Author: lensherra

Ljósanámskeið

Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október   Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Um er að ræða tvískipt námskeið. Laugardagurinn verður fyrir alla er koma á einhvern hátt nálægt vinnu í leikhúsinu; leikarar, leikstjórar, tæknimenn, leikmyndahönnuðir, sminkur, búningahönnuðir, stjórnir leikfélaga o.fl. Þessi hluti er mjög almenns eðlis um ljósavinnuna og fjallar um hluti eins og: Hvað er ljós, hvert er eðli ljóss, hvað getum við gert með ljósum og...

Read More

No(h)ra tvöföld

Útsendari Leiklistarvefjarins brá sér að japanska sýningu í Þjóðleikhúsinu: Það var forvitni um undarlegar stefnur og hefðir í leikhúsi sem rak mig til að fara að sjá gestasýningu frá Natori-leikhúsinu í Japan í Þjóðleikhúsinu síðasta laugardagskvöld. Mér þótti spennandi að sjá Noh-formið, og að efniviðurinn væri Brúðuheimili eftir Ibsen þótti mér hálfgert aukaatriði. Enda finnst mér það alveg forkastanlega leiðinlegt leikrit. En þessi sýning gerði heilmikið fyrir mig. Noh-leikhúsið byrjaði að þróast í Japan á fjórtándu öld. Þessi leikhúshefð byggir mikið á nákvæmum og hægum hreyfingum, fastmótuðum persónugerðum og ákveðnum staðsetningum hljóðfæraleikara og kórs á sviðinu. Rætur þess má...

Read More

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir

Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund laugardaginn 16. september 2006 í Hjáleigu Leikfélags Kópavogs, Fannborg 2, Kópavogi. Fundurinn hefst klukkan 13:00. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundastörf og önnur mál. Kosið verður í stjórn, farið yfir starf síðustu tveggja ára og farið yfir fjármálin. Auk þess verður starfið framundan rætt. Mikilvægt er að félagsmenn mæti til þess að tjá sig um starf félagsins. Allar nýjar tillögur eru mjög vel þegnar. Leikfélagið Sýnir var stofnað af nemendum úr Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga árið 1997 og starfar á landsvísu, aðallega á sumrin. Allir sem áhuga hafa geta gerst félagar. Nýir félagar velkomnir á aðalfund....

Read More

Tvö námskeið í leikhúsförðun

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir tvö námskeið í leikhúsförðun í október nk.Kennari á báðum námskeiðunum er Gréta Boða leikhúsförðunarfræðingur og hárkollumeistari.Skráningu lýkur 15. september á bæði námskeiðin! Byrjendanámskeið í leikhúsförðunKennari Gréta BoðaÞátttökugjald: kr. 12.000Tími: 13. til 15. október 2006Staður: Laugavegur 96, II hæðSkráningum lýkur 15. septemberGrunnförðun í leikhúsi, val á litum og efnisnotkun, hreinsun og umgengni er efni þessa námskeiðs. Kennslan er fræðileg og verkleg, nemendur yfirvinna feimnina við liti og efni með því að farða hverjir aðra undir leiðsögn kennarans.Notaðar verða förðunarvörur frá Grimas og Kryolan.Framhaldsnámskeið í leikhúsförðunKennari Gréta BoðaÞátttökugjald: kr. 14.000Tími: 27. til 29. október 2006Staður: Laugavegur 96, II hæðSkráningum lýkur 15. septemberNámskeiðið er sjálfstætt framhald af fyrra förðunarnámskeiðinu, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið.Kennd verður „karakterförðun“, unnið með latex, skalla, krephár og fleiri efni sem notuð eru til að breyta og bæta ásýnd leikarana á sviðinu.Kennt verður að búa til skallahettur, setja þær á og farða. Einnig að búa til skegg, augabrúnir og barta úr kréphári og líma það á. Latex, Tuplast og fleira notað til að gera fólk eldra, ásamt förðuninni sjálfri. Notaðar verða förðunarvörur frá Grimas og Kryolan.Gréta Boða er hárkollu- og förðunarmeistari. Hún lærði fagið í Þjóðleikhúsinu og London. Hún hefur 35 ára reynslu af vinnu í leikhúsi og sjónvarpi, við bíómyndir og auglýsinga- og ljósmyndaförðun.  Gréta hefur áður kennt förðun og hárkollugerð við skólann.Skólasetningar...

Read More

Leiklistarnámskeið

Nokkur pláss eru laus á leiklistarnámskeið sem leikfélagið Hugleikur stendur fyrir nú í september. Námskeiðið er ætlað leikurum, jafnt reyndum sem þeim sem minni hafa reynsluna. Áhersla verður lögð á líkamlega tjáningu og að hætta að hugsa. Kennari verður leikarinn og leikstjórinn Agnar Jón Egilsson. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Tímaáætlun námskeiðsins er sem hér segir: Mán. 11/9 kl. 20-23 Þri. 12/9 kl. 20-23 Mið. 13/9 kl. 20-23 Lau. 16/9 kl. 16-20 Mán. 18/9 kl. 20-23 Þri. 19/9 kl. 20-23 Mið. 20/9 kl. 20-23 Fös. 22/9 kl. 20-23 Samtals eru þetta 25 tímar. Þátttaka á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert