Author: lensherra

Hugleikur hlýtur viðurkenningu á degi íslenskrar tungu

Menntamálaráðherra veitti í gær leikfélaginu Hugleik sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu. Formaður félagsins tók við viðurkenningunni við athöfn í Hjallaskóla í Kópavogi í dag. Viðurkenningin var veitt í tengslum við verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem eru veittþann 16. nóvember, ár hvert. Þau voru nú veitt í 11. sinn. Áður hafa 19 aðilar fengið sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu. Þetta er í fyrsta sinn sem slík viðurkenning kemur í hlut leiklistargeirans. Leikfélagið Hugleikur hefur starfað í Reykjavík frá árinu 1984 og hefur alla jafna sett á svið frumsamin verk eftir meðlimi leikfélagsins.  Leikrit í fullri lengd sem...

Read More

Umfjöllun um Listina að lifa

Sigurður Ingólfsson brá sér á frumsýningu hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs um helgina. Hann hafði þetta að segja: Um helgina var frumsýnt á Iðavöllum nýtt leikrit eftir ungan höfund, Listin að lifa. Þetta er góð sýning og vel uppfærð. Þarna eru þrír leikarar sem skila sínu afskaplega vel. Það að skrifa leikrit um mannsæfi er stórt verkefni og auðvitað eru þarna hnökrar sem að kannski eru viðeigandi þegar þetta verkefni er tekið fyrir. Ein æfi er ekkert hnökralaus. Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrifar verkið sem síðan verður á vissan hátt til í meðförum Odds Bjarna Þorkelssonar, leikstjóra og svo leikaranna. Þráinn Sigvaldason...

Read More

Herra Kolbert einungis á Akureyri

Vegna fjölda fyrirspurna og áskorana vill LA koma eftirfarandi á framfæri: Engin áform eru uppi um að sýna Herra Kolbert né næstu uppsetningar LA í Reykjavík. Uppsetningunni á Herra Kolbert hefur verið afar vel tekið og verður hún sýnd á Akureyri í nóvember og desember. Síðasta sýning á Herra Kolbert verður 16. desember.   Ekki skapast svigrúm til leikferðar í höfuðborgina enda næsta verk, Svartur Köttur, væntanlegt á fjalirnar fljótlega í kjölfarið. Áætlun vetrarins hjá LA er afar þétt og gert ráð fyrir stífu sýningarhaldi í leikhúsinu á Akureyri. Leikhúsferðir til Akureyrar hafa notið mikilla vinsælda síðustu misseri og...

Read More

Hvers vegna láta konurnar svona?

Námskeið á vegum Þjóðleikhússins um Bakkynjur eftir Evripídes í nýrri og glæsilegri þýðingu Kristjáns Árnasonar sem m.a. styðst við nýgríska útgáfu af leiknum eftir gríska heimspekinginn og ljóðskáldið Giorgos Chimonas. Bakkynjur eru nú settar upp í fyrsta sinn á Íslandi og eru jafnframt jólasýning Þjóðleikhússins. Frumsýning er 26. desember n.k. Efnisþráður Bakkynja: Bakkynjur eftir Evripídes eru einn af frægustu harmleikjum grísku fornaldarinnar. Þar segir frá því er guðinn Díónýsos, öðru nafni Bakkos, kemur til Þebuborgar til að minna borgarbúa á guðlegan uppruna sinn og staðfesta nýjan helgisið sér til dýrðar. Af hans völdum hafa allar konur borgarinnar lagst út til að blóta Bakkos og æða trylltar um hlíðar fjallsins Kíþeron í einhvers konar algleymi vímunnar. Þegar Penþeifur konungur borgarinnar neitar að taka Díónýsos og nýja siðinn í sátt, lætur Díónýsos reiði sína bitna á konungsfjölskyldunni og öðrum borgarbúum með hörmulegum afleiðingum. Listrænir aðstandendur: Listrænir aðstandendur sýningarinnar eru m.a. frá Grikklandi, annars vegar leikstjórinn Giorgos Zamboulakis og hins vegar Thanos Vovolis, sem er höfundur leikmyndar, búninga, gerva og gríma. Giorgos og Thanos hafa unnið áður við Þjóðleikhúsið sem höfundar sviðshreyfinga, búninga og gríma í Mýrarljósi 2005. Fyrir vinnu sína fengu þeir tilnefningu til Menningarverðlauna DV. Til liðs við sig hafa þeir fengið tónskáldið Atla Ingólfsson og danshöfundinn Ernu Ómarsdóttur sem þykir ein af athyglisverðustu dönsurum í Evrópu í dag. Lýsingu hannar Lárus Björnsson. Vídeolistamaður er Björk Viggósdóttir. Með hlutverkin í...

Read More

Sambúðarverkir frumsýndir á Dalvík

Nú er komið að frumsýningu á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Yfirheiti verksins er Sambúðarverkir, en verkið samanstendur af fimm einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum. Höfundar einþáttunganna eru sex: Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Freyr Antonsson, Júlíus Júlíusson, Ingibjörg Hjartardóttir, Arnar Símonarson og Sólveig Rögnvaldsdóttir. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Þórarinn Blöndal hannar leikmynd og Pétur Skarphéðinsson lýsingu. Leikendur eru 17 talsins og margir koma fram í fleiru en einu hlutverki. Leikfélag Dalvíkur er menningarfélag sem hefur það að markmiði að iðka...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert