Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum
Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr ýmsum verkum Hugleiks. Ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn með fimm til sex dagskrám í vetur. Höfundahópi Hugleiks hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu. Einn af vaxtarbroddum félagsins hefur verið ritun stuttverka. Uppsetningar stuttverka er leikhúsform sem meira hefur farið fyrir hjá áhugaleikfélögum...
Read More


