt verður á rússnesku, ensku, frönsku og þýsku. Námskeiðshaldarar ábyrgjast túlkun. Nemendur verða sóttir á alþjóðaflugvöllinn í Moskvu eða brautarstöðvar og þeim verður séð fyrir ferðum á námskeiðsstaðinn og til baka við heimferð, húsnæði...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert