Author: lensherra

Ristruflanir í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið setur upp sýninguna „Ristruflanir“ í Freyvangi 10. og 11. nóvember. Eyjafjarðarsveit er sveitarfélag í hröðum vexti, en þegar allt á að gerast í einu, koma upp vandamál… svonefndar ristruflanir. Sveitarstjórinn tekst á við Pólverja og morgunsvæfa vinnumenn úr sveitinni, á meðan Sporvagninn Girnd ferðast um svæðið og selur karlmönnum misblátt efni, þeim til dægrastyttingar. En hvernig verður hægt að halda handverkshátíðina, þegar Pólverjarnir, hundfúlir yfir langri misnotkun, stela sporvagninum? Jú, með miklum söng og látum! Sýningar: Föstudagskvöldið 10. nóvember kl. 20.30, miðaverð 1500 krónur. Laugardagskvöldið 11. nóvember kl. 21.30, miðaverð 2000 krónur. Aldurstakmark 16 ár. Eftir sýningu á...

Read More

Verðlaun í Stuttverkasamkeppni afhent

Verðlaun í í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjónustumiðstöð Bandalagsins í dag. Fyrstu verðlaun hlaut Helga Hreinsdóttir fyrir verkið Undinn upp á þráð – bráð en hún skrifaði undir dulnefninu Nóra. Jöfn í 2. og 3. sæti voru þau Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson með verkið Kaffi og með því og Hrefna Friðriksdóttir með Einu sinni sem oftar. Eftir að upplýst hafði verið um vinningshafa og aðra þátttakendur voru verðlaunaverkin leiklesin. Verðlaun í í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjónustumiðstöð Bandalagsins í dag. Fyrstu verðlaun hlaut Helga Hreinsdóttir fyrir verkið Undinn upp á þráð –...

Read More

Leiklestur í Borgarleikhúsinu

Nú fara í hönd leiklestrar á úrslitaverkum úr samkeppni Borgarleikhússins, Sakamál á svið. Núna á sunnudaginn, 12. nóvember, verður fyrsta verkið lesið. Það er leikritið Engu að tapa eftir Jónínu Leósdóttur og Gunnar H. Jónsson. Lesturinn fer fram á þriðju hæð Borgarleikhússins og hefst klukkan 17.00. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir, en leiklesendur verða: Hildigunnur Þráinsdóttir, Sóley Elíasardóttir, Birgitta Birgisdóttir, Davíð Guðbrandsson, Kjartan Bjargmundsson, Theódór Júlíusson, Víðir Guðmundsson, Orri Huginn Ágústsson, Þórhallur Gunnarsson Lesturinn er öllum opinn og aðgangur...

Read More

Aukasýningar í Austurbæ

Breska leikritið Danny and deep blue sea fékk feikigóðar undirtektir um síðustu helgi í Austurbæ og vegna fjölda áskoranna verða tvær aukasýningar á laugardaginn 11. nóvember kl. 20 og 22. Danny and the deep blue sea er eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box”  rými á efri hæðinni, í Silfurtunglinu. Brit Pop leikrit, beint frá Bretlandi, beint í æð. Leikendur eru bresku hjónin Nicolette Morrison og Matthew Hugget. Leikið er á ensku. Danny var sýnt í Etcetera Theatre í Camden í London við feikigóðar undirtektir. Þetta er saga Danny og Robertu,...

Read More

Frumsýning á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir. Félagið hefur starfað nær óslitið frá árinu 1966 og hefur verið snar þáttur í menningarlífi Austurlands í allan þann tíma. Á þessum afmælisvetri stefnir félagið að fjölbreyttri og öflugri starfsemi. Starfsemi leikársins hófst í sumar á sýningum á verkinu Miðsumarnæturdraumar í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Einnig var haldin kvöldskemmtun í ágúst, en þá voru akkúrat 40 ár liðin frá stofnun félagsin. Einnig hefur í haust verið boðið upp á námskeið fyrir börn og unglinga. Og nú er komið að næstu frumsýningu. Verkið Listin að lifa verður frumsýnt á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert