Author: lensherra

Smiður jólasveinsins í Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið er um þessar mundir að hefja að nýju sýningar á barnaleikritinu Smiður jólasveinanna, eftir Pétur Eggerz. Leikritið var fyrst sýnt fyrir jólin 1992 og hefur allar götur síðan notið mikilla vinsælda, var m.a. gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993. Í leikritinu segir frá Völundi gamla sem situr í litla kofanum sínum hátt upp til fjalla. Völundur er smiðurinn sem sér um að smíða allar gjafirnar sem jólasveinarnir færa börnunum á jólunum. Eftir að síðustu sveinarnir eru farnir til byggða er einmanalegt í kotinu. Þá birtast óvæntir gestir, tröllabörnin Þusa og Þrasi sem aldrei hafa heyrt talað um...

Read More

Hnerrinn æfður á Selfossi

Æfingar eru hafnar af fullum krafti hjá Leikfélagi Selfoss í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið sem um ræðir heitir Hnerrinn og er blanda sjö ótengdra leikþátta og leikgerðra smásagna eftir Anton Chekov. Meðal verkanna eru þekktir þættir á borð við Björninn og Bónorðið en einnig er þarna að finna leikþætti sem ekki hafa áður verið sýndir hérlendis og má þar m.a. nefna titilþáttinn Hnerrann sem sýningin dregur nafn sitt af. Checkov er helst þekktur fyrir dramatísk verk eins og Mávinn en í stuttu leikþáttunum hans ræður gamansemin ríkjum. Leikgerð og þýðing úr rússnesku er eftir enska leikskáldið Michael Frayn....

Read More

Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrullaup

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir nú sýninguna Blóðbrúðkaup eftir F.G.Lorca. Þetta er annað verkefni vetrarins og er frumsýning 24.nóvember n.k. á Litla Sviði Borgarleikhússins en sýningin stendur til 10.desember. Blóðbrúðkaup er allt í senn – blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og  fávisku ætt fram af ætt, mann fram af manni jafnvel þó að allir viti að það endi aðeins með blóðbaði. Þetta er hin klassíska saga óleysanlegra átaka ástríðna og hefða. Ung stúlka er lofuð eigulegum pilti, en hjarta hennar tilheyrir enn fyrrum unnusta hennar sem þó...

Read More

Jólaleikrit í Borgarleikhúsinu

Miðvikudaginn 22.nóvember frumsýna BORGARBÖRN jólaleikritið Réttu leiðina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Borgarbörn er nýstofnað barna og unglingaleikhús Sönglistar og Borgarleikhússins og það eru hvorki fleiri né færri en 22 börn/unglingar sem taka þátt í hverri sýningu. Þess má geta að í tengslum við sýninguna verður tekið á móti jólapökkum sem Borgarbörn munu afhenda Rauða krossinum, hjálparstofnun kirkjunnar og mæðrastyrksnefnd í desember. Um er að ræða söngleik þar sem öll hlutverk eru skipuð börnum og unglingum. Krakkarnir hafa numið við söng- og leiklistarskólann Sönglist sem starfræktur er í samstarfi við Borgarleikhúsið. Umrædd sýning verður fyrsta sýning nýstofnaðs barna- og unglingaleikhúss...

Read More

Síðustu sýningar á Þjóðarsálinni

Nú eru einungis tvær sýningar eftir á hinni karnivalísku leiksýningu Þjóðarsálinni. Þær verða fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24. nóvember kl. 20.00 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi, nánar tiltekið í Álalind 3. Sýning þessi hefur vakið mjög sterk viðbrögð áhorfenda sem og gagnrýnenda. Fimm leikarar fara með stór hlutverk, þau Árni Pétur Guðjónsson, Árni Salomonsson, Harpa Arnardóttir, Jóhann G. Jóhannson og Sara Dögg Ásgeirsdóttir. En auk þeirra koma fram í sýningunni fimm hestar og knapar, tónlistarmaðurinn Pálmi Sigurhjartarson sem semur alla tónlist sýningarinnar, kór hestakvenna, fimleikafólk og gestaleikarar.  Sýningin einkennist af glensi og krafti en er um leið snörp...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert