Author: lensherra

Opinn samlestur hjá Hugleik

Nú er að fara af stað uppsetning á söngleiknum Epli og Eikur hjá leikfélaginu Hugleik. Verkið er nýtt af nálinni en höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir en verk hennar, Kolrassa, sló í gegn hjá félaginu árið 2002. Leikstjóri verður Oddur Bjarni Þorkelsson. Þetta er í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá Hugleik, en hann hefur verið einn afkastamesti leikstjóri landsins undanfarin ár. Opinn samlestur á verkinu verður haldinn í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9 fimmtudaginn 11. janúar kl. 20.00. Þeir sem áhuga hafa á að starfa með félaginu í vetur eru hvattir til að mæta. Allir velkomnir Þeir sem ekki...

Read More

Power of Love – Hið fullkomna deit

Þann 14. janúar frumsýnir leikhópurinn Brilljantín einleik eftir Halldóru Malin Pétursdóttur á efri hæð Austurbæjar í Silfurtunglinu. Verkið sem er samstarfsverkefni ÍsMedía í Austurbæ og leikhópsins Brilljantín verður aðeins sýnt í viku. Verkinu hefur verið boðið í leikferð um Króatíu og Slóveníu í febrúar næstkomandi. Power of Love, hið fullkomna deit, fjallar um konu sem er að undirbúa mikilvægasta kvöld lífs síns. Þetta kvöld ætlar hún að finna ástina og lifa hamingjusöm til æviloka. Til þess að ekkert fari úrskeiðis skipuleggur hún allt út í þaula. Allt verður að vera fullkomið þegar herrann mætir á svæðið. Hún verður að...

Read More

Leikstjórnarnám í Litháen

Í háskólanum í Klaipeida í Litháen er boðið upp á styttri námsbraut í leikstjórn. Námið tekur tvær annir og er miðað við fjölþjóðlegan nemendahóp. Hámarksfjöldi nemenda er 15 manns en einhver reynsla af leikstjórn er inntökuskilyrði. Fari fjöldi umsækjenda yfir 15 manns verður valið úr þeim eftir reynslu í leikhúsvinnu. Skólagjöld fyrir veturinn eru tæplega 580.000 krónur, miðað við núverandi gengi, en innifalið í því er húsnæði á stúdentagörðum. Umsóknarfrestur er til 1. mars. Það er leikstjórnardeild Klaipeida-háskóla sem stendur fyrir námsbrautinni í samvinnu við IATA (Alþjóðlega áhugaleikhússambandið) NEATA (Bandalag Norður-evrópskra leikfélaga) og LMTS (Bandalag litháiskra leikfélaga). Námsgreinar eru...

Read More

Þjóðleikhúsið á nýju ári

Starfsemi Þjóðleikhússins er að komast á fullt skrið á nýju ári. Á stóra sviðinu eru þrjár sýningar í gangi. Bakkynjur, grískur harmleikur eftir Evrípídes var jólafrumsýning hússins og hefur hún vakið verðskuldaða athygli en verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Ný þýðing Kristjáns Árnasonar, leikstjórn og sviðsetning grískra leikhússnillinga, tónlist Atla Ingólfssonar og dansar Ernu Ómarsdóttur. Þessir þættir ásamt öflugum leik reyndra leikara í bland við rísandi stjörnur sameinast í að gera Bakkynjur að sterkri leikhúsupplifun. Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur halda áfram að svífa á stóra sviðinu en þessi hugljúfa fjölskyldusýning hefur náð til...

Read More

Leikfélag Kópavogs 50 ára

Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrrverandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins. Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir afmælisgesti, margir félagar munu stíga á svið og skemmta með söngi og leik, atriði úr uppsetningum félagsins verða sýnd ásamt mörgu fleiru. Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Allir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert