Endurtekur sagan sig?
Útsendari okkar fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar um helgina og ritar sitt álit: "Leikfélag Hafnarfjarðar á 70 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins ákvað stjórn þess að setja upp að nýju Ráðskonu Bakkabræðra, vinsælasta leikrit sem þar hefur á fjalir komið. Sú sýning var sett upp í lok seinni heimsstyrjaldar og að sögn voru vinsældir þess svo miklar að "… fólk gerði sér far úr Reykjavík til að standa í biðröð í tvo, þrjá tíma" eftir miðum. Ráðskona Bakkabræðra er dæmigert barn síns tíma og spyrja má hvaða erindi þetta leikverk á við okkur í dag."...
Read More


