Author: lensherra

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga

Þegar prestfrú ein tekur upp á því  spila í getraunum gegn vilja eiginmannsins og án hans vitundar getur ekkert verra komið fyrir en… að hún vinni. Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Getraunagróði eftir Philip King.   Verkið er gamanleikur þar sem hlutir ganga hratt fyrir sig og mikið er um misskilning og ærsl.   Vel hefur gengið að manna hlutverk en leikendur eru 7 og koma hvaðanæva að úr sýslunni.   Leikstjóri er Margrét Tryggvadóttir.   Áætlað er að frumsýna í Njálsbúð í endaðan nóvember. Einnig stendur leikfélagið nú um stundir fyrir námskeiði í leiklist fyrri börn á...

Read More

Leikhússport á Íslandi

Þeir sem áhuga hafa á spuna og leikkhússporti takið eftir: Ég og fleiri erum að koma saman spunahóp sem myndi hittast reglulega (1–2 í viku) og æfa og keppa.Allir þeir sem áhuga hefðu á því að vera með í þessu sendið póst á mig, gisli@verslo.is með nafni, netfangi og síma.Ég mun veita þessum hóp forstöðu en þetta er ekki þannig séð á vegum Leikfélags Kópavogs.Ef þið viljið kynna ykkur hvað leikhússport og spuni gengur út á þá getið þið skoðað stutt myndskeið úr „Whose line is it anyway?“ á http://www.youtube.com  með leitarorðunum Whose line is it.Listi yfir tengla tengdum spuna og leikhússporti er á: http://www.fuzzyco.com/improv/games.html Gísli Björn Heimisson...

Read More

Áhugaleiklistin undir hnífnum

Hið árlega fjárlagafrumvarp var kynnt á dögunum. Eins og venjulega var látið að því liggja að nú væri kaupmáttaraukning í þjóðfélaginu og smjör drypi af nánast hverju strái, en þó verða menn að passa sig á þenslunni. Einhverra hluta vegna kemur það meðal annars í hlut hins fjársvelta leikhúsgeira að halda aftur af henni. Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga eru nú 63 talsins. Á síðasta ári settu þau upp, samtals, yfir fimmtíu leiksýningar og stóðu fyrir um tuttugu námskeiðum fyrir alla aldurshópa um allt land. Víða eru leikfélögin snar þáttur menningarstarfsemin byggðarlaganna. Og á hátíðlegum stundum er það gjarnan haft...

Read More

Þjóðleikhúsið frumsýnir á Selfossi

Þjóðleikhúsið frumsýnir Patrek 1,5 eftir Michael Druker í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn 10. október kl. 13.00. Þetta er hvorki hefðbundinn staður né stund fyrir frumsýningu á vegum Þjóðleikhússins en ástæðan er sú að hér er um að ræða leikrit sem er einkum ætlað ungu fólki og markar sýningin upphaf leikferðar Patreks 1,5 um landið þar sem sýnt verður í framhaldsskólum. Sýningin verður einnig á fjölum Smíðaverkstæðis Þjóðleikhússins í nóvember. Patrekur 1,5 fjallar um tvo karlmenn sem búa saman. Þá dreymir um að verða foreldrar, að ala upp barn saman. Eftir mikla baráttu fá þeir óskina uppfyllta og litli...

Read More

Lína Langsokkur á Patreksfirði

Leikfélag Patreksfjarðar hefur nú vaknað af nokkurra ára dvala og hafið starfsemi aftur af fullum krafti. Nú um helgina frumsýnir það sitt þrítugasta leikrit, en félagið var stofnaði 13. maí 1967 og á því fertugsafmæli í vor. Verkið sem sýnt verður að þessu sinni er Lína Langsokkur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Elvars Loga Hannessonar leikara, leikstjóra og bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar. Frumsýning verður laugardaginn 30. september kl. 14:00 í Skjaldborgarbíói. Um 30 manns vinna að uppsetningu verksins, bæði börn og fullorðnir. Miðapantanir í síma 866-6822 Meðfylgjandi mynd af hinni patreksfirsku Línu tók Halldór...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert